Fréttablaðið - 13.01.2018, Page 8

Fréttablaðið - 13.01.2018, Page 8
Samfélag Á síðustu árum hafa komið upp fimm mál hjá KR, þar sem mönnum hefur verið vísað frá félaginu vegna óeðlilegra samskipta milli kynja. Þetta segir Stefán Arnar- son, íþróttafulltrúi KR. Stefán segir að í tveimur tilfellum hafi mál verið kærð til lögreglu og í öllum tilfellum hafi þeir sem áttu hlut að máli verið látnir fara frá félag- inu. Stefán segir ekki hafa verið um nauðganir að ræða, „sem betur fer ekki“. Forystumenn þriggja annarra íþróttafélaga, sem Fréttablaðið ræddi við, eru slegnir yfir alvarleika þeirra frásagna sem konur í íþróttum birtu af kynferðisbrotum, kynferðis- legri áreitni og kynbundinni mis- munun í fyrradag. „Mér finnst þessi mál alveg skelfi- leg og þessi alvarlegustu mál ættu náttúrlega að vera lögreglumál. En auðvitað verður íþróttahreyfingin, þess vegna á næstu dögum, að fá til liðs við sig sérfrótt fólk um þessi mál og búa til leiðbeiningar fyrir íþrótta- félögin,“ segir Viðar Halldórsson, for- maður FH. Horfir hann þar fyrst og fremst til Íþróttasambands Íslands. „En auðvitað verður síðan að tak- ast á við hvert mál um leið og það kemur upp.“ Viðar segist kannast við eineltis mál en ásakanir um kyn- ferðislegt ofbeldi hafi hann aldrei heyrt. „Það er ömurlegt að lesa þetta.“ Sveinn Gíslason, formaður Breiða- bliks, segir að félagið hafi þurft að takast á við eineltismál og atvik þar sem stúlkum sem æfa hjá félaginu hafi verið sýnd ósæmileg framkoma. Í þeim tilfellum hafi verið leitað til Ungmennafélags Íslands og Ung- mennafélags Kjalarnesþings sem hafi á að skipa fagaðilum á því sviði. „Þetta kemur þess vegna ekki á óvart en maður er sleginn yfir alvarleika þeirra dæma sem nefnd voru. Við erum mjög stórt íþrótta- félag með mjög öfluga starfsemi hjá stelpum og konum og eftir að þessar fréttir komu í gær (í fyrradag) höfum við rætt saman og við ætlum að ræða þetta sérstaklega í aðalstjórn félags- ins í næstu viku,“ segir Sveinn. Reynt verði að skoða ferla hvernig hægt er að bregðast við svona málum og greina hversu alvarlegur vandinn er hjá félaginu. „Við ætlum ekki að loka augunum fyrir því að hann sé til staðar en vonum að það sé ekkert saknæmt sem hafi átt sér stað,“ segir hann. Árni Óðinsson, formaður Þórs á Akureyri, segist hafa getað ímyndað sér að eitthvað þessu tengt gæti hafa átt sér stað innan íþróttahreyfingar- innar, en ekki svona mikið og ekki svona ljótt. Hann segir félagið nú þegar hafa rætt málið og það verði rætt áfram. Hann kannast ekki við að neitt þessu líkt hafi komið upp hjá Þór. Hins vegar geti félagið ekki afgreitt málið þannig að það eigi ekki við um sig. „Þetta á við um okkur öll.“ Sveinn og Árni taka undir með for- manni FH að ÍSÍ geti leitt vinnuna við að móta viðbrögð við svona atburðum. jonhakon@frettabladid.is Slegnir yfir frásögnum íþróttakvenna Fimm menn hafa verið látnir fara frá KR undanfarin ár vegna ósæmilegrar framkomu. Alvarlegustu dæmin sem íþróttakonur nefna um kynferðislegt ofbeldi eru mál sem eiga heima hjá lögreglu, segir formaður FH. Stjórnir íþróttafélaga eru þegar farnar að ræða um viðbrögð. KR hefur vísað fimm mönnum á dyr vegna ósæmilegrar framkomu á síðustu árum. Í tveimur tilfellum voru málin kærð. Forystumenn þrigga annarra íþróttafélaga eru slegnir yfir alvarleika frásagnanna. FRéttablaðið/antonbRinK Þetta kemur þess vegna ekki á óvart en maður er sleginn yfir alvarleika þeirra dæma sem nefnd voru. Sveinn Gíslason, formaður Breiðabliks HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Q5 á sérkjörum Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5 á sérkjörum og til afhendingar strax. Audi Q5 Quattro Sport 2.0 190 hö Listaverð 9.060.000 kr. Tilboðsverð 7.490.000 kr. Audi Q5 Quattro Sport 2.0 190 hö Listaverð 8.550.000 kr. Tilboðsverð 7.290.000 kr. Fjórar ásakanir um ofbeldi á sex árum „Ég starfaði sem framkvæmda- stjóri í tveimur íþróttafélögum í samtals sex ár. Á þeim tíma fékk ég inn á mitt borð fjögur tilfelli þar sem þjálfari/leikmaður/ starfsmaður félagsins (sem í öllum tilfellum var karlmaður) var ásakaður um brot sem flokkast sem kynferðisbrot gegn einstaklingi eða a.m.k. ósæmileg hegðun,“ segir Jóhann Már Helga- son, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Vals og Aftureldingar, í stöðufærslu á Facebook. Hann segir brotin hafa verið misalvar- leg. Í þremur af þessum málum hafi viðkomandi aðila verið vikið frá félaginu og í einu tilfellinu hafi viðkomandi hætt sjálfur. 1 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 l a U g a r D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 2 0 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E B C -2 3 4 0 1 E B C -2 2 0 4 1 E B C -2 0 C 8 1 E B C -1 F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 1 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.