Morgunblaðið - 06.06.2017, Page 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
Tómas AquinasRizzo, eða TómasValgeirsson, á 30
ára afmæli í dag.
Hann skrifar kvik-
myndagagnrýni fyrir
Fréttablaðið og rekur
vefsíðuna Bíóvefurinn.is.
„Tómas Valgeirsson er
mitt prófessjónal nafn,
en stjúpfaðir minn heitir
Valgeir Ingi Ólafsson,“
segir Tómas þegar hann
er spurður út í nafnið, en
hann heitir í höfuðið á
skólaspekingnum fræga,
Tómasi frá Akvínó.
„Þetta er rammkaþólskt
nafn eftir guðfræðingn-
um, en pabbi minn heit-
inn, sem reyndar lést 6.6.
2007, var ítalsk-amerískur og hét þessu sama nafni og ákvað að skíra
mig því líka. Í bandarísku þjóðskránni er ég því Tómas Aquinas Rizzo
jr. Rizzo er sem sagt ættarnafnið og sem betur fer er ég hættur að fá
símtöl núna þar sem fólk heldur því fram að ég sé eigandi pitsustað-
arins.“ Móðir Tómasar er Kristín Anný Jónsdóttir.
Á Bíóvefurinn.is eru upplýsingar um kvikmyndir í bíóhúsunum,
kvikmyndadómar, fréttir af fólki í bransanum og greinar um kvik-
myndir almennt. „Það eru fleiri pennar á síðunni og markmiðið er að
vera með alhliða umfjöllun um kvikmyndir og tímalaust efni á henni,
ásamt því að halda bíósýningar öðru hverju. Mér finnst þó ekkert
skemmtilegra en að horfa á kvikmyndir í góðra vina hópi og ræða um
myndina síðan og svo almennt að stúdera kvikmyndasöguna. Þessi
kvikmyndaáhugi er föður mínum að þakka, en hann byrjaði snemma
að sýna mér flottar myndir.“
Auk skrifa um kvikmyndir hefur Tómas starfað sem blaðamaður
bæði hjá Séð og heyrt og Birtíngi og hann vinnur öðru hverju á skrif-
stofu Póstdreifingar.
Sambýliskona Tómasar er Hildur María Friðriksdóttir og vinnur
hún á Veðurstofu Íslands. Dóttir Tómasar er Emma Lilja og er hún
fimm ára gömul.
Þegar blaðamaður ræddi við Tómas fyrir helgi var hann ekki búinn
að ákveða hvað hann ætlaði að gera í tilefni dagsins. „Þetta er ágætur
tími til að horfa inn á við og líta yfir farinn veg og setja sér ný mark-
mið. Svo ætla ég að vera með mínum nánustu, en ég er ekki búinn að
ákveða nákvæmlega hvað við ætlum að gera.“
Skötuhjúin Hildur María og Tómas.
Fékk snemma áhuga
á kvikmyndum
Tómas Aquinas Rizzo er þrítugur í dag
V
igfús Gunnar Gíslason
fæddist á Flögu í Skaft-
ártungu 6.6. 1957 og
ólst þar upp við hefð-
bundin sveitastörf.
Hann var í Barnaskóla Skaftár-
tunguhrepps og síðan í unglinga-
skóla í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæj-
arklaustri, lauk námi í verkefna-
stjórnun og leiðtogaþjálfun frá
Endurmenntun Háskóla Íslands og
hefur sótt fjölmörg námskeið í ýms-
um greinum tengdum atvinnu.
Vigfús hóf störf hjá Málningar-
verksmiðjunni Hörpu 1982, var sölu-
maður þar og sölustjóri, seinna hjá
Hörpu Sjöfn og starfaði síðan hjá
Flügger eftir kaup Flügger á fyrir-
tækinu árið 2004. Hann hefur verið
framkvæmdastjóri Flügger ehf. frá
2008.
Vigfús starfaði með Skaftfellinga-
félaginu í Reykjavík og gegndi for-
mennsku þar í þrjú ár. Hann hefur
verið félagi í Ferðafélagi Íslands í
áratugi og hefur skipulagt og verið
fararstjóri í gönguferðum um Ísland
fyrir FÍ og fleiri félög og hópa í
mörg ár. Þá er hann félagsmaður í
Ferðamálafélagi Ölfuss og hefur
ferðast með því vítt og breitt um
landið í meira en 20 ár, en fjöl-
skyldan bjó í Þorlákshöfn í 23 ár.
Fjölskyldan hefur átt sumarhús
og sælureit á Flögu í Skaftártungu
frá 1987: „Við höfum einnig átt lítið
nýbýli í landi Svínhaga á Rangár-
völlum frá 2005 en það nefnist
Hrauntún. Þar höfum við stundað
skógrækt og aðrar landbætur. Með
því fæst góð útrás fyrir meðfæddan
áhuga á landi, fjölbreyttu gróðurfari
og framvindu gróðurs.“
Vigfús hefur skrifað greinar og
vakið athygli fólks á gildi og undrum
íslenskrar náttúru: „Ég hef nú einna
helst verið að vara við stórkarlalegri
umgengni við nýtingu náttúrunnar.
Þar má ekki fórna náttúruperlum
fyrir skammtímahagsmuni.
Auk þess hef ég lengi verið
lestrarhestur, hef ætíð tekið bækur
fram yfir sjónvarp og les helst eina
bók á mánuði, einkum íslenskar
Vigfús Gunnar Gíslason, framkvæmdastjóri Flügger - 60 ára
Eindreginn málsvari
íslenskrar náttúru
Barnabörnin Frá vinstri: Arnór Daði, Viktoría Elín, Ísar Máni og Elmar Kári.
María Högnadóttir, Thelma Rós Tómasdóttir og Lovísa Huld Gunnarsdóttir
söfnuðu dóti í Setbergi í Hafnarfirði og héldu tombólu. Þau gáfu afraksturinn,
6.625 kr., til Rauða kross Íslands.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is