Fréttatíminn - 10.03.2017, Side 1
Staðan í Klíníkurmálinu er afar
snúin þar sem Sjúkratryggingar
Íslands virðast hlynntar opnun
einkarekins sjúkrahúss en
Landspítalinn er á móti hug-
myndinni. Óttarr Proppé þarf að
taka ákvörðun um einkarekna
sjúkrahúsið undir pressu frá
hagsmunaðilum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands,
Steingrímur Ari Arason, segir að
Ótttar Proppé heilbrigðisráðherra
hafi sagt að samkvæmt gildandi
lögum og reglum eigi hann að
samþykkja að Klíníkin fái leyfi til
að gera aðgerðir sem kostaðar eru
með skattfé. Steingrímur Ari vill
ekki gefa upp sínar eigin skoðan-
ir á málinu en segir aðspurður að
hann hafi „heldur betur“ skoðanir
á því og tjái þær á fundum um mál-
ið. Sjúkratryggingar Íslands hafa í
gegnum árin verið mjög fylgjandi
einkaframtaki í heilbrigðiskerfinu.
Óttar Proppé segir í gegnum
aðstoðarmann sinn að hann hafi
enga ákvörðun tekið í málinu enn
sem komið er og að það séu fréttir
út af fyrir sig ef einhver gefur eitt-
hvað annað í skyn.
Sjúkrahús Klíníkurinnar yrði
fyrsta einkarekna sjúkrahús lands-
ins ef Óttarr tekur ákvörðun um
að Sjúkratryggingar eigi að kosta
ákveðnar aðgerðir sem krefjast
innlagnar á legudeild Klíníkurinn-
ar, meðal annars mjaðmaskipta-
aðgerðir.
Landspítalinn berst hins vegar
gegn opnun sjúkrahússins þar
sem rekstur þess muni koma
niður á spítalanum. Í máli Sig-
ríðar Gunnarsdóttur, starfandi
forstjóra Landspítalans, kemur
fram að hugsanlegt sé að opnun-
in stríði gegn lögum um starfsemi
Landspítalans og einnig reglugerð
um heilbrigðismál. Sigríður seg-
ir að hluti inntaks laganna sé að
þegar semja eigi um einkarekna
heilbrigðisþjónustu skuli þess gætt
að „raska ekki þeirri þjónustu sem
fyrir er og veita ber lögum sam-
kvæmt“.
Birgir Jakobsson landlæknir vill
ekki gefa upp afstöðu sína í mál-
inu að svo stöddu þar sem embætti
hans sé að taka saman upplýsingar
um árangur átaks sem farið var í
til að stytta biðlista eftir ákveðn-
um aðgerðum, meðal annars
mjaðmaskiptaaðgerðum. Þess-
ar niðurstöður skipta máli þegar
þörfin fyrir þjónustu Klíníkurinn-
ar er metin þar sem aðgerðir fyrir-
tækisins eiga að stytta biðlista eftir
aðgerðum á Landspítalanum.
Málið er því mjög eldfimt og við-
kvæmt og er Óttarr Proppé í erf-
iðri stöðu með Sjúkratryggingar og
Klíníkina öðrum megin í málinu
og Landspítalann hinum megin.
Afstaða landlæknis er svo óljós.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
19. tölublað
8. árgangur
Föstudagur 10.03.2017
KRINGLUNNI ISTORE.IS
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreingaraðili DJI á Íslandi
Sérverslun með Apple vörur
Mavic Pro
Frá 169.990 kr.
Phantom 4 Pro
Frá 219.990 kr.
Inspire 2
Frá 449.990 kr.
Mynd | Hari
Ráðherra undir pressu vegna
einkarekins sjúkrahúss
24 28 34
2
4
16
Vill neyðarlög um
húsnæðisvandann
8
Jóhann Már Sigurbjörnsson gefst
upp á baráttunni og hættir sem
formaður Samtaka leigjenda.
KRINGLUNNI OG SMÁRALIND
NÝJAR
VÖRUR
Fórnarlamb
árásarinnar í
Vestmannaeyjum
flúið land
Leigufélagið Heima-
vellir þenst út
Með 1500 milljónir í
leigutekjur í fyrra
Fullorðin í foreldrahúsum
Sambúð er góð þegar maður syrgir
Þeir sem hafa
hlutverki að
gegna í lífinu
líður betur,
þéna betur og
stunda betra
kynlíf
327 milljóna arður
frá 2008 út úr einka-
reknu bæklunar-
læknafyrirtæki
Stífar æfingar
hjá íslenskum
klappstýrum