Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 43
KARAMELLUBOLLA
Karamellusósa: 150 g Nóa Rjómakúlur •
1 dl rjómi
Karamellurjómi: 500 ml rjómi • 100 g Nóa
karamellukurl • 5 msk karamellusósa, kæld
Karamelluglassúr: 300 g Nóa Síríus
rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti •
250 ml rjómi
Skraut: Nóa karamellukurl • Síríus rjómasúkkulaði
með karamellu og sjávarsalti
Aðferð:
Karamellusósa: Bræðið rjómakúlur saman við
1 dl af rjóma. Kælið.
Karamellurjómi: Þeytið rjómann. Bætið síðan
um 3-5 msk af karamellusósunni saman við ásamt
karamellukurli og hrærið varlega með sleif.
Karamelluglassúr: Bræðið súkkulaði og rjóma
saman við vægan hita.
Setjið glassúrinn á bollurnar og karamellurjóma í
bollurnar.
Skraut
Skreytið með karamellukurli og söxuðu súkkulaði.
BRAGÐAREFUR
Fylling: 500 ml rjómi • 3 msk flórsykur •
½ dl kókosmjöl • 250 g jarðarber, maukuð •
100 g Nóa Kropp, mulið gróflega •
150 g Síríus rjómasúkkulaði með kremkexi, saxað •
Sulta að eigin vali
Dökkt súkkulaðisíróp: 200 g Konsum 70%
súkkulaði • 6 msk rjómi • 4 msk síróp
Skraut: Nóa Kropp • 200 g Konsum 70%
súkkulaði, saxað
Aðferð:
Fylling: Þeytið rjómann ásamt flórsykri og bætið
kókosmjöli, maukuðum jarðarberjum, muldu Nóa
Kroppi og söxuðu rjómasúkkulaði með kremkexi
varlega saman við með sleif.
Dökkt súkkulaðisíróp: Bræðið Konsum súkkulaði,
rjóma og síróp saman við vægan hita og dýfið
bollunum í.
Setjið sultu að eigin vali, t.d. jarðarberjasultu, ásamt
fyllingunni í bolluna.
Skraut: Skreytið með Nóa Kroppi og söxuðu
súkkulaði.
BOLLA MEÐ PIPARKROPPI
OG LAKKRÍSSÓSU
Fylling: 500 ml rjómi • 4 msk flórsykur • 1 msk
lakkrísduft • 100 g Piparkropp, mulið gróflega •
100 g Nóa lakkrís súkkulaði, saxað
Lakkríssósa: 300 g Nóa lakkrískurl • 6 msk rjómi
Aðferð:
Fylling: Þeytið rjómann ásamt flórsykri. Bætið
muldu Piparkroppi og söxuðu Nóa lakkrís súkkulaði
varlega saman við með sleif.
Lakkríssósa: Bræðið lakkrískurl og rjóma saman við
vægan hita í stutta stund. Setjið rjómafyllingu á milli
og hellið lakkríssósu yfir bolluna.
GERBOLLUR
15-18 stk.
100 g smjör • 3 dl mjólk • 50 g þurrger • 1 egg • 75 g sykur
1 tsk salt • 500 g hveiti • 1 tsk kardimommudropar
Aðferð:
Bræðið smjör og mjólk saman. Þegar blandan er fingurvolg bætið þá
þurrgerinu saman við. Setjið egg, sykur, salt og kardimommudropa saman
við blönduna og hrærið. Setjið hveiti í skál, gerblönduna saman við og
hnoðið lítillega. Látið deigið hefa sig í um 30-40 mínútur eða þar til
deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Mótið litlar bollur úr deiginu og setjið á ofnplötu með smjörpappír. Látið
hefast í um 15 mínútur. Penslið því næst bollurnar með eggi og bakið í
225°c heitum ofni í um 7-8 mínútur.
Aðferð:
Setjið smjör og vatn í pott og hitið þar til smjörið hefur bráðnað.
Hrærið hveitinu saman við með sleif þar til það hefur blandast vel saman.
Bætið saltinu út í. Takið af hellunni og látið standa í um 15 mínútur eða þar
til það hefur kólnað.
Setjið deigið í hrærivélaskál og bætið egg junum saman við einu í einu og
hrærið saman. Varist að deigið verði of þunnt. Setjið á bökunarplötu klæddri
bökunarpappír með tveimur skeiðum eða sprautað í toppa með rjómasprautu.
Bakið við 200°c heitan ofn í u.þ.b. 20-30 mínútur eða þar til þær eru orðnar
gylltar og stökkar. Varist að opna ofninn meðan bollurnar eru að bakast svo þær
falli ekki saman.
Bragðgóðar
bolluuppskriftir
eftir Berglindi á GulurRauðurGrænn&Salt
VATNSDEIGSBOLLUR
10-12 stk.
80 g smjör • 2 dl vatn • 100 g hveiti • hnífsoddur salt • 2-3 egg
KYNNING
Krem og fyllingar fyrir ger- eða vatnsdeigsbollur