Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017 hollur kostur á 5 mín. Plokkfiskur Ein af stórsögunum á Íslandi eftir Hrun er hrörnun fjölmiðla og hvernig lykilfjölmiðlar komust í hendur sérhagsmunaaðila og þeirra sem voru helstu persónur í uppgjöri Hrunsins fyrir dóm- stólum. Á skömmum tíma hefur sú veika hefð sem myndast hafði í litlu samfélagi flókinna persónu- tengsla fyrir frjálsri og óháðri fjöl- miðlun mikið látið á sjá. Miðlarnir sjálfir hafa ekki fundið tryggan rekstrargrunn og hafa því orðið miklu háðari þeim sem leggja þeim til fé heldur en var marga áratugi fyrir Hrun. Í dag er stærsti hluti fjölmiðlanna í höndum sér- hagsmunaaðila og blaðamennska í almannaþjónusta stendur veikt. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is En þótt sagan af hrörnun fjölmiðl- anna eftir Hrun sé stór og samfélgs- lega mikilvæg hefur lítið verið um hana fjallað. Blaðamenn hafa aldrei verið góðir í að fjalla um málefni sinnar stéttar og atvinnugreinar. Enginn er fullkomlega óháður gagn- vart efninu. Ofan á það bætist land- læg meðvirkni, vegna tengsla fólks þvert á miðla vonar fólk innst inni að Eyjólfur hressist. Það þykir ekki góð latína að skrifa gagnrýnið um vinnustað sem fólk þarf kannski að sækja um vinnu á einhverjum miss- erum seinna. En fjölmiðlar eru mikilvægt fyrir- brigði í samfélaginu. Þeir eru bæði vettvangur umræðu og drífa hana áfram. Upp á sitt besta geta fjöl- miðlar ýtt undir gagnrýna og opna umræðu og styrkt lýðræði í samfé- laginu. Í vondu standi geta fjölmiðl- ar skekkt umræðuna, þaggað niður mikilsverð mál og skammtað fólki ólíkan sess; ýtt þannig undir bæklun veiks samfélags. Ég ætla því að láta mig hafa það að skrifa um fjölmiðla á Íslandi þótt ég sé útgefandi og ritstjóri þessa blaðs, sé einn af eigendum þess, hafi á árum komið að svo til öllum þeim fjölmiðlum sem koma við sögu og þekki mæta vel starfsmenn á þeim öllum. Svona er Ísland, lítið land. Ef við ætlum að gera eins og fólk í stærri samfélögum og fjalla aðeins um mál sem við tengjumst ekki þá munu mörg mál liggja ósnert. Við þurfum því að fjalla um mál sem okkur tengj- ast en gæta þess að lesandinn viti af tengslunum. Þannig er Ísland, vel- komin þangað. Panama-dagblöðin Frá Hruni hefur það gerst að Jón Ásgeir Jóhannesson og eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, keyptu fjölmiðla 365 út úr félagi sem var á leið í gjaldþrot þar sem hátt í fjórir milljarðar króna töpuðust. Kaup- verðið var 1,5 milljarður króna auk nokkurra skulda. Síðan hafa þau hjón lagt tæplega 800 milljónir króna inn í félagið í formi nýs hluta- fjár. Sem kunnugt er var þeirra hjóna getið í Panamaskjölunum. Þar kom fram umtalsverður flutningur á fé frá aflandseyjum aftur inn til Evrópu eftir Hrun. Ingibjörg hafnaði því, að- spurð síðastliðið vor, að hluti þess fjár hafi runnið inn í 365. Þegar fréttir af tengslum Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar forsætis- ráðherra við aflandsfélag í Panama komu fram vakti athygli að Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi 365 og rit- stjóri Fréttablaðsins, skrifaði leiðari um að slík tengsl væru ekkert tiltöku- mál. Þessi afstaða í stærsta fréttamáli síðasta árs af broti sérhagsmunaað- ila og auðfólks gegn almannahags- munum var ekki einsdæmi á Vest- urlöndum því svipað mátti lesa úr ritstjórnardálkum Morgunblaðsins og DV. Forystusveit Sjálfstæðisflokks- ins blandaðist inn í Panamaskjölin, nokkrir úr eigendahópi útgáfufélags Morgunblaðsins og einnig annar af ritstjórum DV. En fyrir utan þessi þrjú blöð tóku engir meginmiðlar Vesturlanda afstöðu með aflands- fólki. Án undantekninga fjölluðu þeir um Panamamálið sem stórfelld sam- félagsleg svik yfirstéttarinnar. Kvótinn fær sitt Eftir Hrun stóð Óskar Magnússon fyrir kaupum á Morgunblaðinu fjár- magnaður að mestu af eigendum nokkurra stærstu útgerðarfyrir- tækja landsins. Óskar hefur sagt að markmið hópsins hafi verið þrenn. Í fyrsta lagi að halda aftur að hækkun veiðigjalda, í annan stað að halda í íslensku krónuna og í þriðja lagi að forða því að Ísland gengi inn í Evrópusambandið. Nýir eigendur lögðu til 1,2 millj- arða króna í hlutafé og um 3,5 millj- arðar króna af skuldum félagsins voru klipptir af. Þegar það dugði ekki til var annar milljarður króna felldur niður af skuldum. Og þegar það dugði ekki lögðu eigendurnir til meira fé. Í dag er heimild til að auka hlutaféð um aðrar 400 millj- ónir króna. Nýir eigendur réðu Davíð Odds- son, fyrrum forsætisráðherra, seðla- bankastjóra og formann Sjálfstæð- isflokksins, sem ritstjóra og hefur hann barist hatrammlega fyrir markmiðunum þremur. Og haft sig- ur. Auðvitað er ekki hægt að fullyrða hversu þungt lóð Morgunblaðsins vógu í þessum stríðum en ljóst er að ef sigur í þeim væri metinn til fjár þá hafa útgerðarfyrirtækin sem fjár- mögnuðu herleiðangurinn fengið fé sitt margfalt til baka. Þótt Morgun- blaðið sé enn rekið með tapi og vand- séð að það verði í bráð fjárhagslega sjálfstætt þá hefur hagur útgerðar- innar batnað stórum. Bara lækkun veiðigjalda skilaði þeim útgerðarfyr- irtækjum sem eiga í Morgunblaðinu hlutafjárframlagi þeirra margfalt til baka. Öllum er ljóst að í þessu liggur vandi fjölmiðla í dag. Meðan þeir eru fjárhagslega ósjálfstæðir eru þeir upp á utanaðkomandi hjálp komnir. Og eins og alltaf er um sérhagsmuni og almannahag, þá eru sérhagsmunirn- ir sterkir, háværir og fljótir að bregð- ast við á meðan almannahagur liggur á millum okkar og brennur kannski ekki svo mikið á hverju okk- ar að við rjúkum til aðgerða. Og þótt við gerðum það höfum við sjaldnast bolmagnið til stórræðanna. Við smáfiskarnir erum eins og froskar sem soðna í vatni sem hitað er upp hægt. Það er aldrei beint rétta augnablikið að bregðast við fyrr en það er um seinan. Óljós fjármögnun DV Björn Ingi Hrafnsson, fyrrum borg- arfulltrúi Framsóknar og aðstoðar- Hröð hrörnun fjölmiðla Björn Ingi Hrafnsson hefur safnað að sér fjölda smárra miðla og margt er á huldu um hvernig kaup þeirra og rekstur er fjármagnaður. Ráðgátan um fjármögnun þeirra hefur meira að segja blandast inn í tilraunir til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn- laugssyni, fyrrum forsætisráðherra. Jón Ásgeir Jóhannesson hefur verið sakaður um afskipti af vinnu blaða- manna af starfsmönnum sem hafa flúið fréttastofu 365 á undanförnum árum. Smátt og smátt hefur ritstjórn- in veikst, starfsfólki fækkað og eink- um þeim sem bjuggu yfir reynslu og þekktu þá blaðamannahefð sem rekja til upphafsára Dagblaðsins, Helgar- póstsins, Bylgjunnar og Stöðvar 2. Davíð Oddsson var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins af nýjum eigendum sem fjárfestu í blaðinu til að tryggja hagsmuni útgerðarinnar; halda í ís- lensku krónuna, halda veiðigjöldum lágum og halda Íslandi utan Evrópu- sambandsins. Allt hefur þetta geng- ið eftir, hvort sem það er Davíð að þakka eða ekki. maður Halldórs Ásgrímssonar, fyrrum ritstjóri Markaðarins, við- skiptablaðs Fréttablaðsins, og einn þeirra fjölmiðlamanna sem fjall- að var um í rannsóknarskýrslu Al- þingis vegna óeðlilega hárra lána í bankakerfinu, hefur frá Hruni verið að safna að sér smærri fjölmiðlum. Hann keypti Pressuna og Eyjuna, DV og ÍNN og tímarit Birtings. Mjög er á huldu hvernig þessi kaup hafa verið fjármögnuð eða hvert þau sækja sér fé til að fóðra viðvarandi taprekstur. Sem kunnugt er kom sú ráðgáta við sögu í tilraun þeirra systra Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand til að kúga fé út Sigmundi Davíð. Þær vildu meina að Sigmundur tengdist ráðgátunni um hvernig Björn Ingi hefur fjármagnað kaup á fjölmiðlum og rekstur þeirra. Þótt ekki sé ástæða til að leggja trúnað við útgáfu systranna á sögunni þá situr ráðgátan eftir. Af ársreikningum félaga Björns Inga sést að skuldir hafa vaxið hratt. Það getur bent til þess að sá eða þeir sem fjármagna reksturinn vilji ekki að nafn þeirra komi fram. Björn Ingi hefur ekki úttalað sig um fjár- mögnun útgáfunnar en sá orðróm- ur er sterkur að bakhjarlar hans séu menn tengdir Framsóknarflokknum og hinum fallna Kaupþing banka.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.