Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 20

Víkurfréttir - 16.12.2004, Síða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ������������������������������� ������������ �������������������������� ��������������������� ������������������������������������� �������������������� ��������������������������� ������������������������������������� Miklar umbætur eru fyrirhugaðar á sam-göng um í Reykja- nesbæ með lagningu nýs vegar niður af Reykjanesbraut ofan Nikkelsvæðisins og niður að Njarðarbraut. Lega nýja vegarins, Borgar- brautar, verður nokkurn vegin þar sem Flugvallarvegurinn er í dag og verða á honum fimm hringtorg sem verða kenndar við ýmsar heimsborgir. Um verð ur að ræða ann an af tveimur aðalinnkomustöðum í bæinn, en hinn verður við verk- smiðju Kaffitárs á Fitjum. Að sögn Steinþórs Jónssonar, formanns Umhverfis- og skipu- lagsnefndar Reykjanesbæjar varð hugmyndin til í samstarfi starfsmanna bæjarins og Vega- gerðarinnar. Er gert ráð fyrir að framkvæmd- irnar kosti 280 milljónir króns sem Reykjanesbær mun leggja út í fyrstu en fá svo endurgreitt frá Vegagerðinni þegar hún fær fjárveitingu. „Við grípum til þess að fjár- magna framkvæmdina sjálfir til að framkvæmdir geti hafist sem fyrst,” segir Steinþór. „Á svæðinu milli Keflavíkur og Njarðvíkur hafa verið miklar framkvæmdir í gangi við þetta svæði þar sem Íþróttaakademían og Kentucky Fried Chicken veitingastaðurinn eru að rísa og svo er Reykjanes- höllin þar auðvitað fyrir.” Þar að auki er væntanlegt Hlíða- hverfi við veginn sem og fyrir- hugaður aðalíþróttaleikvangur Reykjanesbæjar. „Þannig þurfum við að hafa hraðar hendur, en hins vegar er ljóst að við förum ekki út í fjárfestingar fyrr en verkið er komið á vegaáætlun.” Borgabraut er unninn með fyr- irhugað flugþjónustusvæði ofan við Iðavelli á milli Borgabrautar og Aðalgötu í huga. Á svæði Samgöngumiðstöðvar Íslands, eins og er ráðgert að hún heiti, mun verða ýmis þjónusta í sam- bandi við alþjóðaflugvöllinn, ss. bílaleigur, bílastæði, veitinga- staðir og bókunarþjónusta. Steinþór segir að þótt kostnað- urinn sé mikill séu framkvæmd- irnar nauðsynlegar. „Sterk eigna- staða bæjarins gerir okkur kleift að skapa tækifæri til að fá fleira fólk til bæjarins og styrkja upp- byggingu í atvinnurekstri.” Vonir standa til þess að hægt verði að ráðast í framkvæmdir snemma á næsta ári og ljúka þeim árið 2006. Nýr vegur frá Reykjanes- braut niður á Njarðar- braut í undirbúningi Yfirlitsmynd yfir legu vegarins, neðst á myndinni er merkt svæði fyrir Samgöngumiðstöðvar Íslands. Á myndinni má einnig sjá ýmsar framtíðarhugmyndir fyrir svæðið en vert er að geta þess að þær verða ekki að framkvæmd fyrr en eftir nokkur ár. Eldsnöggir og drífandi Fastar ferðir frá Reykjavík til Suðurnesja alla daga kl. 7, 10, 12 og 16 Stórir og litlir bílar • Tilboð í allan akstur Búslóðaflutningar • Vöruflutningar • Hjálpfúsir og vanir bílstjórar Sækjum vöruna og komum henni á áfangastað Munið Jólalukku Víkurfrétta

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.