Fréttatíminn - 04.03.2017, Síða 46
6 LAUGARDAGUR 4. MARS 2017HEIMILI&HÖNNUNARMARS
470.725,-
TINTA LIGHT GREY
Innifalið eru skápar, sökklar, borðplata og
innvolsi. Ekki innifalið í verði er vaskur,
blöndunar- og heimilistæki, ljós og skraut.
KVIK Reykjavík, Suðurlandsbraut 16, sími 5880500, kvik.dk
DÖNSK HÖNNUN
NÝJUNG
Pantaðu tíma
hjá innréttinga-
hönnuði
Framúrskarandi
hönnuðir í Epal
Verslunin Epal hefur verið þátttakandi í Hönnunarmars allt frá
upphafi og að þessu sinni sýna hönnuðir á borð við Sigurjón Pálsson,
Hring eftir hring og iHanna Home í versluninni.
Epal mun í ár sýna áhuga-verða hönnun eftir fjöl-breyttan hóp hönnuða sem eiga það sameigin-legt að hafa skarað fram
úr í hönnun á Íslandi og jafnvel á
alþjóðlegum vettvangi. Haft hef-
ur verið að leiðarljósi frá stofnun
Epal árið 1975 að auka skilning og
virðingu fyrir hönnun á Íslandi
með því að velja góða hönnun
og gæðavörur fyrir viðskiptavini
Epal og hluti af því er þátttaka í
HönnunarMars,“ segir Kjartan
Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri
Epal.
Aðspurður um áherslurnar í ár
segir Kjartan: „Við höfum valið
nokkra framúrskarandi hönnuði
sem sýna hjá okkur í ár þær nýj-
ungar sem þau hafa verið að vinna
að, þar má nefna iHanna home,
Hring eftir hring , Anna Thor-
unn, Sigurjón Pálsson og Marý.
Ásamt því sýnum við útkomu úr
samstarfsverkefni Epal við einn
fremsta hönnuð Dana, Margrethe
Odgaard verðlaunahafa virtu
Söderberg verðlaunanna 2016.
Þetta eru glæsilegar værðarvoð-
ir og púðar framleiddir á Íslandi
úr íslensku hráefni. Einnig verður
til sýnis hjá okkur áttunda ser-
ía frímerkjanna „íslensk sam-
tímahönnun“ eftir Örn Smára
sem fjallar í ár um íslenska textíl-
hönnun. Frímerkin sýna hönnun
eftir þær Anítu Hirlekar, Bryndísi
Bolladóttur, Rögnu Fróða og Vík
Prjónsdóttur. Höfundar textílsins
hafa hlotið margvísleg verðlaun og
viðurkenningur fyrir hönnun sína
í gegnum tíðina.“
Sýningin í Epal ber yfirskriftina
„Íslensk hönnun í sinni litríkustu
mynd“ og fer fram dagana 23.-26.
mars á efri hæð verslunar Epal í
Skeifunni. Opnunarhóf „verður
haldið miðvikudaginn 22. mars
milli kl. 17 og 19 og er öllum vel-
komið að mæta,“ segir Kjartan.
Er það mikilvægt fyrir Epal að
styðja við unga íslenska hönnuði ?
„Já það er okkur mikilvægt,
Epal hefur alla tíð stutt íslenska
hönnuði og við leggjum okkur
fram um að hjálpa þeim við að
koma verkum sínum á framfæri og
í framleiðslu,“ segir Kjartan.
Kjartan Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Epal.