Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 43

Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 43
KARAMELLUBOLLA Karamellusósa: 150 g Nóa Rjómakúlur • 1 dl rjómi Karamellurjómi: 500 ml rjómi • 100 g Nóa karamellukurl • 5 msk karamellusósa, kæld Karamelluglassúr: 300 g Nóa Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti • 250 ml rjómi Skraut: Nóa karamellukurl • Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti Aðferð: Karamellusósa: Bræðið rjómakúlur saman við 1 dl af rjóma. Kælið. Karamellurjómi: Þeytið rjómann. Bætið síðan um 3-5 msk af karamellusósunni saman við ásamt karamellukurli og hrærið varlega með sleif. Karamelluglassúr: Bræðið súkkulaði og rjóma saman við vægan hita. Setjið glassúrinn á bollurnar og karamellurjóma í bollurnar. Skraut Skreytið með karamellukurli og söxuðu súkkulaði. BRAGÐAREFUR Fylling: 500 ml rjómi • 3 msk flórsykur • ½ dl kókosmjöl • 250 g jarðarber, maukuð • 100 g Nóa Kropp, mulið gróflega • 150 g Síríus rjómasúkkulaði með kremkexi, saxað • Sulta að eigin vali Dökkt súkkulaðisíróp: 200 g Konsum 70% súkkulaði • 6 msk rjómi • 4 msk síróp Skraut: Nóa Kropp • 200 g Konsum 70% súkkulaði, saxað Aðferð: Fylling: Þeytið rjómann ásamt flórsykri og bætið kókosmjöli, maukuðum jarðarberjum, muldu Nóa Kroppi og söxuðu rjómasúkkulaði með kremkexi varlega saman við með sleif. Dökkt súkkulaðisíróp: Bræðið Konsum súkkulaði, rjóma og síróp saman við vægan hita og dýfið bollunum í. Setjið sultu að eigin vali, t.d. jarðarberjasultu, ásamt fyllingunni í bolluna. Skraut: Skreytið með Nóa Kroppi og söxuðu súkkulaði. BOLLA MEÐ PIPARKROPPI OG LAKKRÍSSÓSU Fylling: 500 ml rjómi • 4 msk flórsykur • 1 msk lakkrísduft • 100 g Piparkropp, mulið gróflega • 100 g Nóa lakkrís súkkulaði, saxað Lakkríssósa: 300 g Nóa lakkrískurl • 6 msk rjómi Aðferð: Fylling: Þeytið rjómann ásamt flórsykri. Bætið muldu Piparkroppi og söxuðu Nóa lakkrís súkkulaði varlega saman við með sleif. Lakkríssósa: Bræðið lakkrískurl og rjóma saman við vægan hita í stutta stund. Setjið rjómafyllingu á milli og hellið lakkríssósu yfir bolluna. GERBOLLUR 15-18 stk. 100 g smjör • 3 dl mjólk • 50 g þurrger • 1 egg • 75 g sykur 1 tsk salt • 500 g hveiti • 1 tsk kardimommudropar Aðferð: Bræðið smjör og mjólk saman. Þegar blandan er fingurvolg bætið þá þurrgerinu saman við. Setjið egg, sykur, salt og kardimommudropa saman við blönduna og hrærið. Setjið hveiti í skál, gerblönduna saman við og hnoðið lítillega. Látið deigið hefa sig í um 30-40 mínútur eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð. Mótið litlar bollur úr deiginu og setjið á ofnplötu með smjörpappír. Látið hefast í um 15 mínútur. Penslið því næst bollurnar með eggi og bakið í 225°c heitum ofni í um 7-8 mínútur. Aðferð: Setjið smjör og vatn í pott og hitið þar til smjörið hefur bráðnað. Hrærið hveitinu saman við með sleif þar til það hefur blandast vel saman. Bætið saltinu út í. Takið af hellunni og látið standa í um 15 mínútur eða þar til það hefur kólnað. Setjið deigið í hrærivélaskál og bætið egg junum saman við einu í einu og hrærið saman. Varist að deigið verði of þunnt. Setjið á bökunarplötu klæddri bökunarpappír með tveimur skeiðum eða sprautað í toppa með rjómasprautu. Bakið við 200°c heitan ofn í u.þ.b. 20-30 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar og stökkar. Varist að opna ofninn meðan bollurnar eru að bakast svo þær falli ekki saman. Bragðgóðar bolluuppskriftir eftir Berglindi á GulurRauðurGrænn&Salt VATNSDEIGSBOLLUR 10-12 stk. 80 g smjör • 2 dl vatn • 100 g hveiti • hnífsoddur salt • 2-3 egg KYNNING Krem og fyllingar fyrir ger- eða vatnsdeigsbollur

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.