Morgunblaðið - 07.07.2017, Side 15

Morgunblaðið - 07.07.2017, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 2017 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ríkissaksóknari hefur lagt til við Jón Gunnarsson samgönguráð- herra að sekt fyrir að tala í farsíma undir stýri án þess að nota hand- frjálsan búnað verði áttfölduð; fari úr fimm þúsund krónum í 40 þús- und. Mjög áhugavert mál Samgönguráðherra var í gær spurður hvernig honum litist á til- lögu ríkissaksóknara: „Það er rétt, þetta erindi frá ríkissaksóknara hefur borist samgönguráðuneyt- inu,“ sagði Jón, „og nú er ég á leið- inni í ráðuneytið. Þetta er eitt af því sem ég mun skoða með mínu fólki nú á næstu dögum. Mér finnst þetta mjög áhugavert mál og eins og kemur fram í frétt- inni hjá ykkur í dag er munurinn á sektarupphæðunum hér og í þeim löndum Evrópu sem eru með hæstu sektirnar sláandi. Í Eistlandi tæpar 50 þúsund krónur en hér á landi fimm þúsund krónur. Það er örugglega tímabært að endurskoða þessa sektarupphæð, ekki síst í ljósi þess að hún hefur verið svo lengi óbreytt og er ekki talin virka í dag. Ég á ekki von á að afgreiðsla þessa máls í ráðuneytinu taki lang- an tíma,“ sagði samgönguráðherra. Spyrja hvar athyglin hafi verið Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri umferðardeildar lögregl- unnar, var í gær spurður hvort lög- reglan gæti gert farsíma upptæka og kannað notkunina ef ökumaður sem veldur slysi er grunaður um að hafa verið að tala í farsímann þeg- ar slysið varð: „Nei, við grípum ekki til svo rót- tækra aðgerða. Umferðardeild rannsakar ekki árekstra eða um- ferðarslys, heldur eru það lögreglu- stöðvarnar og lögreglufulltrúar þar sem fara með rannsókn mála. Vit- anlega spyrja lögreglumenn á vett- vangi hvar athygli ökumanna hafi verið þegar slysið varð. Sumir við- urkenna að hafa verið í símanum, en aðrir ekki,“ sagði Guðbrandur. „Forvarnargildi sektarinnar fyrir að tala í síma undir stýri án hand- frjáls búnaðar er nánast ekkert. Sektin þarf að vera það há að hún hafi einhver forvarnaráhrif,“ sagði Guðbrandur. Hann sagði að lögreglan hefði gert tillögur um hækkun þessara sekta og fleiri. „Mér sýnist sem ríkissaksóknari hafi horft til okkar tillögu þegar hún gerði tillögu sína til samgönguráðherra,“ sagði Guð- brandur. Tímabært að endurskoða sektina  Segir muninn á sektum hér vegna farsímanotkunar og í Evrópu sláandi Jón Gunnarsson Guðbrandur Sigurðsson Thinkstock Hætta Til stendur að hækka sekt fyrir notkun farsíma við akstur. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mlb.is Viðræður um sameiningu sveitar- félaga á Norðvesturlandi hefjast um miðjan mánuðinn að sögn Sig- ríðar Svavarsdóttur, forseta sveitarstjórnar sveitarfélagsins Skagafjarðar. „Málið er á því stigi núna að við ætlum að hefja form- legar viðræður við Skagabyggð um sameiningu og höfum boðið öllum sveitarfélögum á Norðvest- urlandi að koma inn í viðræð- urnar,“ segir Sigríður en tekin var ákvörðun á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í gær um að hefja formlegar viðræður en hingað til hafa farið fram óformlegar við- ræður milli Skagafjarðar og Skagabyggðar. „Enn sem komið er hefur aðeins Akrahreppur lýst yfir vilja til að taka þátt í umræðunum ásamt okkur og Skagabyggð en við von- um að fleiri sveitarfélög á svæðinu komi að viðræðunum.“ Blönduós alltaf til í viðræður Guðmundur Haukur Jak- obsson, oddviti byggðarráðs Blönduósbæjar, segir íbúa á Blönduósi alltaf tilbúna til við- ræðna um sameiningu en telur rétt að sveitarfélögin í Austur- Húnavatnssýslu ræði fyrst á sameiginlegum fundi um erindi Skagafjarðar. „Byggðarráðið er hlynnt samein- ingu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Það er að mínu mati bæði skynsamlegt og nauðsynlegt að fækka sveitarfélögum á svæðinu,“ segir Guðmundur og bendir á að bara í Austur-Húnavatnssýslu séu reknir þrír skólar, þrír leikskólar og sveitarstjórnarmenn séu alls 24 talsins. „Ef þetta væri fyrirtæki hugsa ég að menn væru fyrir lifandis löngu búnir að hagræða. Samein- ing þýðir hvort tveggja hagræð- ing en einnig styrking fyrir svæð- ið. Stærra og öflugra sveitarfélag er meira gildandi og betur í stakk búið til að takast á við erfið verkefni.“ Fyrr í þessum mánuði fjallaði Morgunblaðið um vægi landshluta eftir íbúafjölda og kom þar fram að hlutfall Vestfjarða af íbúafjölda landsins hefur lækkað úr 7,8% árið 1950 í 2% á þessu ári og að sama skapi hefur hlutfall Norðurlands vestra af íbúafjöldanum lækkað úr 7,2% 1950 í 2,1% árið 2017. Verðum að ákveða hvort sótt verður fram eða ekki Guðmundur segir lítið upp úr því að hafa að einblína á neikvæða þætti eins og fólksfækkun eða hlutfall íbúa svæðisins af heildar- íbúafjölda landsins. „Ég flutti hingað á Blönduós árið 2007 og rek mitt eigið fyr- irtæki. Sveitarfélagið er ekkert annað en fólkið sem býr hér og starfar. Við verðum að fara að ákveða hvort sótt verður fram eða ekki. Hvort við viljum við- halda byggð í smærri byggð- arlögum landsins. Sameining styrkir svæðið allt og gerir okkur mögulegt að byggja upp og gera okkur gildandi.“ Alls búa 7.156 einstaklingar á Norðurlandi vestra. Sveitarfélagið Skagafjörður er fjölmennasta sveitarfélag svæðisins með 3.932 íbúa en Skagabyggð það fámenn- asta með 101 íbúa. Á Blönduósi búa 866. Vilja sameina Norðurland vestra  Sveitarfélagið Skagafjörður býður öllum sveitarfélögum svæðisins til viðræðna um sameiningu Norðurland vestra - Sveitarfélög Íbúafjöldi Akrahreppur 196 Blönduósbær 866 Húnaþing vestra 1174 Húnavatnshreppur 408 Skagabyggð 101 Sveitarf. Skagafjörður 3.932 Sveitarf. Skagaströnd 479 Alls 7.156 Meta þarf betur viðhorf íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps til Hvammsvirkjunar að sögn Björg- vins Skafta Bjarnasonar, oddvita sveitarfélagsins. „Í matsskýrslu sem lögð var fram á síðasta fundi sveitar- stjórnar um áhrif Hvammsvirkj- unar á ferðaþjónustu, útivist, ásýnd og samfélag er niðurstaðan óverulega neikvæð með tilliti til áhrifa á ferðaþjónustu og útivist og talsvert neikvæð til áhrifa á landslag og ásýnd lands,“ segir Björgvin og bendir jafnframt á að spurningar um áhrif virkjun- arinnar hafi verið óeðlilega tengdar fyrirhugaðri brúarfram- kvæmd rétt hjá Árnesi. „Aðskilja verður annars vegar nauðsynlega brúarframkvæmd og hins vegar fyrirhugaða virkjunar- framkvæmd. Þó svo brúin komi eitthvað fyrr ef verður af virkj- unarframkvæmdum er ljóst að ein og sér eru áhrif hennar mjög jákvæð á ferðaþjónustu á svæð- inu, mannlíf og verslun. Það má ekki nota brúna til að hafa áhrif á afstöðu manna til virkjunar.“ Engar tekjur af virkjun Hvammsvirkjun verður efsta virkjunin í Neðri-Þjórsá og er áætlað að hún verði um 95 mega- vött. Fyrir eru sex virkjanir á vatnasvæði Tungnaár og Þjórsár. Björgvin segir mikilvægt að skoða vel áhrif virkjunarinnar á Skeiða- og Gnúpverjahrepp, sér- staklega í ljósi þess að sveitarfé- lagið nýtur engra tekna af virkj- uninni. „Virkjunin mun blasa við og hafa mikil áhrif á útsýni frá okk- ur séð en hefur minni áhrif á ná- granna okkar hinum megin við ána. Þar sem stöðvarhúsið verður austanmegin við ána renna allar tekjur til Rangárþings ytra.“ Í bókun sem samþykkt var samhljóða á síðasta fundi Skeiða- og Gnúpverjahrepps segir að það sé mat sveitarstjórnar að skoða betur mótvægisaðgerðir áður en lengra er haldið. Einnig segir að sveitarstjórnin telji ekki eðlilegt að leggja tilkomu brúar við virkj- anaáform til grundvallar í spurn- ingakönnun. vilhjalmur@mbl.is Endurmeta þarf áhrif virkjunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.