Morgunblaðið - 06.06.2017, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2017
„Sitjandi ballerína“ nefnist verk
eftir bandaríska myndlistarmann-
inn Jeff Koons sem afhjúpað var
fyrir skömmu fyrir framan
Rockefeller-miðstöðina í New
York. Ballerínan er þriðja verk
Koons sem sett er upp á þessum
stað á síðustu 25 árum. Um er að
ræða næstum 14 metra hæða upp-
blásna ballerínu, sem byggir á
styttu úr gljáfægðu
stáli sem myndlistar-
maðurinn gerði 2015.
Skömmu eftir að
verkið var afhjúpað
benti Kitty Jackson,
blaðamaður lista-
tímaritsins Art Dep-
endence á hversu mikil
líkindi eru milli upp-
blásnu ballerínu Ko-
ons og 19 cm hárr-
ar postulínsstyttu sem nefnist
„Ballerína Lenochka“ eftir úkra-
ínsku listakonuna Oksana
Zhnikrup, sem lést 1993 rúmlega
sextug að aldri.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum eru ballerínurnar eins
klæddar í bláum tútúpilsum, með
bláan borða utan um hátt tagl í
ljósu hári. Þær sitja í sömu stellingu
á eins skreyttum kollum.
Samkvæmt frétt Art Dependence
hafa talsmenn Gagosian Gallery,
sem gæta hagsmuna Koons, ekki
viljað tjá sig um líkindi verk-
anna. Þetta er þó ekki í fyrsta
sinn sem Koons er sakaður um
að brjóta höfundarrétt,
en í mars komst fransk-
ur dómstóll að þeirri nið-
urstöðu að Koons hefði
brotið lög með því að gera
skúlptúr sem líkist mjög ljós-
mynd frá 1975 eftir Jean-
François Bauret.
AFP
Sakaður um að brjóta höf-
undarrétt vegna ballerínu
Stjórn Starfslaunasjóðs sjálfstætt
starfandi fræðimanna lauk nýverið
úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2017.
Samkvæmt upplýsingum frá sjóðn-
um bárust alls 54 umsóknir og hlutu
19 sjálfstætt starfandi fræðimenn
styrki úr sjóðnum eða um 35% um-
sækjenda. Sótt var um samtals 414
mánuði eða ríflega 153 milljónir kr.
Rúmlega 44 milljónum ísl. kr. var
úthlutað í styrki eða tæplega 29%
umbeðinnar upphæðar. Konur sóttu
um 22 styrki og karlar um 32 styrki.
Konur sóttu um laun í 183 mánuði
og karlar í 231 mánuð, en mánaðar-
launin nema 370 þús. kr. Alls hlutu
12 karlar starfslaun að upphæð
rúmlega 24 milljónir eða í 66 mán-
uði. Úthlutunarhlutfall karla vegna
starfslauna var því 29%. Alls hlutu
sjö konur starfslaun að upphæð
tæplega 20 milljónir eða í 54 mánuði.
Úthlutunarhlutfall kvenna var því
30%.
„Stjórn sjóðsins mat umsóknir
eftir gæðum þeirra og efnistökum:
Greiningu á stöðu þekkingar, mark-
miðs, nýnæmis, frumleika og verk-
áætlunar. Tekið var tillit til líklegrar
birtingar niðurstaðna til gagns fyrir
almenning og fræðasamfélag,“ segir
í tilkynningu frá Rannís og tekið
fram að hafna hafi þurft mörgum
styrkhæfum umsóknum.
Sjö umsækjendur hlutu starfs-
laun að upphæð 3.330.000 ísl. kr.
hver. Þetta eru Anna Jóhannsdóttir
fyrir Landskilningur. Um nátt-
úruskilning, samfélag og landslags-
myndlist á Íslandi; Arngrímur Ví-
dalín Stefánsson fyrir Grettis saga:
Hugmyndir, áhrif, kenningar; Guð-
rún Ingólfsdóttir fyrir Sjálfsmynd
19. aldar skáldkvenna og glíman við
hefðina; Magnús Þór Þorbergsson
19 sjálfstætt starf-
andi fræðimenn
hljóta styrk til starfa
Páll Baldvin
Baldvinsson
Magnús Þór
Þorbergsson
Rúmlega 44 milljón-
um króna úthlutað
Ólína Kjerúlf
Þorvarðardóttir
Anna
Jóhannsdóttir
fyrir Íslensk leiklist í Vesturheimi:
Sviðsetningar sjálfsmyndar og þró-
un tungunnar á leiksviði meðal ís-
lenskra innflytjenda í Norður-
Ameríku; Ólína Kjerúlf Þorvarð-
ardóttir fyrir Húslækningar og
heimaráð. Íslenskar alþýðu- og nátt-
úrulækningar í þjóðtrú og vísindum;
Sigríður Matthíasdóttir fyrir Rann-
sókn á ferð Pálínu S. Guðmunds-
dóttur Ísfeld (1864-1935) til Vest-
urheims út frá sjálfsævisögu hennar
og Vilhelm Vilhelmsson fyrir Græn-
landsdvöl Rannveigar H. Líndal,
1921-1923. Sjö umsækjendur hlutu
starfslaun að upphæð 2.220.000 ísl.
kr. hver. Meðal þeirra eru Arndís S.
Árnadóttir fyrir Sögu Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1939-1999;
Páll Baldvin Baldvinsson fyrir Síld-
arævintýrið og Viðar Hreinsson fyr-
ir Náttúrur og fornar frásagnir. Um
náttúru- og umhverfissýn í mótun
íslenskra miðaldafrásagna. Fimm
umsækjendur hlutu starfslaun að
upphæð 1.110.000 ísl. kr. hver.
Postulín Stytta
eftir Zhnikrup.
Uppblásin Ball-
erína Koons er fyr-
ir framan Rocke-
feller-miðstöðina.
Genius
Myndin fjallar um ævi Max
Perkins þegar hann vann
sem ritstjóri Scribner. Þar
sem hann fór yfir verk höf-
unda á borð við Thomas
Wolfe, Ernest Hemingway, F.
Scott Fitzgerald og annarra.
Metacritic 56/100
IMDb 6,5/10
Bíó Paradís 17.30
Mýrin
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 20.00
Hrútar
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.00
Embrace of the
Serpent
Metacritic 82/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 22.30
Lion
Metacritic 69/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 21.45
The Shack 12
Metacritic 32/100
IMDb 6,5/10
Bíó Paradís 20.00
Ég man þig 16
Ungt fólk sem er að gera
upp hús á Hesteyri um miðj-
an vetur fer að gruna að þau
séu ekki einu gestirnir í
þessu eyðiþorpi.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.20
Smárabíó 17.00, 17.30,
19.30, 20.00, 22.30
Háskólabíó 18.00, 20.30,
21.10
Borgarbíó Akureyri 17.50,
20.00
Guardians of the
Galaxy Vol. 2 12
Útverðir alheimsins halda
áfram að ferðast um alheim-
inn. Þau þurfa að halda hóp-
inn og leysa ráðgátuna um
foreldra Peter Quill.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.15,
20.00, 22.55
Sambíóin Egilshöll 17.00,
19.50
King Arthur: Legend
of the Sword 12
Hinn ungi Arthur er á hlaup-
um eftir götum Lund-
únaborgar
Metacritic40/100
IMDb7,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.45
Sambíóin Egilshöll 22.30
Alien: Covenant 16
Áhöfnin á Covenant geim-
skipinu uppgötvar áður
óþekkta paradís. Fyrr en var-
ir komast meðlimir hennar
að því að hér er í raun og
veru mjög dimm og drunga-
leg veröld þar sem hinn vél-
ræni David hefur komið sér
fyrir.
Metacritic 65/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 19.50, 22.30
Háskólabíó 18.00, 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Snatched 12
Þegar kærastinn Emily
sparkar henni ákveður hún
að fá varkára móður sína
með sér í frí til Ekvador.
Metacritic 47/100
IMDb 2,1/10
Smárabíó 17.40
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 22.20
Spark: A Space Tail Apinn Spark og vinir hans
Chunk og Vix ætla sér að ná
aftur tökum á plánetunni
Bana - Ríki sem hefur verið
hertekið af illmenninu
Zhong.
Metacritic 22/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Heiða
Hjartnæm kvikmynd um
Heiðu, sem býr hjá afa sín-
um í Svissnesku Ölpunum.
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 17.30
Smárabíó 15.15
Borgarbíó Akureyri 17.50
Stubbur stjóri Sjö ára drengur verður af-
brýðisamur út í ofvitann, litla
bróður sinn.
Metacritic 50/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 17.30
Smárabíó 15.10
Háskólabíó 17.50
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 17.30
Everybody Wants
Some!!
Bíó Paradís 19.30
Knight of Cups
Bíó Paradís 17.00
Wonder Woman
Herkonan Diana, prinsessa
Amazonanna, yfirgefur heimili
sitt í leit að sínum réttu örlög-
um og uppgötvar krafta sína.
Metacritic 79/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
20.00, 22.55
Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.40
Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.20, 22.15
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.55
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.55
Jack Sparrow skipstjóri á á brattann að sækja
enn á ný þegar illvígir draugar, undir stjórn
erkióvinar hans Salazar skipstjóra, sleppa úr
þríhyrningi djöfulsins, ákveðnir í að drepa
hvern einasta sjóræningja á sjó ... þar á meðal
hann.
Metacritic 47/100
IMDb 8,5/10
Laugarásbíó 20.00, 22.40
Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.15, 20.00, 22.45
Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.30
Sambíóin Kringlunni 16.30, 19.15, 22.00
Sambíóin Akureyri 17.15, 22.30
Sambíóin Keflavík 17.15, 22.30
Pirates of the Caribbean:
Salazar’s Revenge 12
Baywatch
Mitch Buchannon, sem lendir upp á
kant við nýliðann Matt Brody. Þeir
neyðast þó til að starfa saman.
Metacritic 37/100
IMDb 5,6/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00
Smárabíó 17.15, 19.50, 22.00, 22.15
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna