Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Qupperneq 29
Götuhorn við Via Stabiane. hafa verið gerðar. Fiorelli varð sama ár einnig forstjóri Fornleifasafns Napolíborgar, en þangað voru fluttir verðmætustu munirnir frá Pompei. 2,5 milljónir ferðamanna til Pompei á ári Rústirnar í Pompei gefa fornleifafræðingum einstakt tækifæri til að rannsaka lifnaðarhætti hinna fornu róm- verja. Mikið af mósaík, veggmyndum, leirmunum og styttum hefur varðveist furðu vel. Búið er að grafa upp um 45 hektara af þeim 66 hekturum sem talið er að borg- in hafi verið þegar hún grófst undir, en áætlað er að íbú- ar hafi verið um 11.000 manns. Árlega flæða meira en tvær og hálf milljón ferðamanna um Pompei og fjölgar þeim sífellt. Stór hluti svæðisins er lokaður almenningi vegna verndunar og viðgerða. Rústirnar í Herculaneum og Stabiae eru einnig opnar fyrir ferðamenn. Undirritaður tók lestina frá Róm til Napoli Centrale, um tveggja tíma ferð. Í næstu byggingu við Napoli Cent- rale er Stazione Napoli Piazza Garibaldi, en þaðan legg- ur af stað héraðslestin Circumvesuviana sem gengur milli Napolí og Sorrento. Lestin sú var troðfull og stopp- ar víða, en stansar bæði við Herculaneum (Ercolano Scavi) og Pompei (Pompei Scavi). Dagsferð til Pompei er alveg sérstök upplifun, en 2 dagar væru betri. Fyrir þá sem hyggja á svona rústaskoðun er gott að hafa í huga að vera vel skóaður. Mósaíkmynd sem táknar orrustu Alexanders mikla við Dareius Persakonung. Hér er eftirmynd. Frummyndin er í fornleifasafn- inu í Napolí, Museo Archeologico Nazionale di Napoli. Granai del Foro, korngeymsla borgarinnar, hefur verið yfirbyggð og hýsir nú mikið af þeim lausamunum sem fundist hafa í rústunum. Horft eftir Via di Mercurio. Fremst er Arco di Caligola, sigurbogi til heiðurs hinum skelfilega keisara Kaligula sem ríkti á árunum 37-41. Í baðhúsinu Terme del Foro. Á veggjum voru myndir af sjávarlífverum, en þær eru verulega farnar að láta á sjá. Fólk sem grófst undir í gosinu skildi eftir holrúm í storknuðum gosefnunum þegar líkin eyddust í tímans rás. Giuseppe Fiorelli hóf að gera afsteypur með því að dæla gifsblöndu inn í holrúmin. Casa del Poeta Tragico. Í húsi hins harmþrungna skálds eru veggmyndir furðu heillegar eftir 2.000 ár. En allt liggur undir skemmdum eftir að raki og súrefni komst að listaverkunum. Horft í átt til eldfjallsins frá Via delle Scuole. Vesúvíus blasir ógnandi við í 8 km fjarlægð. Eftir hamfarirnar miklu árið 79 hefur gosið nokkrum sinnum, síðast 1944. 18.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 REYKJANESBÆ Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104 Full búð af NÝJUMVÖRUM Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.