Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 40

Morgunblaðið - 06.06.2017, Side 40
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2017  Tónlistarkonan Ösp Eldjárn heldur útgáfutónleika í dag, 6. júní, kl. 21 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tilefnið er út- gáfa fyrstu sólóplötu hennar, Tales from a poplar tree. Tónlistarmenn- irnir Örn Eldjárn, Helga Ragnars- dóttir, Hrafnhildur Marta Guðmunds- dóttir og Guðbjartur Hákonarson leika með Ösp á tónleikunum. Ösp er nýflutt aftur til Íslands eftir fimm ára dvöl í Lundúnum, þar sem hún starf- aði sem tónlistarmaður auk þess að vera tónlistarkennari. Plata Aspar var tekin upp í Café Music Studios, en þar hafa þekktir tónlistarmenn á borð við Brian Eno og Jon Hopkins unnið að sinni tónlist. Platan var m.a. fjármögnuð á hópfjármögnunarsíð- unni Karolinafund. Platan kemur í verslanir í dag en er þegar komin út á netinu. Þess má einnig geta að Ösp gaf fyrir stuttu út fyrsta tónlistar- myndband sitt, við lagið „Travelling Man“, og er það samansett úr göml- um myndskeiðum sem foreldrar hennar tóku í fjallgöngu árið 1992. Ösp Eldjárn með út- gáfutónleika í kvöld  Sumartónleikaröð Freyjujazz hefst í Listasafni Íslands í dag kl. 12.15. Á fyrstu tónleikunum kemur fram norski háfjallatrompetleikarinn Hildegunn Øiseth, sem einnig leikur á geitarhorn. Samkvæmt upplýsingum skipuleggjanda hefur Øiseth látið að sér kveða bæði á djass- og heimtónlistarsenunni. Øiseth hefur mikið ferðast um Afríku og Asíu og bjó um tíma í Suður- Afríku. Hildegunn Øiseth leikur á Freyjujazz Andri Rúnar Bjarnason tryggði Grindavík 1:0-sigur á KR í Frostaskjóli í gærkvöld í 6. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Grind- víkingar eru því eitt af þrem- ur efstu liðum deildar- innar nú þegar hlé hefur verið gert vegna lands- leiks Íslands og Króat- íu á sunnudag. KR- ingar eru í 7. sæti, sex stigum á eftir topp- liðunum. »2 Grindavík í hópi toppliðanna Íslendingar unnu samtals til 60 verðlauna á Smáþjóða- leikunum í San Marínó og átti sundfólkið stóran þátt í því. „Við erum að sjálf- sögðu ánægð með niðurstöðuna á heild- ina litið vegna þess að við lentum í þess- ari furðulegu at- burðarás á leiðinni,“ sagði Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari í sundi. » 8 Sundfólkið afar drjúgt í söfnun 60 verðlauna „Það var ótrúlega gott að fá að koma loksins inn á í leik um helgina,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, sem lék fyrsta leik sinn á árinu með liði sínu Portland Thorns um helgina. Dagný hefur glímt við flókin bakmeiðsli í vetur og um tíma var útlit fyrir að hún missti af EM í Hollandi, en hún er nú mætt til Ír- lands með landsliðinu. »1 Bakið betra og þungu fargi létt af Dagnýju Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Uppeldis- og menntunarfræðing- urinn Margrét Sigurðardóttir kynnti á dögunum meistaraverk- efni sitt á málþingi meistaranema við Menntavísindasvið. Verkefni Margrétar gekk út á að kanna áhrif þess að láta börn lesa fyrir hund einu sinni í viku. „Ég heyrði fyrst af þessu fyrir fjórum árum þar sem börn mættu og lásu fyrir hund, ég hafði aldri heyrt af slíkri rannsókn áður. Í framhaldinu ákvað ég að gera þessa rannsókn. Rannsökuð voru börn sem höfðu lítinn sem engan áhuga á lestri og glímdu við smávægileg vandamál eins og ADHD,“ segir Margrét. Í rannsókninni voru notaðir fjórir krakkar og fjórir hundar, hvert barn var með sinn hund. Verkefnið var samstarfsverkefni milli skóla og félagsmiðstöðva og var framkvæmt á þriggja mánaða tímabili. Einu sinni í viku, 40 mín- útur í senn, fór barnið yfir í fé- lagsmiðstöð skólans þar sem það las fyrir hundinn. Hundur veitir ómælda athygli Margrét telur að með því að láta börn lesa fyrir hund myndist nánd sem ekki sé endilega hugað nægilega að í náminu. „Það sem er öðruvísi við þetta er að hund- urinn sýnir þeim ómælda athygli. Þau eru aldrei stoppuð á meðan þau lesa. Til að mynda þegar þau lenda á erfiðu orði er orðið ekki botnað fyrir þau eins og oft er gert þegar þau lesa fyrir full- orðna; hundurinn hlustar sama hvað gerist og truflar ekki. Þegar börn lenda síðan á erfiðu orði gefst þeim kostur á að spyrja kennarann, sem aðstoðar þau við að útskýra orðið fyrir hundinum. Með þessu móti er barnið aldrei leiðrétt en í staðinn kennir það hundinum, það veitir börnunum vellíðan,“ segir Margrét og bætir við að hugsanlega þurfi að huga að meiri nánd í námi barna. Niðurstöður úr rannsókn- inni sýndu að áhugi á lestri jókst til muna og krakk- arnir áttu auðveldara með samskipti. „Lesskilningur jókst hjá helmingi barnanna auk þess sem áhuginn á lestri jókst töluvert mikið. Svo dæmi sé tekið var barn í rann- sókninni sem var með mikið vesen og læti í skólanum, hann var algjörlega til friðs hjá okkur. Það var sá krakki sem las hvað lengst af öllum, í 30 mínútur án þess að stoppa,“ sagði Margrét. Hundalestur sem lokaverkefni  Rannsakaði áhrif þess að láta börn lesa fyrir hunda Lestur Börnin lásu fyrir hundinn einu sinni í viku, sem virtist hafa jákvæð áhrif á lesskilning og áhuga. Margrét bendir á að hundar veiti krökkunum nánd og vellíðan, mörg dæmi séu um að gælu- dýr geti aukið lífsgæði fólks. Einungis það að vera í sama herbergi og gæludýr getur haft ein- staklega róandi áhrif. Þegar fólk horfir á gælu- dýrið sitt losar það um oxýtósín, sem fyllir okk- ur af gleðitilfinningu. Auk þess dregur það úr framleiðslu á streituhormónum. Hermaður sem þjáðist af áfallastreituröskun gat aldrei farið út úr húsi án eiginkonu sinnar. Honum var ráðlagt að fá sér hund, og innan viku var hann farinn að fara allra sinna ferða án eiginkonunnar en alltaf með hundinn sér við hlið. GÆLUDÝR GETA MINNKAÐ STREITU Ýmsir kostir dýra VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Skotárás í Orlando 2. „Af hverju leyfirðu honum...“ 3. James McMullen talinn meðal... 4. Best klæddu karlar landsins »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á miðvikudag Norðlæg átt, 5-13 m/s. Dálítil rigning N- og A-lands og jafnvel slydda til fjalla, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 3 til 12 stig, mildast á Suðurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægari en í gær. Skýjað að mestu og dá- lítil væta norðantil og jafnvel slydda til fjalla, en þurrt og bjart að mestu suðvestan- og vestanlands. Hiti 4 til 13 stig. VEÐURÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.