Fréttatíminn - 04.03.2017, Page 10

Fréttatíminn - 04.03.2017, Page 10
10 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 4. MARS 2017 Landið er sérstakt Johanna kom fyrst til Íslands fyrir fjórum árum sem ferðamaður. Henni finnst Ísland ekki vera staður sem maður getur bara heimsótt. „Ég áttaði mig á því að Ísland er ekki land sem maður getur bara heimsótt, fyrir mig var landið sér- stakt.“ Segir Johanna Bucher. Jo- hanna kemur frá Luzern í Sviss og kom fyrst til Íslands fyrir fjórum árum sem ferðamaður. Hún flutti svo til Íslands sumarið 2016 og vann í upphafi á sveitabæ en býr nú í miðbæ Reykjavíkur og vinnur á veitingastaðnum Snaps. Ég var á Íslandi í mánuð fyrir fjórum árum og landið heillaði mig. Upp komu allar þessar spurn- ingar og ég þurfti meiri tíma. Svo var ég líka að leita að meira rými til þess að hugsa og mér fannst það vera mögulegt hérna.“ Að sögn Johönnu skiptir náttúran hér miklu máli og henni fannst gott að vinna í mánuð á sveita- bæ í Vatnsnesinu til að vera nærri náttúrunni. „Það er eitthvað mjög frelsandi við Ísland, kannski er það nálægðin við náttúruna en það er öðruvísi heldur en heima fyrir.“ Hún leggur nú stund á ís- lensku í málaskólanum Multikulti og stefnir á að ná betri tökum á tungumálinu. Johanna veit ennþá ekki hve lengi hún stefnir á að búa á Íslandi en eins og staðan er núna þá líkar henni landið vel og ætlar að vera hér um sinn. Fann hér næði til að skapa Alejandra de Ávila flutti til Íslands til að einbeita sér að tónsmíðum. „Eitt af því fyrsta sem ég elskaði við að búa hér voru sundlaugarn- ar og að fara út að hlaupa með- fram ströndinni,“ segir Alejandra de Ávila. Alejandra er ættuð frá Mexíkó en hefur eytt stærstum hluta ævi sinnar í Skotlandi og Austurríki. Hún lauk námi í tón- smíðum og hreyfingu frá Vínar- borgarháskóla fyrir tveimur árum og flutti stuttu svo til Íslands. „Þar til fyrir fjórum árum var ég atvinnuflamencodansari en frá því ég kláraði námið í Vín hef ég ein- beitt mér að tónsmíðum. Það var fyrst og fremst þess vegna sem ég flutti hingað, til að ná einbeitingu. Reykjavík er góður staður til þess. Ég hafði komið áður því systir mín flutti hingað frá Mexíkó. Reykjavík er skemmtileg því hér er næði en líka nóg um að vera, ef þú vilt. Það er mikið um að vera í listalífinu og ég hef kynnst mikið af dásam- lega skapandi fólki í Listaháskólan- um þar sem ég er í mastersnámi. Kennararnir hér hafa haft mik- il áhrif á mig, jafnvel meiri en kennararnir í tónlistarakademí- unni í Vín,“ segir Alejandra sem vinnur líka í Kramhúsinu þar sem hún kennir dans. „Ég var að leita að góðum stað til að þroska sjálfa mig sem tónsmið en líka sem manneskju og mér finnst ég hafa tekið rétta ákvörð- um með að velja þessa borg. Hér hef ég næði til að skapa en samt er líf. Þessi blanda af fallegu lands- lagi, góðu fólki og lifandi borg er alveg einstök í Reykjavík,“ segir Alejandra sem býr nálægt sjónum í Vesturbænum. „Það tók mig langan tíma að finna góðan stað til að búa á því ég vildi vera í göngufæri við miðbæinn. En svo fann ég þessa íbúð og er alsæl. Planið núna er að halda áfram að semja og fara svo í doktorsnám, vonandi á Íslandi.“ Sarah Uddfolk er frá Gauta- borg. Hún hefur búið hér síðan í fyrrasumar og á von á barni með kærastanum sínum sem er íslenskur. „Ég er komin 15 vikur á leið en ég hitti bara kærastann minn fyr- ir fjórum mánuðum. Við erum mjög hamingjusöm og spennt yfir barninu,“ segir Sarah Uddfolk frá Svíþjóð. Sarah kom til Íslands í fyrrasumar í gegnum norrænu vinnumiðlunina Nordjobb þar sem hún vann á hóteli á Höfn. „Ég hafði aldrei komið til Íslands og ætlaði fyrst til Grænlands. En þegar mér var boðið starf á Höfn fannst mér það hljóma betur, svo 10 dögum eftir að ég sótti um stóð ég á Íslandi.“ Sara bjó á Höfn í sex mánuði og líkaði dvölin vel, enda bjó starfs- fólkið saman og stemningin góð. „Það var auðvitað stór breyting að flytja frá stórborginni Gautaborg í lítinn bæ með varla 2000 manns,“ segir Sarah sem býr nú í Hvera- gerði og sækir vinnu í Reykjavík. Sarah og barnsfaðir hennar, Þór, búa hjá móður hans meðan þau safna sér fyrir íbúð en þau vilja búa í Reykjavík. Sarah vinnur í Kaffivagninum úti á Granda en Þór vinnur hjá Advania. Aðspurð um hvort þau stefni á að flytja aftur til Svíþjóðar hikar Sarah en segir svo að Gautaborg hafi breyst mikið á síðustu árum. „Ísland er meira eins og heimili, mér finnst allt svo brjálað í Svíþjóð og eins og borgin hafi misst sálina sína. Fólk hefur gleymt því hvað er mikilvægt og hugsar mikið um peninga,“ segir hún. Að mati Söruh vinnur borgin heldur ekki nægi- lega vel úr málefnum flóttafólks, sem bíður eftir úrvinnslu sinna mála sem skapar slæmt ástand í borginni. Henni líkar lífið á Íslandi vel og reynir eftir bestu getu að ná tökum á tungumálinu. „Svo kemur bráðum barn sem lærir íslensku með mér,“ bætir hún við og hlær. Ísland meira eins og heimili „10 dögum eftir að ég sótti um stóð ég á Íslandi.“ Mynd | Hari Elskar stemninguna í miðbænum Alice Demurtas lauk námi í Háskóla Íslands síðastliðið vor og langar að setjast hér að. „Mér fannst Ísland spennandi því það er ekki of langt frá Sardiníu en samt svo allt öðruvísi. Ég kom hing- að fyrst sem skiptinemi þegar ég var sautján ára, bjó á Seltjarnarnesi og var í Kvennó í eitt ár. Og þá ákvað ég að koma hingað aftur eftir menntaskóla og taka há- skólanámið hér, segir Alice Demurtas sem flutti hingað frá Sardiníu fyrir fjórum árum. Hún lauk námi í ensku og fjölmiðlafræði við HÍ í vor og dreymir um að verða blaðamaður, helst á Íslandi. „Ég hef unnið sem blaðamaður á netinu fyrir er- lenda miðla og hef verið í starfsnámi en nú langar mig að skrifa á íslensku og fá eitthvað borgað fyrir það. Eins og er vinn ég í bænum og þess vegna bý ég í bæn- um, og mig langar ekki að eiga bíl. Núna bý ég með íslensku pari nálægt Vesturbæjarlauginni. Það er rólegt hverfi en samt fínt því það er nálægt bænum. Ég elska stemninguna í miðbæ Reykjavíkur. Maður er alltaf að hitta allskonar fólk og það er svo mikið um að vera og gott framboð af menningu og mat. Ef mig langar að vera ein þá rölti ég bara út á Gróttu,“ segir Alice. Hún segir bæði vinahópinn og vinnustaðinn vera mjög fjöl- breyttan. „Ætli þetta sé ekki svona 50/50 Íslendingar og útlendingar.“ „Það er eitthvað mjög frelsandi við Ísland.“ Myndir | Hari Alice dreymir um að vinna sem blaðamaður á Íslandi. Mynd | Hari Pierre de Lépinay vill tryggja sér samastað á Íslandi. „Ég kom hingað sem skiptinemi fyrir nokkrum árum og ætlaði bara að vera í eitt ár. En ég varð svo hrifinn af staðnum að ég er ekki enn farinn,“ segir Pierra de Lépinay sem ólst upp í París. Áður en hann flutti til Íslands bjó hann í Danmörku þar sem hann vann við ljósmyndun. „Það var alls ekki bara náttúran sem ég féll fyrir heldur líka andrúmsloftið í Reykja- vík. Ég hef alltaf búið í miðbæn- um og leigt lítið herbergi sem mér finnst ég hafa verið mjög heppinn að finna. Það er mjög ódýrt sem þýðir að ég hef ekki þurft að vinna fullt starf og getað notað frítímann í sjálfan mig. En nú verð ég bráð- um að skila herberginu og þar sem það er ekki séns að finna sama díl í Reykjavík í dag er ég að spá í að fara eitthvert annað, allavega þar til leigumarkaðurinn róast,“ segir Pierre sem dreymir þó um að setj- ast hér að. „Við kærastan mín viljum safna peningum og kaupa hús einhvers- staðar á Íslandi, bara til að tryggja okkur samastað hér í framtíðinni. Þetta er auðvitað stór ákvörðun og erfið fyrir okkur því við erum yf- irleitt ekki með nein ákveðin plön í lífinu.“ Tónskáldið og flamencodansarinn Alejandra kennir dans í Kramhúsinu og stefnir á doktorsnám á Íslandi. Mynd | Hari Vill kaupa hús á Íslandi Pierre gerir ráð fyrir að flytja frá Íslandi vegna hækkandi leiguverðs en dreymir um að kaupa sér hús hér á landi. Mynd | Hari Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík 516 6000 • veitur.is Útboð Veitur ohf. Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • veitur.is Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík 516 6000 • veitur.is tboð Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið: Framkvæmdasvæðið er meðfram Vatnsendahvarfi frá Tónahvarfi, að og inn með Turnahvarfi. Verktaki skal grafa skurði fyrir hitaveitulagnir, ídráttar- rör, rafstrengi og fjarskiptalagnir. Í skurðina skal verktaki sanda undir og yfir rör og strengi, leggja láspennustrengi, rör, ídráttarrör og fjarskiptalagnir, fylla yfir og ganga frá. Jafnframt skal hann grafa fyrir og annast uppsetningu á lokum, spindlum, tengiskápum, ljósastólpum og brunnum. Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með miðvikudeginum 01.03.2017 á vefsíðu Ork veitunnar https://www.or.is/fjarmal/ut- bod#page-7016 Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV-2017-04, Turnahvarf veitukerfi útgefnum í febrúar 2017“ Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 23.03.2017 kl. 11:00 VEV-2017-04 25.02.2017 TURNAHVARF VEITUKERFI:

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.