Morgunblaðið - 07.07.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
F
yrir okkur snýst þetta
rosalega mikið um að
gera íslenska landbún-
aðinum hærra undir
höfði. Okkur finnst við
vera svolítið aftarlega á merinni,
samanborið við sjávarútveginn,“
segir Hildur Þóra Magnúsdóttir
sem árið 2015 stofnaði skagfirska
sprotafyrirtækið Pure Natura sem
keppir um þessar mundir um
Embluverðlaunin í Kaupmannahöfn.
Um er að ræða matvælaverðlaun
sem bændasamtök á Norðurlönd-
unum standa að í samvinnu við nor-
rænu ráðherranefndina. Pure Nat-
ura keppir í flokknum
matvælafrumkvöðull Norður-
landanna 2017 en fyrirtækið fram-
leiðir hágæða fæðuunnin bætiefni og
matvæli úr íslensku hráefni, meðal
annars innmat og kirtlum úr ís-
lenskum lömbum, villtum jurtum og
grænmeti. En hvernig skyldi þetta
hafa byrjað?
„Ég sendi tillögu inn í hug-
myndasamkeppni um þurrkun og
nýtingu skjaldkirtla sláturdýra. Ég
vann þá keppni og þá kom fyrsti
styrkurinn. Í kjölfarið sótti ég um
og fékk fleiri styrki til þess að rann-
saka þetta viðfangsefni.“
Hildur fór síðar á námskeið hjá
Sigríði Ævarsdóttur og við það fóru
hjólin að snúast. „Ég fékk hana til
liðs við mig því hún hefur þekk-
inguna á bak við allar vörurnar og
býr til blöndurnar. Við lentum fyrst
á hindrun sem við komumst ekki yf-
ir varðandi hráefni þannig að við
stigum eitt skref aftur á bak og
hugsuðum upp á nýtt, hvernig við
Langar að nýta
skepnuna alla betur
Hildur Þóra Magnúsdóttir er eigandi sprotafyrirtækisins Pure Natura sem nú
keppir fyrir Íslands hönd um ein stærstu matvælaverðlaun Norðurlandanna,
Embluverðlaunin. Fyrirtækið framleiðir hágæða fæðuunnin bætiefni og matvæli
úr íslensku hráefni, meðal annars innmat úr íslenskum lömbum. Ekkert annað
fyrirtæki í Evrópu er með slíka starfsemi.
Frumkvöðull Hildur Þóra Magnúsdóttir er stofnandi fyrirtækisins.
Sauðfé Pure Natura framleiðir matvæli úr innmat úr íslenskum lömbum.
Listakonurnar Margrét Jónsdóttir
listmálari og Arna Gná Gunnarsdóttir
munu opna myndlistarsýninguna
Blóðbönd í Grafíksalnum, Tryggva-
götu 17, n.k laugardag 8. júlí. Á sýn-
ingunni verða sýnd málverk eftir þær
Margréti og Örnu sem unnin eru á
pappír og skúlptúra, unna úr mjúku
efni. Listakonurnar, sem starfa bæði
á Íslandi og í Frakklandi, vinna út frá
hefðum og gömlu handverki. Mun
sýningin standa yfir frá 8. júlí til 23.
júlí og verður opin þriðjudaga til
sunnudaga frá klukkan 14-18.
Frekari upplýsingar má finna á
Facebook-síðu sýningarinnar.
Málverk og skúlptúrar verða til sýnis í júlímánuði
Blóðbönd í
Grafíksalnum
Morgunblaðið/Kristinn
Listakona Arna Gná er önnur þeirra
sem mun sýna í Grafíksalnum.
Nýjar rannsóknir virðast benda til
þess að karlmenn sem eignast börn
síðar á lífsleiðinni eru líklegri til
þess að eignast gáfaða syni. Þetta
kemur fram á vef BBC.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar
kemur fram að synir eldri feðra
voru einbeittari og þóttu síður lík-
legir til þess að láta það angra sig
ef þeir féllu ekki inn í ákveðinn hóp.
Athygli vakti að aldur mæðra virtist
ekki skipta máli. Þá náðu niðurstöð-
urnar ekki yfir dætur eldri feðra.
Rannsóknin náði til 15 þúsund tví-
bura sem flestir voru 12 ára gamlir.
Horft var til greindarvísitölu þeirra,
getu til þess að einbeita sér og fé-
lagslegra þátta.
Allan Pacey, prófessor við háskól-
ann í Sheffeld, segir þó að fólk sem
ætli sér að eignast börn, eigi ekki
að bíða með það til þess að auka
líkurnar á því að eignast gáfuð
börn. „Það fylgir því viss áhætta að
bíða með barneignir. Aukin hætta á
fósturláti, erfiðleikar við að geta
barn, erfðagallar í börnum og fleira
slíkt,“ sagði Pacey.
Niðurstöður nýrrar breskrar rannsóknar
Eldri feður taldir líklegri
til að eignast gáfaða syni
Reuters
Faðir Woody Allen er einn af þeim sem hafa eignast börn seint á lífsleiðinni.
Sumar 2017
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Opið virka daga frá 10-18
Það tekur enga stund að rétta nágrönnum okkar
og vinum á Grænlandi hjálparhönd. Hringdu í
907 2003
og leggðu til 2.500 krónur í hjálparstarfið.
Söfnunarreikningur Hjálparstarfs kirkjunnar:
0334-26-056200, kennitala 450670-0499.