Fréttablaðið - 13.01.2018, Side 16
George Weah, sem eitt sinn var besti
knattspyrnumaður heims og lék
meðal annars með AC Milan, Paris
Saint-Germain, Chelsea, Manchester
City og Monaco, tekur við embætti
forseta Líberíu á mánudag. Ljóst er
að ærið verkefni bíður þessa tiltölu-
lega lítt reynda stjórnmálamanns.
Líbería er elsta lýðveldi Afríku
en ríkið fékk sjálfstæði frá Banda-
ríkjunum árið 1847 og var stofnað
í þeim tilgangi að gefa fyrrverandi
þrælum Bandaríkjamanna heimili í
heimsálfu forfeðra sinna. Ríkið á sér
sögu átaka og borgarastyrjalda og er
Charles Taylor vafalaust þekktasti
leiðtoginn í sögu ríkisins.
Sá náði völdum eftir byltingu
sem hófst árið 1989 gegn ríkis-
stjórn Samuels Doe, sem sjálfur
hafði náð völdum í byltingu níu
árum fyrr, en menn hans drápu
þáverandi forseta, William R.
Tolbert yngri. Taylor naut lítilla
vinsælda á alþjóðavísu. Hann
flutti út svokallaða blóðdem-
anta og var ítrekað sakaður
um bæði stríðsglæpi og glæpi
gegn mannkyninu í borgara-
styrjöldinni í Síerra Leóne á
tíunda áratugnum.
Hann sagði af sér árið
2003 og fór í útlegð í Níger-
íu. Árið 2006 óskaði fráfar-
andi forseti, Ellen Johnson
Sirleaf, eftir því að Taylor
yrði framseldur. Hann var þá
handtekinn í Síerra Leóne og
fluttur til Haag í Hollandi þar
sem hann var loks sakfelldur fyrir
meðal annars hryðjuverk, morð og
nauðgun og dæmdur í fimmtíu ára
fangelsi.
„Hinn ákærði er sakfelldur fyrir
að skipuleggja og koma að nokkrum
af verstu og ógeðfelldustu glæpum
mannkynssögunnar,“ sagði dóms-
forsetinn Richard Lussick við dóms-
uppkvaðningu.
Hamingjuóskir
Vegna bakgrunns Weah sem knatt-
spyrnumanns hefur hamingju-
óskum rignt yfir hann frá því hann
náði kjöri.
„Takk kærlega, herra forseti,“ tísti
Didier Drogba, fyrrverandi leik-
maður Chelsea.
Hinn reynslulitli Weah lofar breytingum
George Weah tekur við forsetaembætti í Líberíu á næstunni. Knattspyrnusamfélagið samgleðst honum. Ríkið á sér sögu blóðugra
átaka. Er með skáldaða háskólagráðu og hefur ekki útskýrt stefnu sína. Verðandi varaforseti vill dauðarefsingu við samkynhneigð.
M E N N T U N Á V I N N U M A R K A Ð I
Sérfræðingur
í fullorðinsfræðslu
- SPENNANDI STARF –
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. óskar eftir að ráða sérfræðing í starf á sviði fullorðinsfræðslu,
einkum við hæfnigreiningar og námshönnun.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frae.is
Umsóknir sendist á frae@frae.is fyrir 22 jan. nk. Öllum umsóknum verður svarað.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. er í eigu Alþýðusambands Íslands, Samtaka
atvinnulífsins, BSRB, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins.
Hlutverk FA er að vera samstarfsvettvangur og sérfræðisetur aðila vinnumark-
aðarins um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við
aðrar fræðslustofnanir.
Hjá FA vinna nú 17 starfsmenn, flestir sérfræðingar á sviði fullorðinsfræðslu.
Markmið FA er að veita starfsmönnum á vinnumarkaði, sem ekki hafa lokið prófi
frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á
vinnumarkaði og auka þar með samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
• Menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
• Reynslu af fræðslumálum og almennu
atvinnulífi.
• Reynslu af verkefnastjórnun.
• Reynslu af að vinna undir álagi og í hópi.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum.
• Ritfærni í íslensku, ensku og einu norðurlandamáli.
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur:
H
au
ku
r
01
.1
8
„Til hamingju, Weah forseti!!!“
tísti Yaya Touré, leikmaður Man-
chester City.
„Til hamingju, herra forseti,
George Weah. Stórkostlegur ferill,“
tísti Stephane Mbia, fyrrverandi
leikmaður Sevilla.
„Við þekktum George Weah löngu
áður en hann var kjörinn forseti Líb-
eríu. Við óskum þessari PSG-goð-
sögn til hamingju með þennan nýja
kafla,“ tísti gamla félag Weah, PSG.
„Stórkostlegt mál, loksins höfum
við fótboltamenn eignast einn
slíkan,“ sagði Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, og bætti við: „George er
búinn að bjóða mér á innsetning-
arathöfnina. Ég held ég verði upp-
tekinn en kannski get ég farið ef ég
verð í banni.“
Yfirburðasigur
Weah fékk 61,5 prósent atkvæða í
seinni umferð forsetakosninganna
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
George Weah tekur við embætti forseta Líberíu á mánudag. NordicpHotos/AFp
Weah hefur lofað
að skapa fleiri
störf, bjóða upp á
ókeypis menntun og
heilbrigðisþjónustu en
úrskýrir ekki hvernig
þessum markmiðum
verður náð.
Ibrahim Nyei prófessor
sem fór fram þann 26. desember
síðastliðinn. Andstæðingurinn,
fráfarandi varaforsetinn Joseph
Boakai, fékk 38,5 prósent atkvæða.
Fékk knattspyrnumaðurinn því
flest atkvæði í báðum umferðum.
Hann fékk 38,4 prósent í fyrri
umferðinni samanborið við 28,8
prósent Boakai og 8,2 prósent
Prince Johnson, en sá er einna helst
frægur fyrir að fanga þáverandi for-
setann Samuel Doe í byltingu Tayl-
ors árið 1990, pynta hann og drepa.
Fátækt og skortur
Weah á hins vegar ærið verkefni
fyrir höndum. Eftir tíðar borgara-
styrjaldir undir lok síðustu aldar
hafa borgarar það slæmt og þá er
vert að minnast á að ebólufaraldur
áranna 2014 til 2016 kostaði þús-
undir líf sitt. Helstu útflutnings-
vörur Líberíu, járn og gúmmí, eru
tiltölulega ódýrar og innviðirnir
eru litlir.
Á lista CIA World Factbook yfir
verga landsframleiðslu ríkja á mann
er Líbería í 226. sæti af 230 og eru
eingöngu Búrúndí, Austur-Kongó,
Mið-Afríkulýðveldið og Sómalía
neðar á þeim lista.
Lífslíkur karla eru 61 ár og kvenna
63 ár og er ríkið í 158. sæti á þeim
lista af 183. Samkvæmt Alþjóða-
bankanum eru 54 prósent Líberíu-
manna undir fátæktarmörkum og
er því ljóst að gífurlega mikið verk
bíður knattspyrnumannsins.
Efasemdaraddir hafa því heyrst
um verðandi forseta. Þannig sagði
Victor Smith, upplýsingatækniráð-
gjafi og einn viðmælenda Reuters,
að hann skorti reynslu. Hefði enga
alvöru stefnu og skorti þá leiðtoga-
hæfni sem þörf væri á.
reynsla eða ekki
Spurning er hvort það sé ósann-
gjarnt að segja að Weah skorti
reynslu. Hann var vissulega kjör-
inn í öldungadeild Líberíuþings
árið 2014 með miklum meiri-
hluta atkvæða. Hins vegar segir
í umfjöllun The Economist um
forsetakosningarnar að hann hafi
sjaldan eða aldrei mætt á þingfundi.
Aukinheldur hafi hann ekki verið
flutningsmaður neins frumvarps
eða neinnar tillögu.
Þá hefur meint menntun Weah
einnig verið töluvert gagnrýnd. En
munur á menntun hans og Ellen
Johnson Sirleaf, fráfarandi forseta,
var á meðal ástæðna fyrir því að
Weah tapaði forsetakosningunum
2005. Sirleaf var menntuð í Har-
vard en samkvæmt framboðsvef-
síðu Weah þetta sama ár hafði hann
gráðu í íþróttastjórnun frá Park-
wood-háskóla í Lundúnum.
Yfirvöld ákváðu hins vegar að
loka Parkwood árið 2003 vegna
þess að eigendurnir seldu hreinlega
gráður yfir internetið. Gráða Weah
var því ekki raunveruleg. Engir
kennarar störfuðu við Parkwood,
engar skólastofur voru þar og engar
kennslustundir.
stefnan
Boðskapur Weah á stjórnmálaferl-
inum hefur verið sá að innherjar
líberískra stjórnmála hafi ekkert
gert fyrir fólkið í landinu og því sé
kominn tími á breytingar. Hefur
hann meðal annars lofað að beita
sér sérstaklega fyrir því að skapa
störf fyrir yngri kynslóðina en alls
eru 70 prósent Líberíumanna undir
35 ára aldri. Áttatíu prósent lands-
manna þurfa að lifa á sem nemur
tæplega 200 krónum á dag.
Erfitt er að öðru leyti að staðsetja
George Weah á hinu pólitíska rófi.
Kjör hans er ef til vill best hægt að
útskýra með því að kjósendur hafi
verið ósáttir við þá stöðnun sem
ríkt hefur undir stjórn Sirleaf þar
sem matarverð hefur ekki lækkað
og launin ekki hækkað.
Al Jazeera ræddi við líberíska
prófessorinn Robtel Neajai Pailey
skömmu eftir kosningarnar til að fá
skýrari mynd af ástandinu. „Í Líber-
íu er fámennur hópur sem lifir góðu
lífi en stór meirihluti kemst varla af.
Sá stóri meirihluti, sem er að mestu
leyti undir 35 ára aldri, kaus Weah,“
sagði Pailey.
Rætt var við líberíska stjórnmála-
fræðinginn Ibrahim al-Bakri Nyei í
sömu umfjöllun. Sá sagði Weah hafa
lofað að skapa fleiri störf, bjóða upp
á ókeypis menntun og heilbrigðis-
þjónustu en aldrei hefði verið
útskýrt hvernig ná ætti þessum
markmiðum.
Að sögn beggja er þó óljóst hversu
mikið mun breytast eftir kjör Weah.
Pailey sagði ýmsa dygga fylgismenn
Sirleaf nú hafa tekið stöðu með
Weah. Undir það tók Nyei og sagði
gamalgróna stjórnmálamenn með
dyggustu stuðningsmönnum Weah
eftir að hann náði kjöri.
Jewel Howard-Taylor verður varaforseti Líberíu
Spurningamerki hafa verið sett
við val Weah á varaforseta.
Sú sem varð fyrir valinu heitir
Jewel Howard-Taylor og er, eins
og nafnið gefur til kynna, fyrr-
verandi forsetafrú og fyrrverandi
eiginkona stríðsglæpamannsins
Charles Taylor.
Howard-Taylor hefur þó sjálf
meiri reynslu en Weah af stjórn-
málum og var kjörin í öldunga-
deild þingsins árið 2005. Þar
að auki er hún menntaðri
en Weah og er með gráður í
bókhaldi og hagfræði.
Sjálf hefur Howard-Taylor
reynt að fjarlægja sig fyrr-
verandi eigin-
manni sínum. Í
viðtali við Al
Jazeera þann
12. desember
var hún spurð
hvernig al-
menningur gæti
treyst því að hún myndi ekki fylgja
stefnu Charles Taylor.
„Hver var sú stefna? Á meðan
það ástand ríkti var ég ekki í
Líberíu. Ég var í skóla erlendis. Ef
ég var ekki hérna er ekki hægt að
segja að ég hafi haft nokkur áhrif,“
sagði Howard-Taylor og bætti við:
„Ef það væru einhverjar efasemdir
um mig hefði ég aldrei verið kjörin
á þing.“
Howard-Taylor er þó ekki
einungis umdeild fyrir hjóna-
bandið við Taylor en árið
2012 var hún fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarps sem
miðaði að því að leggja
dauðarefsingu við
samkynhneigð.
Frumvarpið var þó
aldrei samþykkt
eftir að Sirleaf
hét því að skrifa
aldrei undir slíkt
frumvarp.
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
B
-E
3
1
0
1
E
B
B
-E
1
D
4
1
E
B
B
-E
0
9
8
1
E
B
B
-D
F
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K