Fréttablaðið - 13.01.2018, Qupperneq 8
Samfélag Á síðustu árum hafa
komið upp fimm mál hjá KR, þar
sem mönnum hefur verið vísað frá
félaginu vegna óeðlilegra samskipta
milli kynja. Þetta segir Stefán Arnar-
son, íþróttafulltrúi KR.
Stefán segir að í tveimur tilfellum
hafi mál verið kærð til lögreglu og í
öllum tilfellum hafi þeir sem áttu
hlut að máli verið látnir fara frá félag-
inu. Stefán segir ekki hafa verið um
nauðganir að ræða, „sem betur fer
ekki“.
Forystumenn þriggja annarra
íþróttafélaga, sem Fréttablaðið
ræddi við, eru slegnir yfir alvarleika
þeirra frásagna sem konur í íþróttum
birtu af kynferðisbrotum, kynferðis-
legri áreitni og kynbundinni mis-
munun í fyrradag.
„Mér finnst þessi mál alveg skelfi-
leg og þessi alvarlegustu mál ættu
náttúrlega að vera lögreglumál. En
auðvitað verður íþróttahreyfingin,
þess vegna á næstu dögum, að fá til
liðs við sig sérfrótt fólk um þessi mál
og búa til leiðbeiningar fyrir íþrótta-
félögin,“ segir Viðar Halldórsson, for-
maður FH. Horfir hann þar fyrst og
fremst til Íþróttasambands Íslands.
„En auðvitað verður síðan að tak-
ast á við hvert mál um leið og það
kemur upp.“ Viðar segist kannast
við eineltis mál en ásakanir um kyn-
ferðislegt ofbeldi hafi hann aldrei
heyrt. „Það er ömurlegt að lesa þetta.“
Sveinn Gíslason, formaður Breiða-
bliks, segir að félagið hafi þurft að
takast á við eineltismál og atvik þar
sem stúlkum sem æfa hjá félaginu
hafi verið sýnd ósæmileg framkoma.
Í þeim tilfellum hafi verið leitað til
Ungmennafélags Íslands og Ung-
mennafélags Kjalarnesþings sem
hafi á að skipa fagaðilum á því sviði.
„Þetta kemur þess vegna ekki
á óvart en maður er sleginn yfir
alvarleika þeirra dæma sem nefnd
voru. Við erum mjög stórt íþrótta-
félag með mjög öfluga starfsemi hjá
stelpum og konum og eftir að þessar
fréttir komu í gær (í fyrradag) höfum
við rætt saman og við ætlum að ræða
þetta sérstaklega í aðalstjórn félags-
ins í næstu viku,“ segir Sveinn. Reynt
verði að skoða ferla hvernig hægt
er að bregðast við svona málum og
greina hversu alvarlegur vandinn
er hjá félaginu. „Við ætlum ekki að
loka augunum fyrir því að hann sé
til staðar en vonum að það sé ekkert
saknæmt sem hafi átt sér stað,“ segir
hann.
Árni Óðinsson, formaður Þórs á
Akureyri, segist hafa getað ímyndað
sér að eitthvað þessu tengt gæti hafa
átt sér stað innan íþróttahreyfingar-
innar, en ekki svona mikið og ekki
svona ljótt. Hann segir félagið nú
þegar hafa rætt málið og það verði
rætt áfram. Hann kannast ekki við
að neitt þessu líkt hafi komið upp
hjá Þór. Hins vegar geti félagið ekki
afgreitt málið þannig að það eigi ekki
við um sig. „Þetta á við um okkur öll.“
Sveinn og Árni taka undir með for-
manni FH að ÍSÍ geti leitt vinnuna
við að móta viðbrögð við svona
atburðum. jonhakon@frettabladid.is
Slegnir yfir frásögnum íþróttakvenna
Fimm menn hafa verið látnir fara frá KR undanfarin ár vegna ósæmilegrar framkomu. Alvarlegustu dæmin sem íþróttakonur nefna um
kynferðislegt ofbeldi eru mál sem eiga heima hjá lögreglu, segir formaður FH. Stjórnir íþróttafélaga eru þegar farnar að ræða um viðbrögð.
KR hefur vísað fimm mönnum á dyr vegna ósæmilegrar framkomu á síðustu
árum. Í tveimur tilfellum voru málin kærð. Forystumenn þrigga annarra
íþróttafélaga eru slegnir yfir alvarleika frásagnanna. FRéttablaðið/antonbRinK
Þetta kemur þess
vegna ekki á óvart
en maður er sleginn yfir
alvarleika þeirra dæma sem
nefnd voru.
Sveinn Gíslason, formaður Breiðabliks
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Q5 á sérkjörum
Nokkrir einstaklega vel útbúnir Audi Q5
á sérkjörum og til afhendingar strax.
Audi Q5 Quattro
Sport 2.0 190 hö
Listaverð 9.060.000 kr.
Tilboðsverð 7.490.000 kr.
Audi Q5 Quattro
Sport 2.0 190 hö
Listaverð 8.550.000 kr.
Tilboðsverð 7.290.000 kr.
Fjórar ásakanir um
ofbeldi á sex árum
„Ég starfaði sem framkvæmda-
stjóri í tveimur íþróttafélögum í
samtals sex ár. Á þeim tíma fékk
ég inn á mitt borð fjögur tilfelli
þar sem þjálfari/leikmaður/
starfsmaður félagsins (sem í
öllum tilfellum var karlmaður)
var ásakaður um brot sem
flokkast sem kynferðisbrot gegn
einstaklingi eða a.m.k. ósæmileg
hegðun,“ segir Jóhann Már Helga-
son, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Vals og Aftureldingar, í
stöðufærslu á Facebook. Hann
segir brotin hafa verið misalvar-
leg. Í þremur af þessum málum
hafi viðkomandi aðila verið vikið
frá félaginu og í einu tilfellinu
hafi viðkomandi hætt sjálfur.
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 l a U g a r D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
C
-2
3
4
0
1
E
B
C
-2
2
0
4
1
E
B
C
-2
0
C
8
1
E
B
C
-1
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K