Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.6. 2017 Lávarður bókanna stundaði ekki bóknám sjálfur en lauk þó grunnskólanámi auk þess að vera með meirapróf. Nú er hann kominn á sex- tugsaldur og situr á skóla- bekk til að bæta við sig menntun. Þrátt fyrir að hafa ekki margar prófgráður upp á vasann er Gutierrez þó lík- lega betur lesinn en margir langskólagengnir auk þess sem hann hefur aðstoðað ófá börn við skólanám. Á tveimur áratugum hefursorphirðirinn Jose AlbertoGutierrez safnað yfir 25 þúsund bókum sem ella hefðu lent í ruslinu. Eftir að bókasöfnun Gutier- rez spurðist út fyrir um fimmtán ár- um síðan hófu honum að berast bókagjafir og nú rekur hann ansi myndarlegt bókasafn út frá heimili sínu í Nueva Gloria hverfinu í Bó- gótá. „Ég tók eftir því að fólk var að henda bókum í ruslið svo ég fór að hirða þær,“ segir hin 54 ára gamli Gutierrez í samtali við AFP frétta- stofuna um upphaf bókasöfnunar sinnar. Gutierrez kláraði aðeins grunn- skólapróf en hefur nú fengið við- urnefnið „bókalávarðurinn“ í heima- landi sínu fyrir að hafa tekist að koma upp veglegu safni bóka af ýmsu tagi gegnum starf sitt við sorphirðu í Bógótá. Bókasafnið hefur í gegnum tíðina komið sér vel fyrir skólakrakkana í hverfinu hans þar sem bækur hafa oft verið af skornum skammti. For- eldrar hafa því oft getað leitað til hans þegar börn þeirra eiga að lesa tiltekin bókmenntaverk fyrir skól- ann og fengið lánað úr safninu. Bókasafnið sem annars hefði far- ið í ruslið hefur að geyma klassískar perlur á borð við Litla prinsinn, Hómerskviður og Veröld Soffíu. Auk þess leynist í safninu fjöldi bóka eftir kólumbíska höfundinn Gabriel Garcia Marquez. Þótt bæk- urnar komi vissulega úr ruslinu eru þær alls ekkert rusl. Boðið á bókamessur Heil hæð í húsi Gutierrez er nú full af bókum og hann segist glaður að geta aðstoðað börn við að nálgast bækur sem annars væri erfitt að komast yfir. „Það var skortur á bókum í okkar hverfi svo ég hef reynt að hjálpa eins og ég get,“ seg- ir sorphirðirinn en árið 2000 fór hann þá leið að opna bókasafnið formlega fyrir fólk úr hverfinu. Ekkert gjald er tekið fyrir útlán bóka og sjálfboðaliðar starfa við safnið. Vanti eitthvað uppá til að fjármagna reksturinn greiðir Gu- tierrez það úr eigin vasa. Auk bók- anna sem fundist hafa í ruslinu hafa safninu borist bókagjafir víða að. Fjölskyldunni hefur meira að segja verið boðið að sækja bókamessur víða um landið en eiginkonan, Luz Mery Gutierrez, og börn þeirra þrjú takan virkan þátt í utanumhaldi bóksafnsins sem upphaflega kom uppúr ruslatunnum borgarinnar. Vegna hins mikla fjölda bóka hafði safnið nær sprengt utan af sér húsnæðið. Fjölskyldan brá því á það ráð að leggjast í ferðalög með hið gríðarstóra bókasafn og fer nú reglulega um landið til að gefa fá- tæku fólki bækur þar sem mest þörf er á. „Það var mamma sem gerði mig upplýstan um mikilvægi bóka,“ seg- ir Gutierrez en hún las gjarnan fyr- ir hann þegar hann var lítill og hann þakkar henni fyrir ástríðu sína fyrir bókum og vönduðum bók- menntum. Bækur fyrir byssur Fjölskyldan hefur heimsótt mörg fátækrahverfi og sveitasamfélög í Kólumbíu á síðustu árum og gefið bækur. Safninu berast nú ótal bæk- ur og segir fjölskyldan að því fleiri bækur sem þau gefi, því fleiri bæk- ur berist. Óskir um bókagjafir berast víða að og bækur úr þessu merkilega safni hafa jafnvel nýst við að stilla til friðar ef svo má segja. Nýverið kom ósk um bækur frá einum af meðlimum skæruliða- hreyfingarinnar FARC en hreyf- ingin skrifaði á síðasta ári undir vopnahlé við forseta Kólumbíu. Í kjölfar friðarsamninganna taldi einn meðlimurinn rétt að setja sig í samband við bókalávarðinn og ósk- aði eftir að fá bækur til að hjálpa fyrrverandi vígamönnum að mennt- ast og aðlagast nýju lífi, en alls eru meðlimir hreyfingarinnar um sjö þúsund. „Bækur breyttu mér og ég held að bækur séu tákn um von fyrir þessa hópa,“ segir Gutierrez sem varð við beiðni FARC-liðans og sendi bækur í þeirri von að það myndi auðvelda umbreytingu manna, sem hafa varið mörgum ár- um í að berjast með byssum, yfir í venjulegt líf. „Bækur eru tákn um frið.“ Maðurinn sem bjargar bókum Jose Alberto Gutierrez er sorphirðir í Bógótá, höfuðborg Kólumbíu. Fyrir 20 árum fann hann eintak af bókinni Anna Karenina eftir Lev Tolstoj í sorpinu og líf hans tók nýja stefnu. AFP Jose Alberto Gutierrez hefur samviskusamlega tínt heillegar bækur úr ruslinu í tvo áratugi og nú hjálpar hann víga- mönnum að skipta byssum út fyrir bækur. Aðgangur að bókasafni hans er ókeypis og hann gefur líka mikið af bókum. Vel lesinn ’ Það var skortur á bókum í okkar hverfi svo ég hef reynt að hjálpa eins og ég get. Jose Alberto Guierrez, sorphirðir í Bógótá ERLENT EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is ARGENTÍNA MENDOZAVarnarmaður knattspyrnuliðs viðurkenndi í vikunni að hafa stungið mótherja sína nokkrum sinnum með nál í leik, til að gera þeim lífið leitt. Hann leikur með smáliði Pacifico sem mætti Estudiantes úr efstu deild í bikar- keppninni og eftir óvæntan sigur gortaði hann af athæfinu í útvarps- viðtali. Sagði leikmenn verða að sýna öll möguleg klókindi til að knýja fram sigur. Þetta þykir mikið hneyksli og forseti Pacifico segir að leikmaðurinn verði rekinn frá félaginu! FRAKKLAND PARÍSTvær litlar vatnslitamyndir úr sögunni Litla prinsinum, eftir Frakkann Antoine de Saint- Exupery, seldust fyrir liðlega hálfa milljón evra á uppboði í París á miðvikudaginn. Það er andvirði tæpra 60 milljóna króna. Bókin, sem mörgum þykir mikið til koma, hefur alls verið seld í 145 milljón- um eintaka og þýdd á 270 tungumál. Hún kom fyrst út 1943. HONG KONG Rúmir 660.000 dollarar – tæpar 70 milljónir íslenskra króna – duga víða til að kaupa snoturt hús. Ekki er það svo gott í Hong Kong, en upphæðin hefur þó dugað þar til að kaupa litla íbúð. Markaðurinn er hins vegar orðinn svo galinn, skv. fréttum, að maður nokkur varði þessari upphæð á dögunum í að kaupa sér bílastæði í kjallara íbúðabyggingar. Kaupandinn er sagður forstjóri fjár- festingafélags í Hong Kong en þar á bæ neituðu menn að tjá sig um fréttirnar. BANDARÍKIN Skondin niðurstaða kom út úr hluta könnunar sem Nýsköpunarmið- stöð fyrir mjólkurvörur í Bandaríkjunum lét gera í apríl í tilefni Alþjóða mjólkurdagsins, sem haldinn var 1. júní. Liðlega þúsund manns, 18 ára og eldri, tóku þátt og meðal þess sem mesta athygli vakti var að 48% voru ekki viss um hvaðan kókómjólk væri upprunnin. En 7% þessa fullorðna fólks taldi sig hins vegar vita að kókómjólk kæmi úr brúnum kúm ...

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.