Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 10

Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Grindvískafréttasíðan U m s j ó n : Þ o r s t e i n n G u n n a r K r i s t j á n s s o n Krakkarnir eru fljótir að kætast þegar snjór fellur á jörð og göslast fram með sleða sína og snjóbretti við fyrsta tækifæri. Krakkarnir í Grindavík eru heppnir að hafa ágætis sleðabrekku í miðjum bænum og er hún iðulega þétt skipuð af hressum krökkum sem skemmta konunglega. Krakkarnir tóku vel við sér þegar ljósmyndari VF átti leið hjá og heimtuðu mynda- töku og var það lítið mál að verða við þeirri bón. Því miður stoppaði snjórinn stutt við að þessu sinni og bíða örugglega margir krakkar þessa að það taki að snjóa aftur. Fjör í sleðabrekkunni! VF -L JÓ SM YN D IR : Þ O RS TE IN N G U N N AR K RI ST JÁ N SS O N 8 Sjúkraflutningsmenn í Grindavík brosa hringinn! Fulltrúi Rauðakrossins afhenti starfsmönnum HSS í Grindavík nýjan sjúkrabíl nú á dögunum og mun hann leisa af hólmi 11 ára gamlan Ford Econoline en bíllin er rekinn af sjúkrabíla- sjóði RKÍ. Nýi bíll inn er af gerð inni Mercedes Benz Sprinter 4x4 og kemur hann fullbúinn frá Mtbílum á Ólafs firði. Alls starfa 6 manns við sjúkraflutn- inga í Grindavík og eru þeir hæstánægðir með bílinn enda er hann með öllum nýjustu tækjum sem völ er á. „Bíllinn er með mjög aflmikla vél og er hann einnig mjög vel hannaður að innan þannig að allir sitja í öryggisbeltum, einnig sá sem sinnir sjúklingi sem var ekki í gamla bílnum“, segir Gunnar M Baldursson einn af áhöfn sjúkra- bílsins. Áhöfnin vildi koma því á framfæri að ef ekki nyti við velvildar þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá væri ekk hægt að manna bílinn með þeim hætti sem gert er í dag en alltaf eru 2 menn á bakvakt sem ræstir eru út af lækni eða neyðarlínu. Út- köll sjúkrabifreiðarinnar hafa verið 150-190 á ári og fer þeim fjölgandi en þau hafa sjaldan verið fleiri en undanfarin miss- eri og er því gott að vita af glæ- nýjum sjúkrabíl þegar á þarf að halda. GRINDVÍKINGAR FÁ NÝJAN SJÚKRABÍL STÆRSTA GJÖFIN ER Í MINNSTA PAKKANUM ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 26 68 8 1 2/ 20 04 Kauptu jólapakkann á icelandair.is og prentaðu gjafabréfið út um leið! Jólapakki Icelandair er einstök jólagjöf handa þeim sem þér þykir vænst um. Evrópa 19.900 kr.* USA 29.900 kr.* Business Class Evrópa/USA 39.900 kr.* Þessar ferðir gefa 3.000-12.400 Vildarpunkta. Einungis fyrir handhafa Vildarkorts VISA og Icelandair Evrópa 24.900 punktar* USA 39.900 punktar* Jólapakkarnir fást líka á söluskrifstofum Icelandair og í Fjarsölu í síma 50 50 100. Geisladiskur með úrvali af íslenskri tónlist fylgir. Einstæð útgáfa. * Innifalið: Flug og flugvallarskattar, nema þegar greitt er með Vildarpunktum; þá þarf að greiða flugvallarskatta sérstaklega (Evrópa 5.800 kr., USA 7.000 kr.). • Handhafi Jólagjafabréfs Icelandair velur sjálfur áfangastað. • Sölutímabilið er til 24. desember 2004. • Gildir í ferðir sem hefjast á tímabilinu 10. janúar - 7. maí 2005 (síðasta heimkoma 13. maí). • Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags. • Bóka þarf fyrir 21. janúar 2005. • Tilboðið gildir til allra áfangastaða nema Orlando. • 5.000 kr. afsláttur fyrir börn 2ja-11 ára nema þegar greitt er með Vildarpunktum. Gildir ekki á Business Class. • Vildarpunktatilboð fyrir börn eða á Business Class, sjá vildarklubbur.is • Takmarkað sætaframboð. stuttar F R É T T I R Áfengi og meint ur l a n d i v a r te k i n n af tveim ur16 ára piltum sem voru ölvaðir á almannafæri um helgina. Pilt un um var kom ið í hendur forráðamanna. Landi tekinn Lögreglan í Keflavík fékk tilkynningu um peningaþjófnað úr húsi við Hringbraut í Kefla- vík um klukk an 08:00 á sunnudagsmorgun. Höfðu þar horfið 15.000 kr.- sem geymdar voru í frystihólfi í ísskáp. Peningaþjófn- aður úr ísskáp Hannes Þ. Hafstein, björgunarskip Slysa- varn ar fé lags ins Landsbjargar, var kallað út klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags eftir að 15 tonna trilla óskaði aðstoðar. Trillan sem óskaði aðstoðar var með bilað stýri þar sem hún var stödd um 7 sjómílur norðvestur af Garðskaga. Ágætis veður var á þessum slóðum í nótt, hægur vindur og úrkomulaust og því engin hætta á ferðum. Hannes Þ. Hafstein dró trilluna inn til Sandgerðis en þangað var komið klukkan 7 á sunnu- dagsmorgun. Tekin í tog

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.