Morgunblaðið - 06.06.2017, Síða 34
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ástæðan fyrir því að viðflytjum messuna aðþessu sinni er kannskifyrst og fremst krafa frá
kórfélögunum, sem hafa þurft að
sitja undir sífelldum spurningum
um hvenær við myndum flytja H-
moll messuna aftur. Þegar 35 ára
afmæli kórsins var við sjóndeild-
arhringinn nefndi ég við þau hvort
væri ekki kominn tími á þetta verk,
og var þá mikið júbblað,“ segir
Hörður Áskelsson, stjórnandi Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju.
Næstu helgi, 10. og 11. júni, mun
kórinn í þriðja sinn flytja Messu í
h-moll eftir Johann Sebastian
Bach. Um leið er því fagnað að
kórinn hefur starfað í 35 ár, og
sömuleiðis liðin 35 ár bæði frá
stofnun Listvinafélags Hallgríms-
kirkju og frá því að Hörður hóf
störf sem organisti kirkjunnar.
„Það var nákvæmlega á þessum
kirkjuársdegi fyrir 35 árum, fyrsta
sunnudaginn eftir hvítasunnu árið
1982, að ég kom til starfa hjá kirkj-
unni,“ segir Hörður, en stofnun
kórsins og Listvinafélagsins voru
með fyrstu verkum hans.
Hann segir að Listvinafélaginu
hafi m.a. verið ætlað að bæta
ímynd Hallgrímskirkju. „Á þessum
tíma var kirkjan mjög umdeild og
ekki fullkláruð. Margir höfðu horn í
síðu þessarar byggingar, þótti hús-
ið ljótt og engin þörf fyrir svona
mannvirki. Var listvinafélagið
gagngert stofnað til þess að efla
listalífið í þessum þjóðarhelgidómi,
og virðist ég hafa verið svolítið
klókur ungur maður á þessum tíma
að gera mér grein fyrir því að við
myndum þurfa á breiðum stuðningi
að halda,“ útskýrir Hörður og bæt-
ir við að í stjórn félagsins hafi m.a.
valist Sigurbjörn Einarsson biskup,
Knut Ödegaard skáld og Matthías
Johannessen, ritstjóri Morgun-
blaðsins. „Ég fékk gríðarlegan
stuðning í gegnum listvinafélagið,
og rétt að muna að á þessum tíma
voru sáralitlir peningar aflögu til
að fjármagna listviðburði – allt fór í
að klára sjálfa bygginguna. Með
því að safna áskrifendum, og með
þetta góða fólk innanborðs, tókst
að hleypa starfinu vel af stað.“
Vildi verða að gagni á Íslandi
Hörður hafði nýlokið námi í
orgelleik og kórstjórn í Düsseldorf
þegar hann tók við organistastarf-
inu í Hallgrímskirkju. Hann segir
að það hafi ekki verið erfið ákvörð-
un að koma aftur til Íslands, til að
taka við hálfkláraðri kirkju. „Ég
fór út að mennta mig með því
hugarfari að geta snúið aftur til Ís-
lands og orðið þar að einhverju
gagni. Sjálfsagt hafa mér staðið all-
ar dyr opnar eftir námið, og eftir
að hafa leyst af einn þekktasta org-
anista Þýskalands á meðan hann
tók sér ársleyfi frá aðalkirkju mót-
mælenda í miðborg Düsseldorf.
Hvarflaði samt aldrei annað að mér
en að flytja aftur til Íslands.“
Hörður hefur heldur ekki verið
einn að verki og hefur kona hans,
Inga Rós Ingólfsdóttir, verið helsti
samverkamaður hans við kirkjuna.
Í síðustu viku lét Inga Rós af störf-
um hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands,
þar sem hún hefur verið sellóleikari
í 35 ár, en undanfarin 20 ár hefur
„Trekk í trekk stend ég mig
að því að fá gæsahúð af hrifningu“
Hörður segir erfiðara að halda utan um starfsemi kórs í dag, á tímum snjallsíma og internets,
en árið 1982 þegar Mótettukórinn var stofnaður, enda margt sem keppir um athygli kórfélaga
Kórinn fagnar 35 ára afmæli í ár og flytur mergjaða H-moll messu Bachs um næstu helgi
Morgunblaðið/Golli
Metnaður Hörður Áskelsson fór strax af stað með miklum látum, nýtekinn við stöðu organista og kórstjóra fyrir 35 árum. „Ég heyrði það út undan mér að sumum kollegum mínum þætti þetta
helst til hrokafullt uppátæki hjá mér, og áttu von á að þessi ungi gikkur myndi fljótt renna á rassinn.“ Hörður kampakátur með meðlimum Mótettukórsins á æfingu fyrr í mánuðinum.
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
Poulsen ehf. | Skeifan 2 | IS-108 Reykjavík | 530 5900 | poulsen.is
BREMSUHLUTIR
MINTEX