Víkurfréttir - 23.10.2003, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 43. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 23. OKTÓBER 2003 I 19
Íkvöld kl. 20 mun BöðvarGunnarsson beita sér fyrirstofnun víkingafélags í
Reykjanesbæ. Stofnfundur
verður haldinn á Paddy´s
kránni við Hafnargötu 38.kl.
20.00 og eru allir áhugamenn
um víkinga hvattir til að mæta.
Böðvar hefur gengið með þá
hugmynd um tíma að stofna vík-
ingafélag sem myndi hafa að
markmiði að viðhalda handverki
landnámsmanna. Svipað félag er
til í Hafnrf irði og heitir
Rimmugýgur og er þekkt fyrir að
koma að Víkingahátíðum þar í
bæ og sýna bardagalist. Annað
sambærilegt félag er á Akranesi
og heitir Hringhorni og leggur
áherslur á leiki.
Hugmynd Böðvars að sérein-
kennum víkingafélagsins hér
yrði um handverk. Böðvar býr
sjálfur á Berginu, er Ásatrúar og
hefur unnið við handverk um
nokkra mánaða skeið þar sem
hann smíðar ýmsa gripi bæði úr
tré og járni. Böðvar er fæddur í
Keflavík en búið annars staðar
um tíma er þó alltaf uðurnesja-
maður o og hér liggja rætur hans.
Hann er barnabarn Böðvars Páls-
sonar og Önnu Magneu Berg-
mann Böðvar bindur vonir við
að íbúar Reykjanesbæjar og aðrir
Suðurnesjamenn sem áhuga hafa
á víkingum og víkingamenningu
eða hafa stundað handverk svip-
að því sem gert var við landnám
eða hefur sérþekkingu á sögu
landnáms komi á fundinn eða
hafi samband við hann í s. 868-
8989.
HMG
Ætlar að stofna Víkingafélag í Reykjanesbæ
Rannsóknardeild lögregl-unnar í Keflavík hefurverið með til rannsókn-
ar dvalar-og atvinnuleyfi 6 lit-
háa sem hafa starfað hér á
landi í gegnum íslenskan at-
vinnumiðlara sem mun reka
fyrirtæki sitt bæði hér á landi
og í Danmörku.
Litháarnir höfðu fengið útgefið
dvalar-og atvinnuleyfi í Dan-
mörku sem rann út í sumar. Þeir
komu hingað til lands í bygging-
arvinnu hjá byggingarverktaka í
Reykjanesbæ í gegnum þennan
atvinnumiðlara. Málið telst
fullrannsakað og verður sent út-
lendingastofnun til afgreiðslu
hvað varðar litháana. Þáttur ís-
lendinganna verður sendur til af-
greiðslu til Sýslumannsins í
Keflavík.
Dvalar- og
atvinnuleyfi
til rannsóknar
Bíll inn í garð við Hringbraut
Árekstur varð á mótum Hringbrautar og Aðalgötu í síðustu viku þar sem tvær bifreiðir rákust saman og hafnaði önn-
ur þeirra inn í Garði þar sem hún endaði á húsvegg. Talið er að bifreiðin sem endaði inn í garðinum hafi farið yfir
gatnamótin á móti rauðu ljósi og ekið í veg fyrir hina bifreiðina. Lítilsháttar meiðsl urðu á ökumönnum bifreiðanna,
en þeir voru einir í bifreiðunum. Að sögn lögreglumanna á vettvangi hefur það gerst nokkrum sinnum að bifreiðar
endi í þessum húsgarði, en í vor endaði bifreið síðast inn í garðinum.
➤ U M F E R Ð I N
Auglýsingasíminn er 421 0000
VF 43. tbl. 2003 hbb 22.10.2003 13:07 Page 19