Morgunblaðið - 07.07.2017, Síða 10
Samfélag við hungurmörk
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fornleifafræðingar ljúka í þessari viku uppgreftri
í fornum kirkjugarði við bæinn Keflavík í Hegra-
nesi í Skagafirði. Þetta er þriðja sumarið sem
rannsóknir þar fara fram, en á undanförnum ár-
um hefur verið grafið í þremur kirkjugörðum
heima við bæi í Skagafirði, auk þess sem um-
fangsminni rannsóknir hafa verið gerðar á öðrum
stöðum. Segja má að niðurstöður þessara rann-
sókna séu allar í sömu áttina, það er að á 11. öld
var ungbarnadauði var algengur, meðalaldur lág-
ur og erfiðisvinna hlutskipti flestra eins og sést á
miklum vöðvafestingum þeirra beinagrinda sem
fundist hafa. Tennur í beinagrindum sem fundist
hafa benda jafnframt til að fólk hafi stundum liðið
fæðuskort.
Hringlaga veggur og kirkja í miðju
„Mér hefur fundist þessi rannsókn mjög árang-
ursrík og hér í Keflavík hefur margt óvænt komið
fram,“ segir Guðný Zoëga, fornleifafræðingur hjá
Byggðasafni Skagafjarðar. Starf þetta er hluti af
Skagfirsku kirkju- og byggðasögurannsókninni
sem ýtt var úr vör árið 2015 sem þriggja ára sam-
starfsverkefni byggðasafnsins og UMASS-
háskóla í Boston í Bandaríkjunum. Rannsóknin
hefur að markmiði að kanna tengsl landnáms,
byggðaþróunar og kirkjusögu í Hegranesi og eru
styrktar af Fornminjasjóði og bandaríska rann-
sóknarráðinu.
Undir merkjum rannsóknarinnar hefur einnig
verið grafinn samtíða heimiliskirkjugarður á
Stóru-Seylu á Langholti en áratug fyrr hafði
sams konar garður fundist við framkvæmdir og
verið grafinn í Keldudal í Hegranesi. Á þessum
tveimur stöðum svo og í Keflavík eru megin-
drættirnir þó alltaf hinir sömu; innan hlaðins
hringlaga torfveggs er kirkjugarður 15-17 í þver-
mál og lítil kirkja í honum miðjum.
130 heimakirkjugarðar í Skagafirði
Öskulög og önnur kennimörk benda til þess að
jarðsett hafi verið í heimakirkjugörðunum í
Skagafirði frá því um árið 1000 fram yfir 1100.
Þegar þar var komið sögu lögðust kirkjugarðar
þessir, sem jafnvel voru á hverjum bæ, af og farið
var að jarðsetja látna í formlegum kirkjugörðum.
„Árið 1100 var heil öld liðin frá því kristni var lög-
tekin á Íslandi og kirkjan þar með orðin sterkari
stofnun í samfélaginu. Það væntanlega skýrir að
greftrun fluttist heiman frá bæjum,“ segir Guðný
Zoëga.
Alls eru heimakirkjugarðar í Skagafirði frá
fyrri öldum taldir vera um 130, en 15 af þeim hafa
verið rannsakaðir. Fimm ár eru síðan kirkjugarð-
urinn í Keflavík fannst, en það var þegar starfs-
menn RARIK voru að plægja niður jarðstreng í
heimatúninu. Í því túni sést líka djarfa fyrir útlín-
um víkingaaldarskála. Skálinn gæti tengst kirkju-
garðinum, sem í hafa fundist beinagrindur 39 ein-
staklinga. Talið er að sjö til viðbótar séu í
garðinum sem allur hefur verið skimaður með
jarðsjám en myndir úr þeim hafa skilað mörgu
áhugaverðu.
Afla upplýsinga um daglegt líf og heilsu
Af þeim beinagrindum sem fundist hafa í Kefla-
vík er helmingurinn af ungabörnum sem flest
náðu ekki eins árs aldri. Ungbarnadauðinn dreg-
ur meðalaldur fólks sem þar hvílir mjög niður, en
margir náðu þó sextugu eða urðu jafnvel eldri.
„Tennur og bein geta líka sagt okkur mikið um
líf fólks, í Skagafirði ráðum við af þeim að þetta
samfélag hafi stundum verið nærri hungur-
mörkum en að almennt hafi lífsskilyrði verið vel
viðunandi. Svo höfum við fundið ýmsar athyglis-
verðan grafarumbúnað. Til dæmis hafa steinar
verið lagðir til á margvíslegan hátt bæði ofan á og
í gröfum. Allt er þetta forvitnilegt með tilliti til
þess að við erum að afla frum upplýsinga um dag-
legt líf og heilsu fólks á 11. öld,“ segir Guðný sem
í Keflavík starfar með fjórum fornleifafræð-
ingum, tveimur íslenskum og tveimur Banda-
ríkjamönnum. Frekari rannsóknir hefjast svo í
næstu viku í Hegranesi og þá verða 20 manns við
störf.
Rannsaka kirkjugarð í Keflavík í Hegranesi í Skagafirði Tugir grafa frá 11.
öld Fæðuskortur og erfiði Skimað með jarðsjá Útlínur víkingaaldarskála
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hegranes Guðný Zoëga með þarfaþingið múrskeiðina og kirkjugarð, vettvang rannsóknar, í baksýn.
Rannsókn Margrét Hallmundsdóttir fornleifa-
fræðingur við beinagrind sem fannst í moldinni.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Poulsen ehf. | Skeifan 2 | IS-108 Reykjavík | 530 5900 | poulsen.is
BREMSUHLUTIR
MINTEX
Lögreglumaður hefur verið dæmd-
ur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hafa ráðist á fanga í fanga-
geymslu lögreglustöðvarinnar við
Hverfisgötu. Þetta kemur fram í
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Atvikið átti sér stað í maí á síðasta
ári og náðist á myndband. Lög-
reglumaðurinn er sakfelldur fyrir
að hafa farið offari í starfi og ekki
gætt lögmætra aðferða auk þess að
hafa ráðist á fangann og veitt hon-
um áverka. Atlagan var að mati hér-
aðsdóms tilefnislaus og ekkert í fari
fangans gaf tilefni til hennar. Fang-
inn var bundinn og varnarlaus í
höndum lögreglumannsins og á
myndbandi sést að hann reyndi ekki
að veita mótspyrnu á nokkurn hátt.
Lögreglumaður
dæmdur í fangelsi
Icelandair flutti 488 þúsund far-
þega í júnímánuði en það er 13%
aukning frá sama mánuði í fyrra.
Framboðsaukning nam 11% en auk
þess batnaði sætanýting fyrirtæk-
isins og var 85,4% samanborið við
83,7% í fyrra.
Þá fjölgaði farþegum Air Iceland
Connect (Flugfélags Íslands) um
9% en 33.145 farþegar ferðuðust
með félaginu í júní. Var sætanýting
svipuð og í fyrra eða um 67%.
Seldum gistinóttum félagsins
fjölgaði um 5% og voru rúmar
40.000. Á sama tíma fjölgaði fram-
boðnum gistinóttum um 11% og því
ljóst að herbergjanýting var minni
en í júní í fyrra.
Fluttu hálfa
milljón far-
þega í júní
Morgunblaðið/Ernir
Icelandair Betri sætanýting í júní.
Önnur vindmylla fyrirtækisins Bio-
kraft í Þykkvabæ brann til kaldra
kola í gær. Eldsupptök eru enn
ókunn en Steingrímur Erlingsson,
eigandi Biokraft, útilokar ekki að
eldingu hafi slegið niður í mótor-
húsið. Fyrir viku fór fram reglu-
bundin skoðun á vindmyllunum.
Steingrímur segir tjónið hlaupa á
tugum milljóna en hann er tryggð-
ar fyrir tjóni sem þessu. Þrjú ár eru
síðan myllurnar voru reistar, en
þær voru keyptar notaðar frá
Þýskalandi. agunnar@mbl.is
Útilokar ekki eldingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg