Fréttatíminn - 17.02.2017, Page 2
Skattamál Skattrannsóknarstjóri
athugaði skattaskil 30 einstak-
linga úr Panamaskjölunum.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Embætti skattrannsóknarstjóra hef-
ur lokið rannsókn á þremur mál-
um af þrjátíu sem embættið hóf
athugun á úr Panamanskjölunum.
Rannsóknirnar snúast um við-
skipti Íslendinga í skattaskjólum og
meint lögbrot í tengslum við þau.
Um er ræða athugunina á gögnun-
um sem keypt voru af óþekktum
aðila fyrir 37 milljónir. Þetta kem-
ur fram í máli skattrannsóknar-
stjóra, Bryndísar Kristjánsdóttur,
þegar hún er spurð um stöðu rann-
sókna á viðskiptum Íslendinga í
Panamaskjölunum.
Skattrannsóknarstjóri er við það
að ljúka rannsókn á fleiri málum en
þessum þremur, eins og segir í svari
Bryndísar. „Af þessum fyrrnefndu
um 30 málum er rannsókn lok-
ið í þremur og nokkur önnur eru
á lokastigi rannsóknar. Einu af
fyrrnefndum þremur málum hef-
ur verið vísað til héraðssaksóknara
vegna gruns um peningaþvætti auk
skattalagabrots. Þá liggur fyrir að
taka ákvörðun um refsimeðferð í
hinum tveimur.“
Bryndís undirstrikar að í ein-
hverjum tilfellum kunni rannsókn
sem upphaflega snerist um aflands-
félög og skattaskjól að leiða eft-
irlitsaðila að öðrum brotum. „Hér
er ástæða til að taka fram að rann-
sókn kann að taka breytingum eftir
því sem henni vindur fram og eft-
ir atvikum kann niðurstaða rann-
sóknar að leiða í ljós önnur brota-
andlög en upphaflegur grunur stóð
um. Þannig kann mál sem upphaf-
lega laut að ætluðum brotum tengd-
um aflandsfélögum að leiða rann-
sóknaraðila á aðrar brautir.“
Rannsókn lokið á 3 málum
af 30 úr Panamaskjölunum
Þrjú af málunum þrjátíu úr
Panamaskjölunum er nú þegar búið
að rannsaka og nokkur önnur eru
langt komin. Bryndís Kristjánsdóttir
er skattrannsóknarstjóri. Mynd | Hari
Ballett Gunnlaugur Egilsson fer
með stærsta hlutverk á dansferli
sínum í verki sem frumsýnt
verður á stóra sviði Óperuhússins
í Stokkhólmi í kvöld. Mynd af
honum í búningi fyrir verkið, að
hrella börnin sín, hefur vakið
athygli á Instagrammi Konung-
lega ballettsins. Gunnlaugur
leggur dansskóna á hilluna í vor.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Konunglegi ballettinn í Svíþjóð birti
ljósmynd af ballettdansaranum
Gunnlaugi Egilssyni á Instagram-
-síðu sinni í gær, sem vakið hefur
þó nokkra athygli. Á myndinni er
Gunnlaugur í búning fyrir dans-
verk eftir Olivier Dubois, sem frum-
sýnt er á stóra sviði Óperuhússins í
Stokkhólmi í kvöld, föstudag.
Gunnlaugur fer með stærsta hlut-
verk sem hann hefur fengið á sín-
um dansferli í sýningunni en hann
hyggst leggja dansskóna á hilluna í
vor. Höfundurinn, Olivier Dubois,
er franskur og verkið heitir l’origin.
„Oliver er þekktur fyrir að ögra og
í þessum rúmlega 30 mínútna tvíd-
ansi gefum við meðdansari minn,
Jonna Savioja, okkur öll í verkið.
Myndin sýnir hinsvegar hvernig
vinnan hættir ekki endilega þegar
sviðið er yfirgefið. Börnin mín, Þór
og Tinna Vigdís, vita ekki hvaðan
á þau stendur veðrið í þessu uppá-
tæki föður síns og ýmist hlæja eða
gráta á víxl,“ segir Gunnlaugur.
Hann hefur verið búsettur í Sví-
þjóð í rúman áratug og dansað í fjöl-
mörgum uppsetningum Konung-
lega ballettsins.
Danshópurinn frumsýnir á sama
tíma verk eftir Sharon Eyal en þau
Dubois eru talin með framsækn-
ustu danshöfundum Evrópu um
þessar mundir.
Konunglegi ballettinn í Stokk-
hólmi var stofnaður af Gústav kon-
ungi þriðja árið 1173 og er því einn
elsti ballettdanshópur í Evrópu.
Ballettinn hefur unnið náið með
óperunni og sænska þjóðleikhús-
inu í gegnum tíðina og er gríðarlega
hörð samkeppni um að komast að í
hópnum.
Gunnlaugur ryksugar í búningi úr verkinu l’origin sem Konunglegi ballettinn í
Svíþjóð frumsýnir í Óperuhúsinu í Stokkhólmi í kvöld. Börn Gunnlaugs voru lítt
hrifinn af uppátækinu.
Mynd af
Gunnlaugi
að hræða
börnin
sín vekur
athygli
Dómsmál Rekstrarfélag Hrafn-
istu, Naustavör ehf., er gert að
endurgreiða sjö eldri borgurum
á Hrafnistu í Kópavogi samtals
1,3 milljónir króna, með drátt-
arvöxtum, vegna hússjóðs sem
stóð meðal annars straum af
skrifstofukostnaði, púttvelli og
eftirlitskerfa í sameign. Málið
gæti haft fordæmisgildi, en um
hundrað íbúðir eru í Hrafnistu
í Kópavogi. Hundruð íbúða til
viðbótar eru í Hafnarfirði og
Reykjavík.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Það var Jón G. Þórðarson, fyrrver-
andi byggingameistari, sem átt-
aði sig á því að pottur væri brot-
inn varðandi hússjóðinn fyrir sjö
árum. Hann, Guðlaug Gunnarsdótt-
ir, Hörður Guðmundsson og Hall-
dór Gíslason eru öll stjórnarmenn í
íbúafélagi Boðaþings í Kópavogi þar
sem íbúðir Hrafnistu eru. Jón segist
hafa reynt að vekja athygli á málinu
árið 2010 en enginn hafi haft áhuga
á sjónarmiðum hans. Hann gafst
þó ekki
upp,
heldur
hélt
áfram með málið ásamt félögum
sínum í stjórn íbúafélagsins, og
úr varð að þau sigruðu fyrir úr-
skurðarnefnd húsnæðismála sem
sagði gjaldtökuna, sem taldi um
14 þúsund krónur á mánuði, ólög-
mæta. Hrafnista hunsaði þann úr-
skurð.
„Það var reynt að semja við þá
oft, en þeir þvældu þessu máli á
milli,“ segir Jón og Guðlaug tek-
ur af honum orðið. „Það var bara
beðið eftir því að við dræpumst,“
segir hún.
Deilt var um það hvort eðli-
legt væri að íbúar stæðu straum
af stjórnunarkostnaði félagsins,
kostnaði vegna húsvörslu, vegna
eftirlitskerfa í sameign og kostn-
aði vegna reksturs púttvallar. Um
stjórnunarkostnaðinn sagði í dómi:
„Umrætt frávik á kostnaðarskipt-
ingu verður hins vegar að teljast
óvenjulegt, enda verður skrifstofu-
kostnaður með tilheyrandi launa-
kostnaði, seint talinn til venjulegs
kostnaðar í húsfélögum og enn
óvenjulegra er
að sá kostn-
aður sé færður yfir á leigutaka.“
Jón og félagar telja að málið snerti
með skýrum hætti á vanda eldri
borgara. Það hafi verið þeim dýrt
og tímafrekt að sækja rétt sinn og
að ekki sé á þau hlustað.
„Á hreinni íslensku, heitir þetta
bara svindl. Þegar fólk er komið
á þennan aldur þá á það ekki að
standa í svona löguðu,“ segir Guð-
laug. Jón segist vonast til þess að
fleiri láti reyna á rétt sinn hvað þetta
varðar. Sjálfur býst hann við endur-
greiðslu upp á rúmlega milljón
þegar dráttarvextir eru taldir með.
Sigurður Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Sjómannadags-
ráði, sem heldur utan um starf-
semina segir enn óljóst hvaða
afleiðingar málið hefur. Hann seg-
ist ekki trúa því að það muni hafa
alvarleg efnahagsleg áhrif á starf-
semina. „Dómurinn segir að það
sé ekki heimilt að innheimta þetta
utan húsaleigu. Það kemur okkur
verulega á óvart og mun hafa áhrif
á það sem við erum að gera. Það er
hinsvegar erfitt að segja eitthvað
til um afleiðingarnar. Við erum að
skoða hvað þetta þýðir með tilliti til
þess þjónustustigs sem við höfum
verið að veita.“
Dæmdir til þess að
endurgreiða íbúum
á Hrafnistu
Frá vinstri, Guðlaug Gunnarsdóttir, Halldór Gíslason, Hörður Guðmundson og Jón G. Þórðarson. Mynd | Hari
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar ég missti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
balsam.is
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017