Víkurfréttir - 17.12.2015, Qupperneq 45
hjá Notre Dame, Effell-turninum
og fleiri sögufrægum stöðum.
Reykjavíkurmaraþon er líka í
miklu uppáhaldi. „Þar er maður á
heimavelli, kannast við umhverfið
og hitt ir marga sem maður
þekkir. Í því hlaupi getur líka öll
fjölskyldan komið og horft á. Þegar
hlauparar koma yfir marklínuna
í Reykjavíkurmaraþoni er lagt
mikið upp úr því að kalla upp nafn
hvers og eins. Það er alveg frábær
tilfinning á lokasprettinum.“
Tekur hlaupin fram yfir golf
Eig inmaður Unu, S igurður
Haraldsson, er golfari en hljóp
með henni, eins og áður sagði,
í París. Þegar þau höfðu verið
saman í 25 ár ákváðu þau að fagna
tímamótunum með því að hlaupa
saman maraþon í borg ástarinnar.
„Samningurinn á milli okkar var
þannig að hann færi í maraþon en
hann hafði ekkert verið að hlaupa
og ég myndi svo gefa golfíþróttinni
tækifæri. Árangurinn hefur nú
ekki verið mikill ennþá því ég tek
hlaupin alltaf fram yfir á sumrin en
ég er að reyna að vera líka í golfi.“
Una æfir með þríþrautarhóp 3N
þrisvar sinnum í viku en fer líka
ein á æfingar eða með börnum
sínum og vinkonum. Þegar líða fer
að maraþoni verða vegalengdirnar
l e ng r i o g þ á h l e y pu r Un a
y f i r l e i t t t v i s v a r s i n nu m á
undirbúningstímabilinu uppáhalds
langhlaupshringinn sinn, úr
Njarðvík til Sandgerðis, þaðan út í
Hafnir og svo heim í Njarðvík, um
30 til 34 kílómetra.
Ekki er hægt að ljúka viðtalinu án
þess að biðja Unu um ráðleggingar
til fólks sem er í sömu sporum og
hún var fyrir 14 árum en langar að
gera hlaupin að lífsstíl. „Það er bara
að leggja af stað. Reima á sig skóna
og fara út. Þegar maður er kominn
af stað er þetta ekki neitt mál. Nú
eru í boði alls konar námskeið og
hlaupahópar og öpp í símanum til
að hvetja sig áfram á æfingum og
halda utan um þær. Fólk þarf ekkert
endilega að fara í maraþon, maður
getur alltaf skellt sér út, þó ekki
sé nema í hálftíma,“ segir Una og
óskar sem flestum þeirra lífsgæða
að geta hlaupið. „Það er ótrúlega
magnað að vera úti í náttúrunni
með andardrættinum og fótstiginu.
Hlaupin eru það dýrmætasta sem
ég á, fyrir utan fólkið mitt.”
Síðustu
tíu kíló-
metrana spyr
maður sig
aftur og aftur
hvað maður
sé nú búinn
að koma sér
út í
Una með heimilisvinunum fjórfættu.
Hundurinn hefur oft hlaupið með
henni en einnig sonurinn Hafþór.
Una með Hafþóri syni sínum.
Hann er duglegur að hlaupa með
mömmu sinni.