Fréttatíminn - 17.02.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017
Embætti héraðssaksóknara rann-
sakar fyrst og fremst einstaka mál
sem tengjast Mossack Fonseca
en ekki umgjörð viðskiptanna.
Yfirvöld í nokkrum löndum í
Suður-Ameríku rannsaka nú
Mossack Fonseca sem glæpa-
samtök og hafa beitt sér gegn
milliliðum sem stofnuðu félög
hjá Mossack Fonseca. Íslendingar
áttu heimsmet í viðskiptum við
Mossack Fonseca miðað við höfða-
tölu. Ólafur Hauksson segir það á
ábyrgð yfirvalda í Lúxemborg að
taka upp rannsókn á Landsbank-
anum þar í landi.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
stunduðu viðskipti við
Glæpasamtökin sem
600 Íslendingar
Íslendingar áttu heimsmet í við-
skiptum við panamaísku lög-
mannsstofuna Mossack Fonseca
sem saksóknari í Panama kallar nú
„glæpasamtök“ vegna aðkomu fyr-
irtækisins að peningaþvætti og mút-
ugreiðslum í Suður-Ameríku. Stofn-
endur Mossack Fonseca, Ramon
Fonseca Mora og Jurgen Mossack,
voru handteknir í Panama í síðustu
viku og hnepptir í gæsluvarðhald
út af rannsókn þarlendra yfirvalda
á fyrirtækinu en samtímis fara fram
rannsóknir í nokkrum öðrum lönd-
um í Suður-Ameríku.
Heimsmet Íslendinga var mið-
að við höfðatölu. Fjöldi Íslendinga
sem notaðist við félög í skattaskjól-
um var svo mikill hjá einstaka fjár-
málafyrirtækjum að Íslendingar
voru stærsti kúnnahópurinn þegar
viðskiptavinunum var skipt niður
eftir þjóðernum en þetta var raunin
í útibúi Nordea-bankans í Lúxem-
borg í fyrra. Samtals tengdust 600
Íslendingar um 800 aflandsfélögum
í gegnum Mossack Fonseca.
Mútugreiðslur til rannsóknar
Meðal þess sem er til rannsóknar í
Panama og víðar í Suður-Ameríku
eru mútugreiðslur frá brasilíska
verktakafyrirtækinu Odebrecht til
ráðamanna í löndum í Suður-Am-
eríku, meðal annars Fernando
Toledo, fyrrverandi forseta Perú.
Toldeo er grunaður um að hafa þeg-
ið 20 milljónir dollara frá brasilíska
fyrirtækinu gegn því að tryggja því
samning um að byggja veg í Perú.
Odebrecht hefur viðurkennt að hafa
greitt samtals 29 milljónir dollara í
mútugreiðslur í Perú í ríkisstjórn-
artíð Toledos og eftirmanna hans,
Alan García og Ollanta Humala.
Þetta spillingarmál gengur undir
nafninu Lava Jato. Yfirvöld í Perú
hafa farið þess á leit við bandarísk
yfirvöld að þau framselji Toledo til
landsins vegna málsins en hann er
búsettur þar.
Í Kólumbíu hafa vararáðherra
og fyrrverandi öldunardeildar-
þingmaður verið handteknir vegna
rannsóknar málsins og í Venesúela
beinist rannsókn málsins að meint-
um 98 milljóna dollara mútugreiðsl-
um.
Aðkoma Mossack Fonseca að
þessum málum er sú að félög á
aflandssvæðum, sem fyrirtækið
stofnaði, voru notuð til að miðla
þessum fjármunum sem notað-
ir voru í mútugreiðslunum og þar
með að fela þá.
Þáttur milliliða í lögbrotum
Samhliða húsleit hjá Mossack
Fonseca og á heimilum starfsmanna
fyrirtækisins hafa yfirvöld í Panama
tekið yfir fjármálafyrirtækið sem
var milliliður í viðskiptunum, FPB-
-bankann, sem talinn er hafa verið
milliliður í stofnun 44 eignarhalds-
félaga hjá Mossack Fonseca sem
eru til skoðunar í málinu. Bæði
Mossack Fonseca og FPB-bankinn
eru því talin hafa verið viljug verk-
færi í umfangsmiklu peningaþvætti
og mútumálum upp á marga millj-
arða króna.
Þetta sýnir að yfirvöld í löndum
í Suður-Ameríku telja að milliliðir
í skattaskjólsviðskiptum kunni að
hafa brotið lög með vinnu sinni fyr-
ir þá sem vildu svíkja undan skatti
og eða fela fé.
Landsbankinn helsti milliliðurinn
Helsti milliliðurinn í viðskiptum
Íslendinga við Mossack Fonseca
var Landsbanki Íslands, aðallega
í gegnum útibú bankans í Lúxem-
borg. Helsti skattaskjólssérfræðing-
ur bankans, Kristján Gunnar Valdi-
marsson lögfræðingur, var skrifaður
fyrir auglýsingu á vef bankans þar
sem ráðgjöf í skattamálum var aug-
lýst. Í textanum, sem finna má í
gegnum vefsafn Háskólabókasafns
Íslands, segir að bankinn geti að-
stoðað við að lágmarka skattgreiðsl-
ur. „Aðilar geta lágmarkað skattlagn-
ingu innan marka skattalaga með
réttri ráðgjöf í þessu tilliti. […] Mik-
ilvægt er að huga vel að skattlagn-
ingu áður en ráðist er í fjárfestingar
erlendis og getur það skipt miklu að
rétt sé að verki staðið með tilliti til
eignarhaldsfélaga og staðsetningar
þeirra, auk þess sem kanna þarf
hvort í gildi séu tvísköttunarsamn-
ingar og hvert efni þeirra er.“
Ekki var talað um skattaskjól,
aflandssvæði eða Mossack Fonseca
í auglýsingunni en ljóst er að bank-
inn stofnaði fjölmörg slíkt félög fyr-
ir viðskiptavini sína og var stærsti
íslenski notandi aflandsþjónustu
Mossack Fonseca.
Íslendingar sem koma fyrir í
Panamaskjölunum hafa lýst því
hvernig Landsbankinn í Lúxem-
borg ráðlagði þeim að stofna félög
í skattaskjólum. Í viðtali við Frétta-
tímann í haust sagði Theódór Guð-
bergsson, kaupsýslumaður og fisk-
verkandi, meðal annars um félag
sitt í skattaskjóli. „Þetta var félag
sem var í eignastýringu í Lands-
bankanum í Lúxemborg. Við áttum
þetta nokkrir félagarnir. Það var í
einhverjum hlutabréfaviðskipt-
um. Við ætluðum að sigra heim-
inn en það gekki ekki eftir. Þetta
fór lóðbeint á hausinn í hruninu.
Það var maður í eignastýringunni
í Lúxemborg sem sá um þetta fyrir
okkur […] Ég var bara með venju-
legan rekstur, saltfiskverkun, og við
unnum hörðum höndum og gekk
ágætlega. Svo var alltaf verið að
bjóða manni þessa eignastýringu
af því hún átti að mala gull en svo
reyndist þetta bara tómt kjaftæði.“
Landsbanki Íslands, í gegnum
útibúið í Lúxemborg, var því mik-
ilvægur milliliður í viðskiptum í
skattaskjólsviðskiptum Íslendinga
í gegnum Mossack Fonseca, rétt
eins og FPB-bankinn var millilið-
ur í þeim viðskiptum sem yfirvöld
nokkurra landa í Mið- og Suður-
-Ameríku eru nú að rannsaka sem
möguleg lögbrot.
108 mál til skoðunar
Komið hefur fram í fjölmiðlum að
embætti skattrannsóknarstjóra
hafi athugað og rannsakað 108
mál sem tengjast Panamaskjölun-
um. Stærstur hluti þessara mála,
eða 57 talsins, tengjast sjómönnum
sem störfuðu hjá útgerðum Sjóla-
skipa og Samherja í Afríku og fengu
greidd laun frá aflandsfélögum án
þess að greiddir væru af þeim skatt-
ar á Íslandi. Embættið hefur kært
stóran hluta þessara meintu skatta-
lagabrota til embættis héraðssak-
sóknara, áður sérstaks saksóknara.
Af þessum 108 tók skattrannsóknar-
stjóri 34 til athugunar vegna upp-
lýsinga úr gögnum um skattaskjóls-
viðskipti Íslendinga sem keypt voru
á 37 milljónir króna af óþekktum
aðila.
Af þessu er ljóst að mál tengd
Mossack Fonseca hafa sannarlega
verið til rannsóknar hjá eftirlitsaðil-
um á Íslandi og hafa slík mál einnig
verið send til ákæruvaldsins.
Eftir stendur hins vegar sú spurn-
ing hvort eftirlitsaðilar telji að rann-
saka þurfi milliliðina í viðskiptum
Íslendinga í skattaskjólum, til dæm-
is Landsbanka Íslands í Lúxemborg,
sem kom á sambandinu við Mossack
Fonseca sem gerði skattaundanskot
möguleg í einhverjum tilfellum.
Skoða stök mál en ekki umgjörðina
Aðspurður um hvort embætti hér-
aðssaksóknara hafi farið í einhverja
rannsókn á Landsbanka Íslands eða
öðrum milliliðum sem skipulögðu
skattaskjólsviðskipti Íslendinga seg-
ir Ólafur Hauksson að embætti sitt
hafi fyrst og fremst verið að rann-
saka einstök mál en ekki umgjörð
skattaskjólsviðskiptanna. „Við
erum fyrst og fremst að skoða þá
sem kunna að hafa komið sköttum
undan. Skattrannsóknarstjóri hefur
verið að vinna þá vinnu og við erum
að styrkja þá línu hér. Í augnablik-
inu er verið að horfa fyrst og fremst
á þetta.“
Ólafur segir að hann telji að það
væri líka yfirvalda í Lúxemborg
að rannsaka dótturfélög íslensku
bankanna þar í landi. „Það voru
fyrst og fremst bankarnir í Lúxem-
borg sem voru að stofna þessi félög
þannig að það væri yfirvalda í Lúx-
emborg að taka þann legg,“ segir
Ólafur.
„Auðvitað kemur þessi umgjörð
við sögu í okkar rannsóknum en
hún er ekki sjálfstætt rannsóknar-
efni. […] Þetta félagaform var notað
með sams konar hætti og kúbein í
innbroti. En eftir því sem rykið sest
þá er eðlilegt að menn velti því fyrir
sér hversu eðlilegt það sé að þetta
sé hægt til að byrja með: Eignastýr-
ingardeildirnar byrjuðu að bjóða
upp á aflandsþjónustu eins og það
væri sjálfsagður hlutur. Aflands-
félög mynda „platform“ fyrir alls
konar vafasöm viðskipti. Þessi
aflandsfélög koma svolítið inn á ská
í uppgjöri okkar við hrunið og það
er ekkert rosalega hugguleg mynd
sem blasir við okkur.“
Stofnendur
lögmannsstof-
unnar í Panama,
Jurgen Mossack og
Ramon Fonseca
Mora, voru hand-
teknir í Panama
í síðustu viku út
af rannsókninni á
Mossack Fonseca.
Ólafur Hauksson
segir að embættið
einbeiti sér fyrst
og fremst að því að
rannsaka einstök
skattalagabrot en
ekki umgjörð skatta-
skjólsviðskiptanna og
aðkomu fjármála-
fyrirtækja, eins og
Landsbankans í
Lúxemborg, að þeim.
Kristján Gunnar
Valdimarsson var
helsti skattasér-
fræðingur Lands-
banka Íslands á
árunum fyrir hrun
en bankinn benti
viðskiptavinum oft
á möguleikann á því
að nota aflandsfélög
í viðskiptum sínum.
„Þetta félagaform var not-
að með sams konar hætti
og kúbein í innbroti.“
Basel
Mosel
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18
Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Verona
Tungusófar • Sófasett • Stakir sófar • Hornsófar
900 útfærslur, engin stærðartakmörk
og 3.000 tegundir af áklæðum
SÓFAR
Í MIKLU ÚRVALI
Roma