Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Side 22
Rabarbarinn er nú í blóma og mér finnst alltaf fyrstauppskeran best,“ segir Marentza og gefur blaða-manni dýrindis rabarbaradrykk. „Það er óendan-
lega hægt að nota rabarbara, eins og í salat, pæ og sultur.“
Margir fastagestir
Tuttugu ár eru liðin frá því að Marentza opnaði Flóruna.
„Þetta hefur vaxið af sjálfu sér. Ef maður stendur sig vel
þá spyrst það út og það er betra en nokkur auglýsing,“
segir hún.
Inni í gróðurhúsinu er notalegt að vera. Marentza segir
Flóruna ekki einungis vera veitingastað heldur einnig
plöntusafn. „Það eru margir sem fara héðan með góðar
hugmyndir, bæði hvað varðar mat og plöntur.“
Opið er frá maí og út september og er Flóran því sum-
arstaður. „Viðskiptavinir eru flestir Íslendingar og finnst
þeim gott að koma hingað af því þetta er aðeins út úr. Það
hefur alla tíð verið nóg að gera og margir bíða eftir að
maður opni 1. maí,“ segir hún og bætir við að margir
fastagestanna búi í nágrenninu.
Smurbrauðið alltaf vinsælt
Maturinn hjá Marentzu er ferskur og lífrænn og margt af
því sem boðið er upp á er ræktað á staðnum. Marentza
hefur líka gaman af því að skreyta réttina með ætum
blómum. Marentza segir matseðilinn fjölbreyttann og
eitthvað við allra hæfi. „Við erum alltaf með vegan súpu og
með smurbrauð dagsins, af því að það er mitt sérsvið. Svo
eru daglega þrjú salöt í boði og þar af er alltaf kjúklinga-
salat sem hefur verið á matseðlinum frá upphafi. Sumt
verður bara að fá að vera alltaf eins, líkt og með vöfflurnar
á Mokka. Svo er líka „pulled pork“ fyrir karlana og græn-
metisbökur ýmiskonar. Smurbrauðið er alveg svakalega
vinsælt ásamt kjúklingasalatinu,“ segir Marentza.
Marentza Poulsen
skreytir gjarnan matinn
með ætum blómum.
Morgunblaðið/Ásdís
Blómlegur matur
í tvo áratugi
Veitingastaðurinn Flóran í grasagarðinum í Laugardalnum er tutt-
ugu ára á árinu. Marentza Poulsen stendur þar enn vaktina og nýtur
þess að skapa nýja og fallega rétti úr lífrænu og fersku hráefni.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
FETAOSTSKREM
100 g fetaostur, ekki
í olíu
50 g rjómaostur
Hrærið vel saman
og smakkið til með
salti og pipar. Einn-
ig er gott að bæta
ferskum krydd-
jurtum saman við
eftir smekk.
BALSAMIK-
BAKAÐAR
RAUÐRÓFUR
1 rauðrófa
smá olía
smá balsamik
smá hunang
salt og pipar
ferskt rósmarín
Skrælið rauðróf-
una og skerið í bita.
Setjið olíu, balsam-
ikedik, smá hun-
ang, salt, pipar og
ferskt rósmarín í
eldfast mót. Setjið
rauðrófuna í mótið
og blandið vel sam-
an við olíublönduna
og bakið við 170°C
í 20 mínútur eða
þar til rauðrófan er
farin að mýkjast.
Fetaostskremi er
sprautað á brauð-
ið, rauðrófu-
sneiðum er raðað
fallega ofan á osta-
kremið og síðan
skreytt með dilli,
radísum og ætum
blómum, til dæmis
fjólum eða morg-
unfrú.
Smurbrauð með rauð-
rófum og fetaostskremi
MATUR Ef þú átt afgangs sósu er gott að hella henni í ísmolabakka og frysta.Þá er hægt að taka út smá í einu ef þú ætlar að fá þér miðnætursnarl.
Einn moli af sósu passar vel á brauðsneið með kjötáleggi og eggi.
Ísmolabakki nýtist vel
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.6. 2017
Rabarbaralímonaði
1,5 kg af rabarbara (fínskorinn)
1 l af vatni
3 sítrónur
sítrónubörkur af 3 sítrónum (í
bitum, ekki rifinn)
5 cm af engifer (skorið og rifið)
0,5 kg af sykri
Blandið saman vatni, sykri, sí-
trónu, sítrónuberki, rabarbara
og engifer. Hitið fram að suðu
og leyfið því að malla í 20 mín-
útur, þar til það tekur á sig fal-
legan bleikan lit. Sigtið í fín-
gerðu sigti og hitið aftur upp
að suðumarki. Leyfið því svo
að kólna, bætið við meiri sí-
trónu og sykri ef þörf er á.
Berið fram með sódavatni
og klaka.
2 skornar rabarbarastangir, skornar í
þunnar sneiðar
½ tsk af chili-flögum
½ bolli af vatni
2 msk af sykri
Blandið saman sykri, chili og
vatni. Hitið upp að suðu og leyfið
því að malla þangað til að það
breytist í sýróp.
Setjið rabarbara út í 30 sek og
takið svo upp úr og leyfið að þorna.
TAHINI-DRESSING
2 tsk tahini
4 tsk ólífuolía
1 tsk hunang
1 tsk sítrónusafi
salt og pipar
SALATIÐ
1 kúrbítur (þunnskorinn)
1 salathaus (baby gem)
rukóla-salat
radísa, skorið þunnt
mangó, skorið í fína strimla
pomegranate-fræ
sesam-fræ
pecan-hnetur, muldar
rabarbari (sjá að ofan)
Blandið rukóla-salati, „baby
gem“-salati og dressingu saman.
Hafið „baby gem“-salatið neðst
og blandið svo öllu hinu saman og
setjið yfir. Setjið að lokum hnet-
urnar og fræin og kannski smá
meiri dressingu.
Salat með rabarbara og
tahini-dressingu