Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 29

Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 29
Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Gott skrifstofuhúsnæði til leigu Til leigu er 197 fm skrifstofuhúsnæði við Bíldshöfða. Skiptist í móttöku, fimm stór skrifstofuherbergi, eldhús og geymslu. Ágæt vinnuaðstaða fyrir allt að 12 starfsmenn. Sameiginlegar snyrtingar eru á hæðinni. Vsk. inn- heimtist ekki af leigunni og hentar húsnæðið því vel aðilum sem eru í vsk. lausri starfsemi. Beiðni um frekari upplýsingar sendist í tölvupósti til dogdleiga@gmail.com. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Rotþrær og heitir pottar Rotþrær-heildarlausnir með leiðbeiningum um frágang. Ódýrir heitir pottar-leiðbeiningar um frágang fylgja. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Til sölu Olíuskiljur - fituskiljur - einagrunnarplast CE vottaðar vörur. Efni til fráveitulagna. Vatnsgeymar 100-50.000 lítra. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Þjónusta Háþrýstiþvottur, & sandblástur Alhreinsun/ Strípun á t.d. stein, múr, stáli og fl. Mikil reynsla, öflug tæki. S. 860 2130 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. LOKAÐ 6. til 20. júní Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Atvinnuauglýsingar Háseti Vísir hf. óskar eftir að fastráða háseta á Fjölni GK 657. Fjölnir er línuveiðiskip með beitningarvél. Umsókn berist á heimasíðu Vísis www.visirhf.is. Vísir hf poszukuje marynarza do zatrudnienia na stale na statku Fjölnir GK 657. Fjölnir jest statkiem linowym z maszyna przynetowa. Podania mozna skladac na stronie Vísir www.visirhf.is. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Lesið og spjallað kl. 10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Hjúkrunar- fræðingur með viðveru frá kl. 11-11.30. Bónusrútan kemur kl. 12.30. Gönguhópur kl. 13.30, tekinn léttur hringur um hverfið Opið kaffihús kl. 14.30-15.30. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera í vinnustofu kl. 9, félagsvist kl. 14. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617- 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Göngu- hópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Botsía í Sjálandsskóla kl. 13.45. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl 14.45. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20. Gjábakki Kl. 9. Handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl. 10, kanasta kl. 13. Fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Opin vinnustofa frá kl. 13, tálgun. Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30. Korpúlfar Fáein sæti laus í spennandi dagsferð Korpúlfa um suður- ströndina fimmtudaginn 8. júní, þátttökugjald 8.000 kr. allt innifalið. Opið hús alla miðvikudaga í sumar í Borgum. Vöfflukaffi alla föstu- daga frá kl. 14.30 til 7. júlí 2017. Vonumst til að sjá ykkur sem flest. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt á vellinum við Skólabraut eða gönguferð kl. 10.30, fer eftir aðstæðum og veðri. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Skráning í sumarferðina sem farin verður fimmtudaginn 29. júní nk. stendur yfir; Ljósafoss- virkjun, Úlfljótsvatn, Sólheimar o.fl. Skráning og upplýsingar á Skólabraut og í síma 8939800. Deiliskipulag íþrótta- svæðis á Vopnafirði - skipulagslýsing - kynning. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér skipulags- lýsinguna skv. ákv. gr. 5.2 í skipulagsreglugerð. Deiliskipulag íþróttasvæðis. Lýsing skipulagsáforma um deiliskipulag fyrir íþróttasvæði Vopnafjarðar. Skipulagssvæðið er um 7 ha. að stærð, á hæðinni ofan og utan við núverandi byggð og er í eigu Vopna- fjarðarhrepps. Í dag er á svæðinu nýlegur keppnisvöllur sem af- markast af háum girðingum norðan- og sunnanmegin. Í norðaustur horni vallarins eru náttúrulegir klettar sem nýtast sem áhorfendastúkur á stærri leikjum. Bráðabirgðahúsnæði fyrir Ungmennafélagið Einherja er staðsett austan við klettana. Austan við keppnis- völlinn eru eldri æfingavellir. Akfær malarstígur liggur að svæðinu úr norðri og suðri, og þangað liggja gönguleiðir úr byggðinni. Opið hús verður í Miklagarði á Vopnafirði, fimmtu- daginn 22. júní nk. kl. 16.00-18.00. Almenningi verður gefinn kostur á að koma með ábendingar á kynningunni og/eða senda inn ábend- ingar til skipulags- og byggingarfulltrúa Vopna- fjarðarhrepps Hafnargötu 28, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og með 30. júní 2017. Hægt er að nálgast skipulagslýsinguna á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps og á skrifstofu Vopnfjarðarhrepps að Hamrahlíð 15, Vopnafirði. Byggingarfulltrúinn í Vopnafjarðarhreppi Tilkynningar mbl.is alltaf - allstaðar Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017 Nú fylgjum við og kveðjum ein- staklega vandaðan mann, full þakk- lætis að hafa feng- ið að vera hluti af hans lífi. Ég kynntist Guðmundi þeg- ar ég fór að leggja lag mitt við yngri son hans, Gunnlaug Frosta. Ég er ekki viss um að hann hafi verið neitt sérlega hrifinn af þessari tilvonandi tengda- dóttur svona í fyrstu, bæði há- vær og kjaftfor, en hafi svo verið fór hann afar vel með það. Fljótlega varð okkur vel til vina og það sem ég var montin í mínum fyrsta sauðburði á Mýrum þegar hann vakti mig en ekki synina til að draga frá kind. Ég man að hann sagði mér að ég yrði bara að „sjá“ með fingrunum hvernig lömbin lægju inni í móðurinni og kenndi mér hvernig best væri að leysa málið eftir því hvernig flækjan var. Það var nú ekki ónýtt að fá leiðsögn frá þess- um bónda. Veiðiferðirnar fram að Arn- arvatni með súkkulaðirúsínur á milli sætanna og eitthvað ör- litið sterkara í hanskahólfinu eru mér ógleymanlegar. Í víðáttunni frammi á heiði lifnaði aldeilis yfir þessum annars hægláta manni. Þarna var hann í essinu sínu innan um veiðifélagana í Dís- inni. Og það var veitt og flak- að, spilað og spaugað og mikið hlegið. Guðmundur var mikill Toy- otu-aðdáandi en Gulli taldi Landroverinn miklu betri og þetta gátu þeir feðgar þráttað um í góðu aftur og aftur. Því varð gleði Gulla mikil þegar ég fékk Toyotuna einu sinni lánaða, fyllti hana af bjúgum og börnum og hringdi í hann nett pirruð á leið upp Hrútafjarðarháls, þess fullviss að bíllinn væri fastur í lága drifinu. Hann gat varla svarað mér fyrir hlátri, bíllinn væri bara svona máttlaus. Svo hringdi hann strax í pabba sinn, kominn með sönnun þess hvurslags drusla þetta væri miðað við Landroverinn. Og svo var hlegið og þrasað. Í heyskap á hverju sumri var Guðmundur mættur til að múga. Sama hvernig heilsan var og aldurinn færðist yfir. Alltaf mætti hann með múga- vélina og múgaði frá morgni til kvölds og oft voru þetta ansi langir dagar. Við buðumst oft til að taka við af honum en það kom ekki til greina. Synirnir sögðu hann ekki treysta þeim til að gera þetta almennilega. Guðmundur var mikill húm- oristi og hafði sérlega gaman af skemmtisögum. Hann hélt þessum húmor fram á seinasta dag. Ég laumaðist til hans með lamb í tösku inn á sjúkrahús svo hann, þessi mikli sauðfjár- bóndi, fengi að finna smá sauð- burðarlykt en þessi tími var hans líf og yndi. Þegar starfs- menn uppgötvuðu svo lambið þá varð uppi fótur og fit frammi á ganginum yfir þessu kríli. Mér varð þá litið inn á herbergi til Guðmundar og þar lá hann skælbrosandi yfir þessum hamagangi í stelpun- um og var mikið skemmt. Og ekki varð brosið minna þegar Guðmundur Karlsson ✝ GuðmundurKarlsson fædd- ist 27. október 1931. Hann lést 16. maí 2017. Útför Guðmundar fór fram 27. maí 2017. ég lýsti fyrir hon- um myndrænt að þar sem ég væri ekki heima við þá þyrftu feðgarnir að skipta um bleyju á þessu lambskríli. Yndislegur mað- ur í alla staði og sá besti tengdapabbi sem ég gat fengið. Hans minning verður í heiðri höfð. Guðrún Hálfdánardóttir. Fallinn er frá heiðursmað- urinn Guðmundur Karlsson, bóndi á Mýrum 3 við Hrúta- fjörð. Þótt Guðmundur væri sveit- ungi minn alla ævi mína voru ekki mikil samskipti okkar framan af. Guðmundur var menntaður trésmiður og vann talsvert við þá iðju, m.a. byggði hann vélageymslu fyrir föður minn á Bjargi. Hann starfaði einnig sem bygging- arfulltrúi í Torfustaðahreppum áður fyrr, auk annarra fé- lagsstarfa fyrir sitt samfélag. En fyrst og fremst var hann áhugasamur og velvirkur bóndi með fjölskyldu sinni á Mýrum, ræktaði og byggði mannvirki á jörðinni og rak þar myndarbú. Kynni okkar hófust af al- vöru við starfrækslu Dísarinn- ar sf., sem nokkrir félagar stofnuðu árið 1992. Snerist markmið félagsins um nýting- ar á silungsveiðivötnum og lengst af tengdu Arnarvatni stóra. Guðmundur var einn af stofnfélögum félagsins og rit- ari þess, allt til þessa vors, þegar hann óskaði eftir að láta af því embætti. Á liðnum miss- erum höfum við misst nokkra félaga yfir móðuna miklu. Uppbygging gistiaðstöðu við Arnarvatn varð fyrsti sameig- inlegur vettvangur okkar Guð- mundar. Minnist ég einnar ferðar á heiðina að vetri til. Guðmundur var áhugamaður um vélsleðaferðir og fór ég eitt sinn aftan á sleða með honum yfir snævi þakta breiðuna. Hann keyrði býsna hratt, en af öryggi og ferðin tók skamman tíma. Nokkrum sinnum var þó brunað yfir snjóhryggi, svo allt fór í háaloft, sleði og menn. Í veiðiferðum voru tíðum langir dagar og lítil hvíld, þó gáfust stundir fyrir kvöldvök- ur; sögur, söng og lomberspil. Guðmundur var afar hlýlegur félagi, þótt ekki vildi hann syngja, sagði sögur og vísur. Oft fórum við saman á jeppa upp eftir. Gjarnan var stansað við hlið heiðargirðingar, sprænt svolítið og sagt: „Það hlýtur að vera í lagi að fá sér einn.“ Svo var gert og næst var opnaður pakki með súkku- laðirúsínum, sem hann hafði keypt til ferðarinnar. Man ég í fyrstu veiðiferðinni að ég steikti flök fyrir hópinn. Guð- mundur sagðist nú ekki vera mikið fyrir silung en smakkaði þó. Í næstu ferð sagði hann og brosti sínu hægverska brosi –„Kalli, á ekki að fara að steikja?“ Á síðustu misserum tók Guðmundur minna þátt í störf- um félagsins, þó kom hann í flökun á liðnu ári og var ljóst að „kallinn“ hafði engu gleymt. Hugur hans var með félögum sínum, þótt veikindi settu þar hömlur á. Við félagar í Dísinni sf. söknum góðs vinar og fé- laga og færum Erlu og fjöl- skyldunni allri okkar bestu kveðjur. Blessuð sé minning Guðmundar Karlssonar. Karl Sigurgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.