Víkurfréttir - 23.10.2003, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þ jóðleikhúsið frumflyturnýtt verk, Græna land-ið, eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson laugardaginn 25. októ-
ber 2003 kl. 20:00 í Frumleik-
húsinu í Reykjanesbæ.
Leikritið er samið fyrir þau
Gunnar Eyjólfsson sem er nú
Listamaður Reykjanesbæjar og
Kristbjörgu Kjeld en auk þeirra
leikur Björn Thors í sýningunni.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son.
Leiksýningin og framkvæmd
hennar er unnin í samstarfi við
Leikfélag Keflavíkur og Reykja-
nesbæ. Gert er ráð fyrir nokkrum
sýningum í Frumleikhúsinu þan-
nig að öllum Suðurnesjabúum
gefist kostur á að sjá sýninguna
en eftir það verður hún flutt á
Litla svið Þjóðleikhússins.
Kári Sólmundarson byggingar-
meistari reisti á sinni tíð hús sem
teygðu sig allt upp til skýjanna.
Nú situr hann einn eftir, hans
nánustu eru horfnir honum, hver
á sinn hátt, og jafnvel minning-
arnar eru að hverfa. Nema þær
sárustu, þær sitja lengst eftir.
Heimilishjálpin Lilja, hressileg
kona á besta aldri, reynist óvænt-
ur bandamaður og vinur. Er ein-
hver von til að öðlast fyrirgefn-
ingu áður en allt hverfur? Áhrifa-
mikið verk um hlutskipti þeirra
sem glata minningunum löngu
áður en lífið hverfur þeim.
Ólafur Haukur Símonarson er
eitt mikilvirkasta og vinsælasta
leikskáld Íslendinga en hann hef-
ur einnig sent frá sér ljóðabækur,
smásögur og skáldsögur, skrifað
útvarps-, sjónvarps- og kvik-
myndahandrit, gefið út hljóm-
plötur með eigin lögum og söng-
textum og þýtt bækur, leikrit og
kvikmyndir.
Leikrit Ólafs Hauks hafa verið
sýnd víða en fyrsta leikrit hans
sem tekið var til sýninga í Þjóð-
leikhúsinu var þríleikurinn Milli
skinns og hörunds sem sýndur
var árið 1984. Í kjölfarið fylgdu
Bílaverkstæði Badda, Hafið,
Gauragangur, Þrek og tár, Kenn-
arar óskast og Meiri gauragang-
ur. Síðasta verk Ólafs sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu var Viktoría
og Georg, sem sýnt var á síðasta
leikári. Hafið hlaut Menningar-
verðlaun DV 1993, var tilnefnt til
Norrænu leikskáldaverðlaunanna
og valið til sýningar á leiklistar-
hátíðinni í Bonn. Ólafur Haukur
hefur skrifað handrit tveggja
kvikmynda, sem báðar byggja á
leikritum eftir hann, kvikmynd-
irnar Ryð og Hafið.
Tónlist samdi Gunnar Þórðarson,
lýsingu hannaði Ásmundur
Karlsson, höfundur leikmyndar
er Gretar Reynisson og leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson.
Græna landið
frumsýnt í
Frumleikhúsinu
➤ L E I K L I S T
➤ S K Ó L A M Á L Í R E Y K J A N E S B Æ
Árni Sigfússon bæjar-stjóri kom með þá hug-mynd að skólar í
Reykjanesbæ fengju speglun-
arskóla eða vinaskóla í Reykja-
vík. Hugmynd Árna var að
skólar hér gætu lært margt af
skólum í Reykjavík og myndi
hið sama gilda um skóla þar,”
segir Gylfi Guðmundsson
skólastjóri Njarðvíkurskóla
um speglunarverkefni sem sett
hefur verið á laggirnar á veg-
um grunnskóla Reykjanesbæj-
ar.
Gylfi er ánægður með verkefnið
og grunnhugmyndafræði þess.
„Mér fannst þetta afar snjöll hug-
mynd, ekki síst vegna þess að slík
samvinna skóla kallar á sjálf-
skoðun, íhugun og samanburð.
Vafalítið voru menn með í huga
niðurstöður samræmdra prófa.
En speglun skóla dregur fram
svo ótal margt annað en sjálf-
skoðun vegna prófa enda er ár-
angur þar ekki einhlýtur mæli-
kvarði á gæði skóla. Speglunin
dregur líka stjórnendur og starfs-
fólk upp úr því fari sem okkur
hættir svo til að hjakkast alltaf í.
Ég trúi því að svona samvinna
skóla kalli á önnur vinnubrögð,
oftast betri vinnubrögð.”
Gylfi segir að skólastjórnendum
í Reykjanesbæ hafi litist mjög
vel á verkefnið. “Ég held að
skólastjórnendum í Reykjanesbæ
hafi litist afar vel á hugmyndina
um speglun skólanna. Við rædd-
um þetta einnig við félaga okkar
í nokkrum skólum í Reykjavík.
Allir voru sammála: Þetta er
snjöll hugmynd. Skólarnir hafa
unnið við þetta verkefni og allir
hafa skólarnir í Reykjanesbæ
fengið speglunarskóla,” segir
Gylfi en Háteigsskóli er speglun-
arskóli Njarðvíkurskóla. „Þegar
það var búið að ákveða að við
myndum spegla okkur við Há-
teigsskóla fórum við strax af stað
í samstarf og að kynna skólalana.
Við buðum stjórnendum Há-
teigsskóla í heimsókn í skólann
okkar og við fórum síðan í sams
konar heimsókn til þeirra.”
Heimsóknirnar lærdómsríkar
Gylfi segir að heimsóknirnar
hafi verið skemmtilegar og lær-
dómsríkar. “það var gaman að sjá
hvernig við vorum að uppgötva
eða sjá hluti og hugmyndir fram-
kvæmdar á annan veg en hinir
gerðu. Við höldum þessu áfram. Í
nóvember ætla kennarar í 1. bekk
Háteigsskóla að koma til okkar
og okkar kennarar munu síðan
endurgjalda heimsóknina,” segir
Gylfi en eftir hverja heimsókn
hafa kennarar sest niður og rætt
það hvað þeir hafi lært og hvað
betur megi fara. “Það var sérlega
skemmtilegt að velta vöngum og
skoða. Stjórnendur eru sammála
um mikilvæg atriði sem er
ástæða til að benda á. Við meg-
um ekki gleyma því að menntun
er sá grunnur sem þarf til þess að
við eigum betra líf og bjartari
tíma sem fullorðnar manneskjur.
Þess vegna er það svo mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að
hvatning foreldra og áhugi er lyk-
illinn að bættum árangri barna og
unglinga í námi. Foreldrar verða
að hvetja börn sín, fylgjast með
að þau vinni og sjá til þess að
börnin þeirra leggi sig fram.
Skólinn verður einnig að standa
sig. Kennarar eiga að vera dug-
legir að halda uppi góðu og já-
kvæðu sambandi við foreldra
barns. Frumskylda er að sjá til
þess barni líði vel í skóla. Kenn-
arar og foreldrar verða að sam-
einast í þeirri viðleitni að ná
þeim árangri að barni líði vel í
skóla.”
-skólastjórnendur í Reykjanesbæ spenntir fyrir verkefninu.
Njarðvíkurskóli speglar sig við Háteigsskóla í Reykjavík.
Speglunarverkefni
grunnskóla
Reykjanesbæjar
Leikritið er samið fyrir þau Gunnar Eyjólfsson sem er nú Listamaður Reykjanesbæjar og Kristbjörgu Kjeld.
Starfsfólk Njarðvíkurskóla og Háteigsskóla á vinnufundi í vikunni.
VF 43. tbl. 2003 hbb 22.10.2003 13:10 Page 20