Fréttablaðið - 13.01.2018, Síða 26
Stelpur og strákar verða að söluvarningi og það er býttað með nektarmyndir eins og safnspil,“ segir Erna Mist Pétursdóttir um þann veruleika sem
ungmenni sem verða fyrir stafrænu
kynferðisofbeldi búa við.
Erna Mist fer með aðalhlutverk
í nýrri leikinni stuttmynd um staf
rænt kynferðisofbeldi: Myndin af
mér. Mynd sem segir sögur nokk
urra unglinga í framhaldsskóla sem
hafa kynni af stafrænu kynferðis
ofbeldi. Erna Mist er sjálf þolandi
slíks ofbeldis.
„Flott myndin af þér!“
„Ég leik Ylfu sem er nýnemi í
menntaskóla og tengi sterkt við
efni myndarinnar. Ég var í sjöunda
bekk, um tólf ára gömul og skotin í
strák. Ég mátti ekki vera úti seint um
kvöld og þegar það var ekki hægt að
hittast þá var talað saman á Skype.
Strákurinn hvatti mig til að sýna
á mér brjóstin. þetta var einhver
tískubylgja á þessum tíma, að flassa
á Skype. Af einhverjum ástæðum
hvarflaði ekki að mér að biðja hann
um að fara úr fötunum. Ég held að
ég hafi ekki einu sinni áttað mig á
því af hverju hann vildi mig úr að
ofan. Æi, bara svona eitt af mörgu
rugli sem ungu fólki dettur í hug!“
segir Erna Mist.
„Ég vildi hins vegar ekki sýna
brjóstin í fyrstu. Var tortryggin og
sagði við hann: Nei, ég vil það ekki,
þú tekur örugglega mynd. Hann
neitaði því, sagðist alls ekki myndu
gera það og hélt höndunum uppi frá
lyklaborðinu til að sanna það fyrir
mér. Ég fór úr bolnum. Svo var það
mánuði síðar að vinur hans kemur
upp að mér í Kringlunni og segir við
mig: Flott myndin af þér!“
Myndinni dreift á deilisíðu
Erna Mist segist á því andartaki hafa
vitað um hvað málið snerist. „Hug
urinn fór beint í þetta atvik og ég
fékk mitt fyrsta kvíðakast. Allt varð
skrýtið eftir þetta, ég fékk stöðug
kvíðaköst og var mest hrædd um
að mamma og pabbi myndu frétta
af þessu eða sjá myndina.
Svo kom í ljós að þegar ég var að
tala við þennan strák voru vinir
hans með. Þeir voru þarna á bak við
tölvuna. Þegar strákurinn lyfti upp
höndum, þá voru þeir á lyklaborð
inu og ýttu á „print screen“,“ segir
Erna Mist og segir upplýsingarnar
hafa vakið með sér óhug aðallega
vegna ótta um að mamma og pabbi
myndu frétta af þessu eða sjá mynd
ina.
„Þessari mynd var deilt á meðal
vinanna og fór svo á netið á síðu þar
sem var fullt af myndum af íslensk
um stelpum, Chansluts held ég að
hún hafi heitið. Ég talaði aldrei um
þetta við neinn, skömmin var hrein
lega of mikil. Í nokkur ár kvaldist ég
yfir þessu. Ég byrgði þetta inni og
var uppfull af skömm og kvíða,“
segir hún.
#freethenipple byltingin
Erna Mist opnaði ekki á þessa
reynslu fyrr en fimm árum síðar í
#freethenipple byltingunni.
„Þá gerðist það að þungu fargi
var af mér létt. Ég vissi ekki í fyrstu
af hverju það var en svo áttaði ég
mig. Ég hafði borið innra með mér
þungt og skammarlegt leyndarmál
sem var það ekki lengur. Og ég var
ekki ein. Mér fannst gott að heyra
allar þessar fjölmörgu reynslusögur
stelpna og kvenna um hlutgervingu
og tilfinningu þeirra um að hafa alla
sína ævi þurft að burðast með ein
hverja fáránlega skömm yfir því að
vera með brjóst. Það greiddist bara
úr þessari flækju hjá mér í miðri
þessari byltingu, eins og hjá svo
mörgum,“ segir hún.
Býttuðu myndum
Erna Mist segir að það trufli hana
hversu algengt stafrænt kynferðis
ofbeldi er á meðal jafnaldra hennar.
„Margar vinkvenna minna hafa
lent í þessu og nokkrir strákar
líka. Ég man eftir því að þegar við
vorum í grunnskóla var algengt að
krakkar væru með möppur í sím
anum sínum með nektarmyndum af
stelpum og strákum. Þessum mynd
um flettu þeir saman í frímínútum.
Myndirnar voru grandskoðaðar og
þeim býttað eins og safnkortum.
Bara eins og Pokemonspjöldum
eða einhverju slíku. Sumar nektar
myndirnar þóttu verðmætari en
aðrar. Einhverjar sjaldgæfar og eftir
sóttar. Hinar drasl. Þessi hlutgerving
er svakaleg og á því miður þátt í að
móta sjálfsmynd ungmenna, og
hefur áhrif á bæði stráka og stelpur.
Í dag held ég að mest fari fram
á Snapchat þar sem fólk sendir
nektarmyndir sín á milli. Allt í góðu
með það en svo gerist eitthvað og
traustið er brotið með því að setja
myndefnið á netið,“ segir hún.
Sex ungir leikarar fara með aðal
hlutverkin. Erna Mist segir fleiri
leikara myndarinnar hafa kynni af
stafrænu kynferðisofbeldi á eigin
raun. „Mér finnst ég hafa verið
heppin. Enginn sem ég þekkti
komst yfir myndina, að mér vitandi.
Strákurinn var í öðrum skóla í öðru
hverfi og myndinni var dreift mest
í kringum hann og vini hans. Ég
veit þó að á þessari vefsíðu þóttist
einhver eiga fleiri myndir af mér.
Fyrir þá sem lenda í því að það
er meiðandi myndefni af þeim á
þessum síðum er þetta kúgun og
niðurlæging. Þeir sem dreifa mynd
efninu hafa vald yfir fólki. Um það
snýst þetta og þess vegna er þetta
kynferðisofbeldi,“ segir Erna Mist
og minnist nokkurra þolenda frá
skólagöngu sinni.
Beittur fjárkúgunum
„Það kom inn ný stelpa á unglinga
stig innan skólans. Strákarnir voru
með nektarmynd af henni. Hún
lenti strax í einelti út af því, var
kúguð með myndinni og varð fyrir
stöðugum hótunum. Áhrifin sem
ofbeldið hafði á þessa stúlku voru
svakaleg. Strákarnir og nokkrar
stelpur líka sem tóku þátt í eineltinu
höfðu algjört vald yfir henni. Hún
varð undirgefin og tók á einhvern
skrýtinn hátt þátt í leiknum, hló
alltaf með.
Þá kom upp alvarlegt tilfelli í
menntaskólanum. Þá var það strák
ur sem varð fyrir ofbeldinu. Það láku
nektarmyndir af honum á netið. Í
kjölfarið var hann beittur fjárkúg
unum vegna fleiri nektarmynda
sem annar strákur var með í sínum
fórum. Sá hinn sami hótaði honum
að hann myndi birta þær ef hann
borgaði honum ekki. Sem betur fer
fékk þessi strákur einhverja aðstoð,“
segir Erna Mist og segir í raun alveg
sama hversu ofbeldið er alvarlegt.
„Það er alltaf flókið og erfitt. Það er
alltaf þessi niðurlæging og kúgun
sem er til staðar.“
Var tólf ára
þegar nektarmynd
var lekið á netið
Erna Mist Pétursdóttir var í sjöunda bekk þegar strákur sem hún
var skotin í braut á henni og tók af henni nektarmynd án sam-
þykkis. Myndinni var dreift á milli fólks og endaði hún loks á vefsíðu
sem er vettvangur fyrir dreifingu á hrelliklámi. Erna Mist leikur í
nýrri mynd um afleiðingar stafræns kynferðisofbeldis og segir ungt
fólk og þolendur slíks ofbeldis kúgað, hlutgert og niðurlægt.
Erna Mist er af japönskum uppruna, afi hennar Nobuyasu Yamagata er þekktur myndlistarmaður. FréttaBlaðið/EYþór
Ég vildi hins vEgar Ekki
sýna brjóstin í fyrstu.
var tortryggin og
sagði við hann: nEi, Ég
vil það Ekki, þú tEkur
örugglEga Mynd. hann
nEitaði því, sagðist
alls Ekki Myndu gEra
það og hÉlt höndunuM
uPPi frá lyklaborðinu
til að sanna það fyrir
MÉr. Ég fór úr bolnuM.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
C
-2
8
3
0
1
E
B
C
-2
6
F
4
1
E
B
C
-2
5
B
8
1
E
B
C
-2
4
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K