Fréttatíminn - 10.03.2017, Page 45
9 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017 FERMINGAR
Fylltu krukkur með niðurskornum
ávöxtum, mintublöðum, sítrón-
usneiðum, gúrkubitum, berjum
og fleira og láttu standa á veislu-
borðinu. Hafðu könnu af vatni og
sódavatni á borðinu svo gestirnir
geti valið sér krukku og hellt vatni
yfir til að búa til ferskan og hollan
drykk. Hafðu lok á krukkunum til
að viðhalda ferskleika. Það er líka
hægt að búa til ísmola með berjum
til að setja út í drykkina. Ein hug-
mynd er fylla skál eða bala með
ísmolum með frosnum blómum til
að stinga drykkjum í kæli.
Landsbankinn landsbankinn.is 410 4000
Sparaðu og við
hvetjum þig áfram
Landsbankinn greiðir 6.000 kr. mótframlag þegar fermingarbörn
leggja 30.000 kr. eða meira inn á Framtíðargrunn eða
í verðbréfasjóð. Ef báðir kostir eru nýttir leggur Landsbankinn því
til 12.000 kr. í mótframlag. Þannig viljum við hvetja til sparnaðar.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
JÓ
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
j
l.
is
•
S
ÍA
Ávaxtabar
Blandaðu eigin drykk í veislunni.
Settu vatn, ber og blóm í ísmolabox og
frystu yfir nótt. Notaðu klakana í drykki
eða til að skreyta með.
Krukk-
ur með
ávöxtum
og fleira til að
búa til eigin
drykki. Eða til að grípa
sem hollt snarl.
FERMINGARDAGURINN MINN
Fermdist í
fánalitum
Dansarinn Katrín
Gunnarsdóttir fékk
sígilda fermingagreiðslu,
glimmerhreiður!
Hvar og hvenær fermdist þú?
í Dómkirkjunni, 30. apríl árid
2000.
Hvað fékkstu í fermingargjöf?
Skartgripi og bækur, seðla í um-
slagi frá frændum og frænkum,
svo fékk ég klarinett í fermingar-
gjöf frá fjölskyldunni, fallegt hljóð-
færi sem ég á ennþá.
Í hverju varstu á fermingardaginn?
Þad var ansi skrautlegt, rautt
kálfasítt nælonpils og blár sanser-
aður þríhyrningatoppur sem var
galopinn í bakid. Toppurinn þótti
sýna heldur mikid hold, svo ég
samþykkti ad fara í hvíta skyrtu
yfir. Þannig ad ég fermdist í ís-
lensku fánalitunum ??
Er eitthvað sérstaklega eftirminni-
legt við ferminguna þína?
„Ég man aðallega eftir því að ég
fór í fermingagreiðslu og fékk
glimmerhreiður á hausinn. Það
og hvíti eyelinerinn fullkomnaði
lúkkið.“
Þorsteinn Guðmunds-
son grínisti og
þúsundþjalasmiður
Fékk trompet,
ritvél og
blekpenna í
fermingargjöf
Hvar og hvenær fermdist þú?
Ég fermdist árið 1980 í Bústaða-
kirkju. Veislan var haldin heima í
Undralandi 4.
Hvað fékkstu í fermingargjöf?
Trompet, ritvél, blekpenna sem
ég á ennþá og nota stundum, bæk-
ur og apastyttu sem var vinsæl á
þessum tíma og var eftirmynd af
Hugsuði Auguste Rodins.
Í hverju varstu á fermingardaginn?
Ég var spariklæddur í nýjum jakka
og í sérkennilegum skóm sem voru
með drapplitaðri tá. Ég hef aldrei
séð svona skó síðan.
Er eitthvað sérstaklega eftirminni-
legt við ferminguna þína?
Þetta var sérstaklega skemmti-
legur dagur og ég man hann vel
vegna þess að ég skrifaði dagbók
á ritvélina sem ég á einhvers stað-
ar ennþá. Það var eftirminnilegt
þegar móðurafi minn og frændur
mínir stilltu sér upp í einu horni
stofunnar og sungu ættjarðar-
söngva (enda komnir aðeins í glas,
eins og var ekki óalgengt í ferm-
ingarveislum á þessum árum).
FERMINGARDAGURINN MINN