Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 44
4 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2017MATARTÍMINN
Þrjátíu bjórar frá Baldri
Kárasyni á 24 árum hjá
Víking brugghúsi.
Bjórhátíðin The Annual Icelandic
Beer Festival verður haldin í sjötta
sinn á KEX Hostel í næstu viku,
frá fimmtudegi til laugardags. Öll
helstu brugghús landsins taka þátt í
hátíðarhöldunum ásamt erlendum
brugghúsum. Fjöldi brugghúsanna
í ár er samtals 23 talsins og hafa
þau aldrei verið fleiri. Á hátíðinni
boðið upp á úrvals handverksbjór,
bjórvænan mat og fjölbreytt tónlist-
aratriði í þrjá daga. Uppselt er á há-
tíðina og hafa aldrei fleiri gestir sótt
hana. Dagskráin hefst klukkan 17 á
fimmtudaginn þegar Eliza Reid for-
setafrú hellir fyrsta bjórnum í glas.
Brugghúsin sem taka þátt í há-
tíðinni eru Alefarm, Dry & Bitter,
Mikkeller og To Øl frá Danmörku,
Omnipollo og Brewski frá Svíþjóð,
Stone Berlin frá Þýskalandi, Pirate
Life frá Ástralíu, Collective Arts frá
Kanada og bandarísku brugghús-
in Aslin Beer, Boneyard, Founders
Brewing, Lord Hobo og Other Half.
Íslensku brugghúsin sem taka þátt
eru The Brothers Brewery frá Vest-
mannaeyjum, Borg brugghús, Kaldi,
KEX Brewing, Plimmó, Segull 67,
Víking, Ölgerðin og Ölvisholt.
Mikil gróska hefur verið í bjór-
menningu á Íslandi undanfarin
misseri og á hátíðinni á Kex mæta
bæði til leiks nýgræðingar og
reynsluboltar í bruggheiminum.
Einn þeirra síðarnefndu er Baldur
Kárason, bruggmeistari hjá Vík-
ing brugghúsi. Baldur hefur verið
aðalbruggari Víking brugghúss frá
árinu 1993 og sett sinn svip á bjór-
menningu Íslendinga síðan. Nýjasti
bjórinn sem hann sendi frá sér er
í Víking Craft Selection línunni og
kallast Víking Red IPA. Hann er þrí-
tugasti bjórinn úr smiðju Baldurs
fyrir Víking brugghús, hvorki meira
né minna.
„Þróunin hefur verið svakaleg á
undanförnum tíu árum og það hef-
ur verið gaman að koma með nýj-
ungar fyrir bjórþyrsta Íslendinga,“
segir Baldur sem er spenntur fyrir
bjórhátíðinni á KEX.
Þar verður nýi Red IPA-inn
vitaskuld kynntur. Humlategund-
urnar sem Baldur notar í bjórinn
eru Mosaic, Chinook og Cascade.
Baldur hefur bruggað þrjá bjóra
sérstaklega fyrir hátíðina. Þeir
eru Friðþjófur sem er hvítöl með
sætu negul- og bananabragði, Sviss
Mokka sem er stout með kaffi og
kakói og Lói sem er lífrænn pils. |
hdm
Mikil veisla fyrir
sífellt stækkandi
hóp bjórnörda
Baldur, annar frá vinstri, og félagar hjá Víking voru kátir á bjórhátíðinni á KEX Hostel í
fyrra. Þeir mæta aftur til leiks í næstu viku.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Við lítum á það sem mikinn heiður að vera treyst fyrir bruggun á bjór í nafni Lúthers,“ segir Sturlaugur Jón
Björnsson, bruggmeistari hjá Borg
brugghúsi, um páskabjórinn Lúth-
er sem væntanlegur er á markað á
næstunni.
Bjór þessi er óvenjulegur fyrir
þær sakir að hann er bruggaður í
einhvers konar samstarfi við þjóð-
kirkjuna. Um þessar mundir er 500
ára afmæli siðbótarinnar hér á landi
fagnað og setti sérstök nefnd um
þetta siðbótarafmæli sig í samband
við Sturlaug og félaga og stakk upp á
því að þeir brugguðu bjór til heiðurs
Marteini Lúther.
Lúther var sjálfur bjórmaður
„Við vorum einmitt að leita eftir
nafni á páskabjórinn okkar þegar er-
indi barst frá kirkjunni þar sem við
vorum beðin um að brugga bjór til
heiðurs Marteini Lúther – þannig að
þetta kom á besta tíma. Við höfum
ávallt bruggað belgíska bjórstíla fyrir
páskana og gefið þeim heiti sem vísa
í persónur tengdri kristni en páska-
bjórar okkar til þessa hafa verið
Benedikt, Júdas, Þorlákur, Jesús og
Magðalena – Lúther fellur því einkar
vel þarna inn í,“ segir Sturlaugur.
„Þetta er sennilega það næsta
sem við komumst því að vera
klaustursbrugghús án stórkost-
legra breytinga. Sjálfur var Mart-
einn Lúther partur af samfélagi þar
sem bjór spilaði mikinn sess og eftir
honum er haft margt skemmtilegt
og uppbyggilegt um bjórdrykkju og
meint ágæti hennar.“
Að sögn Sturlaugs er bjórinn
Lúther 5,9% í styrkleika og í stíl sem
þeir kjósi að nefna „Hoppy Blonde“.
„Lúther er ljóst öl í belgískum
stíl með góðan humlakarakter í
forgrunni. Við ræktuðum upp sér-
stakan blautger sem við fengum í
bjórinn frá Belgíu og gefur hann
skemmtilega ávaxtatóna og létt
krydd í lykt og bragði. Við humlum
hann svo með þýsku humlunum
Perle og Hellertauer Mittelfrueher
sem bætir enn í kryddun og fersk-
leika með enn frekari ávaxtak-
arakter. Útkoman er í senn auð-
drekkanlegt en margslungið öl sem
fellur vonandi vel í landsmenn í
aðdraganda páskanna.“
Páskabjórinn fer ekki í sölu í Vín-
búðunum fyrr en 1. mars. Bjórá-
hugafólk getur þó tekið forskot á
sæluna á laugardag þegar Lúther
verður kynntur á Skúla Craft Bar.
Opnað verður fyrir kranana klukk-
an 19 og segir Björn Árnason, vert
á staðnum, að hægt sé að næla sér í
frían Lúther til klukkan 20. Klukkan
19.45 munu Sturlaugur og kollegar
hans í Borg segja frá bjórnum.
Upprisa Júdasar
Lúther er ekki eini páskabjórinn frá
Borg þetta árið en brugghúsið sendir
einnig frá sér eldri páskabjór í eins-
konar viðhafnarútgáfu. „Já, það er
loks komið að upprisu Júdasar. Árið
2013 sendum við frá okkur páska-
bjórinn Júdas Nr. 16 sem var 10,5%
Quadrupel og fékk hann almennt
góðar móttökur. Við höfum svo
margoft verið beðin um að brugga
hann aftur en höfum ekki látið
verða að því. Nú sendum við Júdas
frá okkur í sérstakri viðhafnarútgáfu
en hann fékk að þroskast í notuðum
koníaks-tunnum í hálft ár og bætti
þar við sig einu prósenti í áfengi,
varð enn mýkri og margslungnari,
og gengur að þessu sinni undir nafn-
inu Júdas Nr.16.1. Upplagið verður
verulega takmarkað hérlendis þar
sem Áfengisverslun sænska ríkisins,
Systembolaget, hefur pantað til sín
meirihlutann af upplaginu, en það
verður þó einnig hægt að nálgast
Júdas á helstu bjórbörum landsins á
næstu vikum,“ segir Sturlaugur.
Valgeir Valgeirsson, Árni Long og Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistarar í Borg
brugghúsi, eru stoltir af því að hafa verið treyst fyrir því að brugga bjór í nafni Marteins
Lúthers. Mynd | Hari
Brugga með blessun
þjóðkirkjunnar
Sturlaugur Jón Björnsson og félagar í Borg brugghúsi hafa bruggað
páskabjórinn Lúther að undirlagi þjóðkirkjunnar. Tilefnið er 500
ára afmæli siðbótarinnar á Íslandi. Lúther verður kynntur til leiks
á laugardaginn.