Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017 Auðvitað er það gaman fyrir nýja þingmenn að setjast í fyrsta skipti á þing. Þetta starf er þrungið sögu og merkingu, væntingum og tilgangi. Segja má að hver nýr þingmaður sé óléttur af glæstum ókomnum stjórn- málaferli. Hann gengur reynd- ar með tvíbura, því í maga hans bíður líka stuttur og mislukkaður ferill, jafnvel skammarlegur. En fyrstu dagarnir á þingi eru hveiti- brauðsdagar og fyrsta ræðan jómfrúrræða; nafngiftir sem vísa til þess að verið sé að leiða þing- manninn inn í hjónaband með starfinu, kannski þjóðinni. Það er því ekki að undra þótt margur nýr þingmaður sé dálítið hátt uppi og dálítið fullur af sjálfum sér. Það er bara sætt. Samt verður fólk að hafa ein- hvern hemil á þessari tilfinningu. Það er skiljanlegt að nýir þing- menn telji að nú sé hafinn nýr kafli í Íslandssögunni. Þannig lítur það út frá þeirra bæjardyrum. Það er allt annað að sitja á þingi eða standa úti á Austurvelli eða vera að grilla í Garðabænum. En sú breyting boðar enga byltingu fyrir okkur hin. Við höfum áður fylgst með mannabreytingum á þingi og þær breyttu ekki miklu fyrir okkur. Auðvitað eiga þingmenn að vera nógu þroskaðir til að skilja muninn á þessu tvennu. Þótt þeir séu með fiðrildi í maganum þá blaka þau ekki vængjum sínum í raunheimi. En margir eru farnir að efast um að þingmenn geri þennan greinar- mun. Um daginn var ég á hlaup- um í bakarí og hljóp í fangið á manni sem gat ekki á heilum sér tekið út af Pírötunum. Hvað er að þessu fólki? sagði hann, af hverju getur þetta fólk ekki einbeitt sér að því sem miklu skiptir. Til hvers að vera að bera á borð mál eins og bjór í búðir eða hvort móðga megi þjóðhöfðingja? Eru þetta mest aðkallandi mál dagsins, spurði maðurinn. Ha, sagði ég, ég veit ekki, nei, er það? Nei, það er það ekki, svar- aði hann og hélt áfram. Af hverju er fókusinn ekki á yfirvofandi eignasölu og einkavæðingu? Af hverju er ekki verið að tala um hvernig við eigum að afla tekna til að standa undir velferðarkerfinu í stað þess að láta narra okkur til að selja eignir til að stoppa í göt- in? Af hverju hættum við að tala um heilbrigðiskerfið eftir kosn- ingar? Kvótakerfið og skattsvikin í gegnum Panama? Ég hafði náttúrlega engin svör og skildi við manninn jafn örvinglaðan og hann var þegar ég rakst á hann. Þegar ég kom með brauðið út í bíl var konan mín að hlusta á þingmann Vinstri grænna tala um nauðsyn þess að prestar hættu að gefa saman hjón. Við lifum spennandi tíma sem gefa mörg tilefni til umræðna um samfélagsmál og þurfum að passa okkur á að láta þá umræðu ekki breiðast yfir allt og alla. Við hjónin litum því á hvort annað undir lestri þingmannsins og tók- um ákvörðun með augunum að vísa þessu máli frá umræðunum í Skoda Octavía. En það er á dag- skrá Alþingis. Framsóknarmenn vilja breyta fánalögum svo fólk geti flaggað á nóttinni án þess að verða dæmt í fangelsi. Ég vissi ekki að það væri raunin, þekki engan sem situr inni fyrir brot á fánalögum. En ég þekki svo sem fáa sem eiga flaggstangir og er illa marktækur. Ég þekki hins vegar mikið af ungu fólki í húsnæðisvanda. Í fréttum eru frásagnir af öm- urlegum aðbúnaði á heimilum fyrir fólk með þroskahamlan- ir. Gamalt fólk á erfitt með að ná endum saman. Samfélagið logar af kjaradeilum. Það er fyrirséð að við munum ekki geta byggt upp velferðarkerfi á óbreyttum tekjustofnum, höfum ekki lengur efni á að gefa fyrirtækjum og fjár- magnseigendum eftir skatta sína. Nema við viljum halda áfram að vera góð við þá ríku og voldugu og ganga áfram á velferð hinna fá- tæku og valdalitlu. Sem er sú leið sem við erum á. Á meðan þingmenn ræða um hjónavígslur, fána og brennivín í búðir. Gunnar Smári EIGUM VIÐ AÐ RÆÐA ÞAÐ SEM MESTU SKIPTIR? lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is KONUDAGURINN FIMM RÉTTIR SEM KITLA BRAGÐLAUKANA Aðeins framreitt fyrir allt borðið. FORDRYKKUR Codorníu Cava BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYA Hægelduð bleikja, yuzu mayo, tru‰u mayo, stökkt quinoa, epli LETURHUMAR Pönnusteiktur leturhumar, ristað hvítlauks-mayo, paprikusósa, grænbauna og avókadó-purée ÖND & VAFFLA Hægeldað andalæri „pulled“, karamelluseruð epli, belgísk va‰a, maltsósa KOLAGRILLUÐ NAUTALUND Sveppir, pönnusteiktar kartöflur, bjór-Hollandaise SÚKKULAÐIRÓS Súkkulaðimousse, hindberjahlaup, Sacherbotn 7.990 kr. SÚKKULAÐIRÓS MEÐ HEIM – 690 kr. Föstudag til sunnudags. FRÁ KL. 17

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.