Fréttatíminn - 04.03.2017, Side 26
að standa við það sem mann langar
að gera. Að æfa sig í því að stíga inn í
kuldann, eða óttann, styrkir þig í því
að takast á við lífið. Kuldinn herðir
mann andlega og líkamlega en þetta
snýst líka um að vita hver okkar eig-
in mörk eru. Maður byggir þolið
upp hægt og rólega og passar sig að
fara aldrei lengra en maður getur,“
segir Þór sem fór síðastliðið sumar í
kennaranám til Hof í Hollandi og eft-
ir það hefur hann ferðast með hon-
um bæði um Ísland og Pólland til að
styrkja líkama og sál í jökulköldum
böðum og á frostköldum fjöllum.
„Það er rosalega magnað að upplifa
það að ganga á fjall í tíu stiga frosti í
þrjá tíma á stuttbuxum. Ég hélt að ég
ætti eftir að þjást eða jafnvel drepast
úr kulda en með þessari tækni þá
þolir maður ótrúlega hluti og kikkið
er rosalegt. Þú ert í svo miklu horm-
ónabaði að þér líður eins og þú getir
sigrað heiminn.“
Vísindamenn við hollenska Rad-
boud háskólann komust að þeirri
niðurstöðu, sem var birt í Science
Daily árið 2011, eftir heilmiklar
rannsóknir, að Hof hefði algjörlega
einstaka hæfileika til að hafa áhrif
á eigið taugakerfi og ónæmiskerfi
með hjálp hugleiðslu og öndunar.
En niðurstaða þeirra var jafnframt
sú að þar sem hæfileikinn hefði að-
eins komið fram hjá einum einstak-
lingi væri ekki hægt að sanna með
vissu að þetta sé almennt hægt. Hof
vildi ekki una þessari niðurstöðu, að
hann væri einstakur, því hann segir
hvern sem er geta lært að hafa stjórn
á viðbrögðum líkamans við ytri að-
stæðum. Og þar með var hans næsta
takmark í lífinu komið; að kenna
áhugasömum að nýta aðferðir sínar.
Og þannig lágu leiðir hans og Þórs,
íslenska ísmannsins, saman.
Hættur á lyfjum
Þór er einn af nemendum Hof í dag
og reyndar líka góðvinur. Sjálfur
segist Þór hafa alist upp á líkams-
ræktarstöð og fengið áhugann á
ræktun líkama og sálar með blóð-
inu. Hann er sonur Guðna Gunnars-
sonar sem kynnti rope-yoga fyrir
Íslendingum og móðir hans, Katý
Hafsteinsdóttir, vann í mörg ár við
að þjálfa fegurðardrottningar. Síð-
astliðin fimmtán ár hefur Þór starfað
sem einkaþjálfari.
„Ég hef alltaf verið í þessum heimi
og byrjaði ungur að stunda jóga og
fór í jógakennaranám til Indlands og
lærði svo einkaþjálfun í Bandaríkj-
unum. Ég hef alltaf verið að leita að
leiðum til að ögra sjálfum mér, hvort
sem það er í gegnum jóga, snjó-
brettaiðkun, fallhlífastökk, paraglid-
ing eða líkamsrækt. Mér finnst gott
að fara út fyrir þægindarammana
og hef alltaf fylgst með umfjöllun-
um um fólk með einstaka líkam-
lega hæfileika. Fyrir svona þremur
árum fór umfjöllunin um Wim Hof
að verða áberandi og ég varð forvit-
inn,“ segir Þór.
„Það var ekki kuldinn sem hróp-
aði á mig því mér hefur aldrei liðið
neitt sérstaklega vel í kulda. Það
höfðaði í raun meira til mín að
stökkva fram af fjalli í fallhlíf en að
hoppa í kalt vatn. Ég ákvað samt að
prófa þetta, fyrst og fremst vegna
löngunar til að vera frjáls í eigin lík-
ama. Að þurfa ekki að vera háður því
að einhver annar en ég lagi hvernig
mér líður, segir Þór sem byrjaði á
því að lesa bók Hof, fékk sér svo app
26 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 4. MARS 2017
„Líðanin eftir að hafa verið lengi í kuldanum er svo góð að jákvæðu áhrifin á
líkamann fara ekkert á milli mála,“ segir Þór sem stefnir á að opna líkamsræktar-
stöð með vinum sínum sem einnig stunda aðferðina. „Við ætlum að opna líkams-
ræktarstöð í vor þar sem áhersla verður lögð á að vinna með eigin líkamsþyngd og
náttúrulegar hreyfingar. Við ætlum að samræma þannig hreyfingu við Wim Hof
aðferðina og verðum að sjálfsögðu með stóran kælitank á staðnum.“ Mynd | Hari
Heimsmetalisti
Wim Hof
Hof segir tilganginn með
heimsmetunum vera að vekja
athygli á aðferðum sínum við
að stjórna taugaviðbrögðum
líkamans, þar sem allir geti lært
að hafa áhrif á eigin heilsu og
vellíðan.
-Hljóp eyðumerkur-maraþon í
Namibíu án þess að drekka vatn
-Hefur setið lengst allra í klaka-
baði (án þess að líkamshitinn
lækki í hans tilfelli)
-Hékk á einum fingri í 2000 metra
hæð
-Kleif hluta Everest í stuttbuxum
og sandölum
-Kleif Kilimanjaro í stuttbuxum
-Hefur kafað lengst allra
undir ís á Norðurpólnum,
aðeins í sundskýlu
-Hljóp Lapplands-
maraþoni í 20 gráðu
frosti, berfættur í
stuttbuxum
til að læra inn á kuldastjórnun og
tók svo tíu vikna námskeið á netinu.
„Þetta greip mig algjörlega. Þegar ég
var kominn vel á veg fann ég hvern-
ig þetta gjörbreytti lífi mínu. Ég var
greindur með ADHD fyrir nokkrum
árum og var búinn að vera á lyfjum
við því í tvö ár en á fyrstu vikunni á
Wim Hof aðferðinni fann ég hvernig
mig langaði til að hætta á lyfjunum.
Ég gerði það og hef ekki upplifað
þörf til að taka þau síðan. Svo var ég
með áreynsluastma og samkvæmt
læknisráði átti ég að taka sterapúst
kvölds og morgna alla daga. En síð-
an ég byrjaði i þessu er ég nánast
hættur að nota astmalyf.“
Kikkið er rosalegt
„Aðferðin snýst í grunninn um köld
böð, öndun og staðfestu. Þú sest
niður og andar á ákveðinn hátt og
ofan á það bætast svo líkamlegar æf-
ingar og hugleiðsla. Það þarf ótrú-
lega staðfestu til að stíga í ískalda
sturtu á morgnana, eða að hoppa
fram af kletti í jökulkalt vatn,“ segir
Þór sem byrjar hvern einasta dag á
jógaæfingum, Wim Hof öndunaræf-
ingum, hugleiðslu og svo ískaldri
sturtu. Hann fer reglulega í kalda
tankinn í líkamsræktinni þar sem
hann vinnur en segir langöflugast
að fara út í sjálfa náttúruna. „Við för-
um mikið í árnar upp í Mosfellsdal
eða í gjárnar á Þingvöllum. Í köldu
vatninu þrengjast æðarnar en þegar
þú kemur upp úr opnast þær aftur
til að líkaminn nái upp hita. Þannig
þjálfar þú samdrátt og útvíkkun al-
veg eins og þú gerir þegar þú lyftir
lóðum, nema þarna ertu að gera það
í hjarta- og æðakerfinu. Líðanin eftir
að hafa verið lengi í kuldanum er svo
góð að jákvæðu áhrifin á líkamann
fara ekkert á milli mála. Þetta er
bara svo hrikalega gaman.“
„Þetta byggir upp sjálfstraust því
hvað er sjálfstraust annað en að þora
Húsið opnar klukkan 15 og verður boðið upp á léttar veitingar í anddyrinu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16.
Allir eru velkomnir, stofnfélagar Frjálsrar fjölmiðlunar og þau sem vilja styðja frjálsa og óháða blaðamennsku á Íslandi.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Við stofnun Frjálsrar fjölmiðlunar verður efnt til fagnaðar þar sem fjölmargir listamenn halda uppi stemningu.
Meðal þeirra sem fram koma eru:
ÞJÓNUSTA Í ALMANNAÞÁGU
EYÞÓR GUNNARSSON • GUÐMUNDUR PÉTURSSON
BAGGALÚTUR • ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
BUBBI MORTHENS • GUNNAR ÞÓRÐAR OG MAGGA STÍNA
HUNDRAÐ KVENNA KÓR UNDIR STJÓRN MÖGGU PÁLMA
ARNLJÓTUR SIGURÐSSON ÚR OJBA RASTA • TRIPOLA
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON OG LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR
ÞORSTEINN EINARSSON ÚR HJÁLMUM • RAGNHEIÐUR GRÖNDAL
EGILL ÓLAFSSON • SVAVAR KNÚTUR OG PÉTUR BEN
ANDRI ÓLAFSSON OG EINAR SCHEVING