Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 48
12 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR
Hvar og hvenær fermdist þú?
„Ég fermdist í Háteigskirkju árið
1993. Ég man ég þekkti engann í
hópnum af því að ég var nýfluttur í
Hlíðarnar en allir vinir mínir voru
í Vesturbæ Reykjavíkur.
Hvað fékkstu í fermingargjöf?
„Ég fékk svona dæmigerðar ferm-
ingagræjur. Minnir að merkið hafi
verið Akai eða Aiwa eða eitthvað
svoleiðis. Félagi minn fékk mjög
flottar Kenwood græjur. Öfundaði
hann mikið af græjunum hans.
Man líka að ég upplifði skömm yfir
því hvað ég fékk lítinn pening. það
var líka standard þá að fá svefn-
poka. Það var mjög huggulegt að
fá einn slíkan.“
Í hverju varstu á fermingardaginn?
„Ég var í svona fölfjólublárri
skyrtu og skræpóttu vesti, svart
og í fjólublárri litapallettu, með
þverslaufu í stíl við vestið. Síðan
var ég í svörtum jakka og í hvítum
Levi’s 501 gallabuxum. Mig langaði
bara aðallega í hvítu gallabuxurn-
ar og var slétt sama um restina. Ég
man líka að afi gerði athugasemd
við spariskóna mína, hann sagði
„voðalegir hnallar eru þetta“ eða
eitthvað svoleiðis. Mér fannst það
mjög óþægilegt af því að ég var
komplexaður unglingur og hef ör-
ugglega ekki samsvarað mér vel,
hef verið með of langa fætur mið-
að við hæð eða eitthvað.“
Er eitthvað sérstaklega eftirminni-
legt við ferminguna þína?
„Svona eftir á að hyggja þá finnst
mér eftirminnilegt hvað ég var
eitthvað stressaður yfir þessu öllu
saman og að ég vissi ekki almenni-
lega af hverju ég var að þessu.
Ég var í rauninni bara lítill í mér
og óþroskaður. Upplifði ekki að
ég væri að taka neina sérstaka
afstöðu. Í rauninni snerist þetta
allt meira um það hvort ég myndi
ná að leggja eitthvað á minnið og
hvernig það myndi eiginlega vera
að smakka eitthvert messuvín svo
væntingar um gjafir og stress yfir
einhverri veislu. Allt í sambandi
við Guð var í rauninni sett til hlið-
ar því fókusinn var á aðra hluti.En
mér er samt eiginlega alveg sama
í dag og sé ekki eftir neinu. Þetta
var bara voðalega krúttlegt allt
saman. Sáttur við að hafa fengið
hvítar Levi’s gallabuxur.“
Hvar og hvenær fermdist þú ?
Ég fermdist í Dómkirkjunni 15.
apríl 1984. Það var ekki kom-
in kirkja í Fellahverfið á þessum
tíma.
Hvað fékkstu í fermingargjöf ?
Armbandsúr, Orion sambyggða
hljómtækjasamstæðu úr Nesco,
hvítan Ikea hljómtækjaskáp (á
hann enn, en dóttir mín krotaði
stóra mynd af sjálfri sér á hann
þegar hún var lítil), Ajungilak
svefnpoka (á hann enn), stóran
National Geographic heimsatlas
með nafninu mínu gylltu á bóka-
kápuna, -ein albesta gjöfin því það
er áhugavert að sjá hvað Evrópa
hefur t.d. breyst frá því ég fermd-
ist (á hann enn), hring með rós
og hálsfesti með upphafsstafnum
mínum (á enn), lampa úr Ikea (sem
var á efri hæðinni í Hagkaup Skeif-
unni á þessum tíma) og svo ein-
hverja peninga sem komu
sér vel þegar ég fór að
sækja um nám í London.
Í hverju varstu á fermingar-
daginn ?
Ég var í ljóslituðu pilsi og
toppi úr búðinni Viktoríu
sem var á horni Lauga-
vegar og Bergstaðarstræt-
is.
Er eitthvað sérstaklega eft-
irminnilegt við ferminguna
þína ? (veislan, undirbún-
ingurinn, athöfnin).
Ég keypti mér 10 tíma
ljósakort fyrir ferm-
inguna en fór bara í
nokkra tíma af því ég
varð svo brjálæðislega
freknótt.
Veislan var haldin
heima, innskotsborð í
hverju horni, pússað silf-
Einn lítill í sér. Árni Vil á fermingadaginn.
FERMINGARDAGURINN MINN Hlakkaði til að
smakka messuvínið
Árni Vil úr listahópnum Kriðplei var óöruggur með sig þegar
hann fermdist en sáttur við að fá hvítar Levi’s gallabuxur.
Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda
Keypti sér 10 tíma
ljósakort fyrir ferminguna
ur og gríðarlegt magn af veiting-
um. Ég gat ekki ákveðið hvort ég
vildi hafa kaffi eða mat þannig að
mamma sló til og bauð upp á bæði
kaffi og mat. Veislan hlýtur að hafa
staðið í fimm eða sex tíma og allir
farið rúllandi saddir heim. Ég var
mjög ánægð með þetta allt saman
og núna í vikunni var ég einmitt
að panta kransaköku frá Steinþóri
bakara hér á Seltjarnarnesi fyrir
fermingu sonar míns sem verður
núna á sumardaginn fyrsta. Svo
skemmtilega vill til að það var
einmitt hann Jón, faðir Steinþórs,
sem bakaði kransakökuna sem var
í minni fermingu.
Happ Höfðatorgi | 105 Reykjavík | happ.is
Við skrifum upp á betri heilsu
með hollum mat úr fersku hráefni