Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 60
24 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR Unnið í samstarfi við Zöru Nú þegar fermingarn-ar eru á næsta leiti, eru margir farnir að huga að fatnaði fyrir fermingardaginn. Zara er með mjög gott úrval fyrir ferm- ingarbörnin og alla fjölskylduna. Herratískan Guðrún Sólborg er yfir herra- deildinni í Zöru í Smáralind. Þegar hún er spurð hvað sé vinsælast fyrir fermingardrengi segir Guð- rún. „Mín tilfinning er sú að þetta sé voða svipað og í fyrra. Það sem er vinsælast hjá strákunum eru stakir jakkar. Sem sagt ekki aðeins jakkaföt, heldur líka stakir jakkar og svo fallegar gallabuxur í stíl. Jakkarnir eru núna í mjög fal- legum litum, bláir og ljósir jakkar sem hafa selst mjög vel hjá okkur. Fermingartískan hefur breyst á þann hátt að það er meiri áhersla á svona „casual“ klæðnað. Það er hægt að koma til okkar og kaupa allt dressið frá toppi til táar. Við seljum jakkafötin okkar í tvennu lagi, buxur sér og jakki sér og það hefur verið verið mjög vinsælt að taka hvíta strigaskó við. Mér persónulega finnst það koma mjög vel út, en við eigum sömuleiðis mjög gott úrval af klassískum spariskóm.“ Þegar talið berst að skyrtum segir Guðrún: „Hvít skyrta er náttúrlega svakalega klassísk og gengur vel við allt. Ég hef líka tekið eftir því að mynstraðar skyrtur eru vin- sælar núna. Með hækkandi sól og vori hafa líka verið mjög vin- sælar hjá okkur blómamynstrað- ar skyrtur sem mér finnst koma mjög vel út. Kínakraginn hefur líka verið mjög vinsæll hjá okkur í skyrtunum.“ Hálstau hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár. Um það seg- ir Guðrún: „Já, mér hefur fundist það hafa verið á undanhaldi. Auðvitað eru alltaf einhverjir sem taka bindi eða slaufu. Slaufan var mjög vin- sæl fyrir svona 2-3 árum en mér finnst eins og það sé ekki eins vinsælt núna. Það tengist senni- lega því að fólk vill hafa lúkkið svolítið afslappaðra.“ Kvenna- og barnafatatískan Sigurbjörg Thelma er verslun- arstjóri hjá Zöru í Kringlunni, en þar er dömu- og barnadeild. Hvað skyldi vera vinsælast hjá stelpum í fermingarfatnaði? „Þetta er frekar hefðbundið finnst mér. Blazerar hafa verið mjög vinsælir hjá okkur og þeir ganga mjög vel við fallegan kjól. Litirirnir sem mér finnst vera mest áberandi eru bleikur og föl- bleikur. Hvítur kjóll við fölbleikan blazer finnst mér passa mjög vel saman. Mikið er um pífur núna í vor sem mér finnst passa mjög vel á móti blúndunni. Áherslan í vor hefur líka verið á stílhreinan og einfaldan klæðnað sem er alltaf mjög fallegt.“ Sigurbjörg segir að þau séu í raun með föt fyrir alla fjöl- skylduna. „Það er mikið um mæðgur komi saman til okkar og jafn- vel litlu systkinin líka og okkur finnst það ofsalega skemmtilegt þegar við fáum alla fjölskylduna til okkar. Við erum með mjög gott úrval hérna hjá okkur í barna- deildinni fyrir bæði kynin.“ Þegar talið berst að mynstrum segir Sigurbjörg: „Blómakjólar hafa verið mjög vinsælir hjá okkur. Það er ákveðinn vorboði í því að sjá blómamynstrin sem mér finnst ofsalega falleg og skemmtileg, minnir mann á að sumarið er á næsta leiti.“ Fermingardress frá toppi til táar á alla fjölskylduna Tískuverslunin Zara er staðsett á tveimur stöðum í Reykjavík. Í Smáralind er herradeild, en í Kringlunni er verslun fyrir konur og börn. Dökkblár blazer. 13.995 kr. Fölbleikur blazer með síðum ermun. 8.995 kr. Hvítir skór hafa verið vinsælir við jakkaföt í ár. 3.995 kr. Sandalar með háum hæl. 11. 995 kr. Bleikur kjóll. 6.995 kr. Gulur kjóll. 2.995 kr. Vinsælustu skyrturnar hjá fermingastrákum hjá Zöru til í þremur litum. 6.995 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.