Fréttatíminn - 10.03.2017, Síða 62
Unnið í samstarfi við MS.
Uppskriftasíðan gottimatinn.is er góður staður til að byrja á þegar kemur fermingarundirbún-
ingi bæði hvað varðar mat og
skreytingar. Á síðunni er flokkur
uppskrifta tileinkaður veislum og
fermingum, auk úrvals annarra
flokka þar sem finna má margs-
konar uppskriftir sem henta full-
komlega fyrir þetta stóra tilefni.
Það getur verið sniðugt að
reyna að útfæra veitingarnar út
frá uppáhaldsmat fermingar-
barnsins en þá er strax komin
persónuleg tenging við ferm-
ingarbarnið sem stundum vill
glatast í öllum hamaganginum
sem fylgir. Ef fermingarbarnið
veit ekkert betra en pitsur,
lasanja, súkkulaðibitakökur og
kleinuhringi, hví ekki að ganga
út frá því og bjóða gestum upp á
ljúffengt lasanja og smápitsur og
mögulega smákökur og ískalda
mjólk í eftirrétt? „Hvort sem ykk-
ur langar að bjóða upp á smá-
rétti og ljúffenga osta, snittur og
konfekt, heitt matarhlaðborð eða
dýrindis kökuveislu er valið ykkar
og heimasíða Gott í matinn getur
án nokkurs efa aðstoðað við
undirbúninginn,“
segir Guðný Steinsdóttir, mark-
aðsstjóri MS.
Fermingardagurinn er stór
dagur í lífi margra barna og fjöl-
skyldna þeirra. Að mörgu er að
huga og allir leggjast á eitt að
gera daginn sem eftirminnileg-
astan fyrir fermingarbarnið sjálft
sem og vini og stórfjölskyldu.
Fermingarveislur nú til
dags eru af ýmsum
stærðum og
gerðum og
þær eru
eins ólíkar
og þær eru
margar – rétt
eins og fermingar-
börnin sjálf. „Áður en
farið er af stað í undirbún-
ing veislunnar er því mikilvægt að
hafa í huga að það er ekki til nein
ein rétt uppskrift að fermingar-
veislu heldur skiptir mestu máli
að fermingarbarnið og foreldrar
þess setji niður á blað hvað þau
vilja og vinni saman út frá því,“
bætir Guðný við.
Á undanförnum árum hefur
það færst í vöxt að veislusalir
og heimahús séu skreytt í til-
efni fermingarinnar og er þannig
leitast við að gera veislurnar
bæði litríkari og persónulegri. Á
Pinterest-síðu Gott í mat-
inn má finna ara-
grúa hugmynda
sem fá ólíka
persónuleika
til að skína
í gegn í
veislunni,
t.d. með
því að hafa
uppáhald-
slit ferm-
ingarbarns-
ins í forgrunni
eða með því að
gera aðaláhuga-
málinu hátt undir höfði
hvort sem það er lestur góðra
bóka, einhver íþrótt, hljóðfæri
eða hvað annað. Eins vekur það
lukku að hafa gamlar myndir af
fermingarbarninu í bland við nýjar
á veisluborðinu, uppi á veggjum
eða hangandi niður úr blöðrum.
„Hugmyndirnar eru óþrjótandi og
Gott í matinn hjálpar ykkur við
undirbúninginn, sem er ekki síður
skemmtilegur en sjálfur ferm-
ingardagurinn,“ segir Guðný að
lokum að óskar fermingarbörnum
ársins og fjölskyldum þeirra til
hamingju með daginn.
Fermingarundirbúningur með Gott í matinn
Fjölbreyttar hugmyndir að veitingum og skreytingum á gottimatinn.is.
Hugmynda-
banki Gott í
matinn og Pin
terest
er óþrjótandi o
g
þangað er auð
velt að
sækja innblás
tur og
fá skemmtileg
ar
hugmyndir.
Unnið í samstarfi við Belladonna.
Það koma margar konur hingað um þetta leyti til að klæða sig upp fyrir ýmiskonar veislu-höld, bæði er mikið um
árshátíðir og svo ýmislegt annað
eins og tónleikar og fleira. Svo eru
fermingarnar auðvitað framund-
an,“ segir Stella Leifsdóttir í versl-
uninni Belladonna í Skeifunni.
Verslunin Belladonna var opnuð
árið 2004 og býður upp á fjöl-
breytt úrval af fatnaði í stærðum
38-58. Óhætt er að segja að búðin
sé nú full af nýjum og spennandi
vörum.
„Það er bókstaflega allt í tísku
um þessar mundir. Á sumrin koma
alltaf ljósir litir inn; sandlitir og
einhvers konar bleikur. En akkúrat
núna er navy-blár heitasti liturinn.
„Blue is the new black,“ er sagt,“
segir Stella en svartur hefur verið
tískuliturinn undanfarin ár.
„Auðvitað er svartur alltaf
klassískur og nýtur áfram vin-
sælda. En nú er þessi navy-blái
svolítið að leysa hann af. Blár er
enda mjög góð leið fyrir fólk til að
komast út úr svarta þemanu. Það
fylgir því öryggi að vera í dökku
en þessi litur er samt ekki eins
dökkur og sá svarti. En svo erum
við einnig með allskonar aðra liti
sem eru líka í tísku.“
Að sögn Stellu er mikilvægt að
velja sér föt sem fólki líður vel í.
„Auðvitað klæðir það þig best
sem þér líður vel í. Það er enginn
flottur ef hann er bara að elta ein-
hverjar tískubylgjur.“
Hvað er vinsælast hjá þér núna?
„Við erum með mikið af allskon-
ar kjólum og túníkur. Treggings
eru inni og pleður-buxur eru mjög
vinsælar um þessar mundir svo
eitthvað sé nefnt.“
Þó að nóg sé að gera í að
klæða konur upp fyrir
árshátíðir og ferm-
ingarveislur er Stella
líka farin að huga
að sumrinu.
„Já, fólk er farið
að undirbúa sum-
arið. Þær sem eru
að fara í sólina geta
nælt sér í sumarfatn-
að hérna, til að mynda
kvartbuxur, boli og „pon-
sjó slæður“,“ segir Stella.
Belladonna er til húsa í Skeif-
unni 8. Opið er á virkum dögum
frá klukkan 11-18 og á laugardög-
um frá 11-15. Nánari upplýsingar
má finna á heimasíðunni, www.
belladonna.is og á Facebooksíðu
verslunarinnar.
Mikilvægt að velja föt
sem manni líður vel í
Fjölbreytt úrval af tískuvörum í versluninni Belladonna í Skeifunni.
„Það er
enginn flottur
ef hann er bar
a að
elta einhverja
r
tískubylgjur.“
26 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR