Fréttablaðið - 13.01.2018, Qupperneq 59
Verkefnastjóri á fagskrifstofu frístundamála
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar (SFS) auglýsir eftir verkefnastjóra til starfa á fagskrifstofu frístundamála.
Fagskrifstofa frístundamála leiðir stefnumótun og hefur yfirumsjón með frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar fyrir börn og
unglinga. Hlutverk skrifstofunnar er að efla og þróa fagumhverfi frístundastarfs með áherslu á börn og unglinga. Fagskrifstofa
frístundamála er hluti af fagskrifstofu SFS, en þar eru einnig skrifstofur leik- og grunnskólamála. SFS rekur fimm frístundamiðstöðvar
í hverfum borgarinnar og er starfsvettvangur þeirra frítími barna og unglinga. Frístundamiðstöðvar sjá um rekstur frístundaheimila
og félagsmiðstöðva auk þess að taka þátt í margvíslegu hverfasamstarfi. Áhersla er lögð á að allt frístundastarf frístundamiðstöðva
hafi forvarnar-, menntunar- og afþreyingargildi í samræmi við Starfsskrá frístundamiðstöðva SFS.
Verkefnastjóri ber ábyrgð á þverfaglegri samvinnu, ráðgjöf og handleiðslu vegna starfsemi í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum
fyrir 6-16 ára börn og unglinga. Verkefnastjóri er hluti af stjórnendateymi frístundahluta SFS og tekur þátt í heildarstefnumótun SFS.
Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri fagskrifstofu frístundamála.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2018.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, netfang: soffía.palsdottir@reykjavik.is. Sími: 411-1111.
Helstu verkefni :
• Þverfagleg samvinna, ráðgjöf og handleiðsla vegna barna- og unglingastarfs á vegum fagskrifstofu frístundamála.
• Miðlun upplýsinga og gagna vegna frístundastarfs barna og unglinga.
• Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu á þeim stefnum sem
liggja fyrir.
• Miðlægt utanumhald um starfsemi frístundaheimila og
félagsmiðstöðva; skipulagning, upplýsingagjöf, innritun
og skráning.
• Þátttaka í matsteymi sem vinnur að ytra mati á gæðum frístundastarfs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og
félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
• Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða
mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
• Víðtæk reynsla af starfi með börnum og unglingum.
• Víðtæk þekking og reynsla af frítímastarfi.
• Færni í framsetningu og miðlun upplýsinga ásamt greiningu gagna.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
• Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góð tölvukunnátta.
Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra háskólaskrifstofu
Háskólans á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
þann 1. mars 2018. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu
Umsóknir og fylgigögn skal senda rafrænt á skrifstofu rektors Háskólans á Akureyri á netfangið starfs-
umsokn@unak.is. Ekki er notað staðlað umsóknareyðublað.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um opinbera
háskóla nr. 85/2008 og reglur nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki
teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn
getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum
umsóknum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Eyjólfur Guðmundsson rektor, rektor@unak.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur
konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Stjórnun og samræming á verkefnum háskólaskrifstofu.
• Rekstur háskólaskrifstofu.
• Ábyrgð á rekstri og umsjón fasteigna.
• Skipulag og þróun háskólaskrifstofu.
• Starfsmannamál og starfsemi háskólaskrifstofu.
• Starfar með forsetum fræðasviða vegna skrifstofuhalds og fjárreiða fræðasviða.
• Leiðir teymi stjórnenda innan sviða háskólaskrifstofu.
• Stýrir heildarstefnumótun háskólaskrifstofu.
• Innleiðing og eftirfylgni með stefnu háskólaskrifstofu.
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur sviða háskólaskrifstofu.
Umsókn skal fylgja:
• Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
• Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
• Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni umsækjanda í starfið.
• Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfir-
maður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
www.unak.is/lausstorf
há
sk
ól
as
kr
ifs
to
fu
Fr
am
kv
æ
m
da
st
jó
ri
kopavogur.is
Kópavogsbær
Eftirlitsverkstjóri
Þjónustumiðstöðvar
Kópavogsbæjar
Kópavogsbær óskar eftir að ráða öflugan
einstakling í starf eftirlitsverkstjóra
Þjónustumiðstöðvar. Hér er um að ræða
gott tækifæri fyrir þá sem hafa reynslu
af framkvæmdum í jarðvegsvinnu og/eða
malbiksframkvæmdum að nýta reynslu sína til
að viðhalda og bæta gatnakerfi bæjarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Eftirlit með verktökum.
• Staðfestir magntölur og reikninga verktaka.
• Metur og merkir viðgerðarstaði malbiks og
framkvæmir magnmælingar
• Staðfestir verklok framkvæmda.
• Fylgist með að öryggisatriði og merkingar
verktaka séu í lagi.
• Sinnir öðrum eftirlitsstörfum sem til falla
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af jarðvegs- og eða
malbiksframkvæmdum.
• Reynsla af eftirlitsstörfum kostur.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Aukin ökuréttindi og vinnuvélapróf kostur.
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Leifur
Eiríksson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar
í síma 441-9000 eða í tölvupósti leifureiriks@
kopavogur.is.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar
LIND FASTEIGNASALA
Auglýsir eftir
fasteignasölum til
starfa.
Reynsla af sölu
fasteigna skilyrði.
Áhugasamir sendi
tölvupóst og ferilskrá á
hannes@fastlind.is
Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ /
Uppspretta ánægjulegra viðskipta
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
C
-5
4
A
0
1
E
B
C
-5
3
6
4
1
E
B
C
-5
2
2
8
1
E
B
C
-5
0
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K