Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 12

Fréttatíminn - 17.02.2017, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017 Embætti héraðssaksóknara rann- sakar fyrst og fremst einstaka mál sem tengjast Mossack Fonseca en ekki umgjörð viðskiptanna. Yfirvöld í nokkrum löndum í Suður-Ameríku rannsaka nú Mossack Fonseca sem glæpa- samtök og hafa beitt sér gegn milliliðum sem stofnuðu félög hjá Mossack Fonseca. Íslendingar áttu heimsmet í viðskiptum við Mossack Fonseca miðað við höfða- tölu. Ólafur Hauksson segir það á ábyrgð yfirvalda í Lúxemborg að taka upp rannsókn á Landsbank- anum þar í landi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is stunduðu viðskipti við Glæpasamtökin sem 600 Íslendingar Íslendingar áttu heimsmet í við- skiptum við panamaísku lög- mannsstofuna Mossack Fonseca sem saksóknari í Panama kallar nú „glæpasamtök“ vegna aðkomu fyr- irtækisins að peningaþvætti og mút- ugreiðslum í Suður-Ameríku. Stofn- endur Mossack Fonseca, Ramon Fonseca Mora og Jurgen Mossack, voru handteknir í Panama í síðustu viku og hnepptir í gæsluvarðhald út af rannsókn þarlendra yfirvalda á fyrirtækinu en samtímis fara fram rannsóknir í nokkrum öðrum lönd- um í Suður-Ameríku. Heimsmet Íslendinga var mið- að við höfðatölu. Fjöldi Íslendinga sem notaðist við félög í skattaskjól- um var svo mikill hjá einstaka fjár- málafyrirtækjum að Íslendingar voru stærsti kúnnahópurinn þegar viðskiptavinunum var skipt niður eftir þjóðernum en þetta var raunin í útibúi Nordea-bankans í Lúxem- borg í fyrra. Samtals tengdust 600 Íslendingar um 800 aflandsfélögum í gegnum Mossack Fonseca. Mútugreiðslur til rannsóknar Meðal þess sem er til rannsóknar í Panama og víðar í Suður-Ameríku eru mútugreiðslur frá brasilíska verktakafyrirtækinu Odebrecht til ráðamanna í löndum í Suður-Am- eríku, meðal annars Fernando Toledo, fyrrverandi forseta Perú. Toldeo er grunaður um að hafa þeg- ið 20 milljónir dollara frá brasilíska fyrirtækinu gegn því að tryggja því samning um að byggja veg í Perú. Odebrecht hefur viðurkennt að hafa greitt samtals 29 milljónir dollara í mútugreiðslur í Perú í ríkisstjórn- artíð Toledos og eftirmanna hans, Alan García og Ollanta Humala. Þetta spillingarmál gengur undir nafninu Lava Jato. Yfirvöld í Perú hafa farið þess á leit við bandarísk yfirvöld að þau framselji Toledo til landsins vegna málsins en hann er búsettur þar. Í Kólumbíu hafa vararáðherra og fyrrverandi öldunardeildar- þingmaður verið handteknir vegna rannsóknar málsins og í Venesúela beinist rannsókn málsins að meint- um 98 milljóna dollara mútugreiðsl- um. Aðkoma Mossack Fonseca að þessum málum er sú að félög á aflandssvæðum, sem fyrirtækið stofnaði, voru notuð til að miðla þessum fjármunum sem notað- ir voru í mútugreiðslunum og þar með að fela þá. Þáttur milliliða í lögbrotum Samhliða húsleit hjá Mossack Fonseca og á heimilum starfsmanna fyrirtækisins hafa yfirvöld í Panama tekið yfir fjármálafyrirtækið sem var milliliður í viðskiptunum, FPB- -bankann, sem talinn er hafa verið milliliður í stofnun 44 eignarhalds- félaga hjá Mossack Fonseca sem eru til skoðunar í málinu. Bæði Mossack Fonseca og FPB-bankinn eru því talin hafa verið viljug verk- færi í umfangsmiklu peningaþvætti og mútumálum upp á marga millj- arða króna. Þetta sýnir að yfirvöld í löndum í Suður-Ameríku telja að milliliðir í skattaskjólsviðskiptum kunni að hafa brotið lög með vinnu sinni fyr- ir þá sem vildu svíkja undan skatti og eða fela fé. Landsbankinn helsti milliliðurinn Helsti milliliðurinn í viðskiptum Íslendinga við Mossack Fonseca var Landsbanki Íslands, aðallega í gegnum útibú bankans í Lúxem- borg. Helsti skattaskjólssérfræðing- ur bankans, Kristján Gunnar Valdi- marsson lögfræðingur, var skrifaður fyrir auglýsingu á vef bankans þar sem ráðgjöf í skattamálum var aug- lýst. Í textanum, sem finna má í gegnum vefsafn Háskólabókasafns Íslands, segir að bankinn geti að- stoðað við að lágmarka skattgreiðsl- ur. „Aðilar geta lágmarkað skattlagn- ingu innan marka skattalaga með réttri ráðgjöf í þessu tilliti. […] Mik- ilvægt er að huga vel að skattlagn- ingu áður en ráðist er í fjárfestingar erlendis og getur það skipt miklu að rétt sé að verki staðið með tilliti til eignarhaldsfélaga og staðsetningar þeirra, auk þess sem kanna þarf hvort í gildi séu tvísköttunarsamn- ingar og hvert efni þeirra er.“ Ekki var talað um skattaskjól, aflandssvæði eða Mossack Fonseca í auglýsingunni en ljóst er að bank- inn stofnaði fjölmörg slíkt félög fyr- ir viðskiptavini sína og var stærsti íslenski notandi aflandsþjónustu Mossack Fonseca. Íslendingar sem koma fyrir í Panamaskjölunum hafa lýst því hvernig Landsbankinn í Lúxem- borg ráðlagði þeim að stofna félög í skattaskjólum. Í viðtali við Frétta- tímann í haust sagði Theódór Guð- bergsson, kaupsýslumaður og fisk- verkandi, meðal annars um félag sitt í skattaskjóli. „Þetta var félag sem var í eignastýringu í Lands- bankanum í Lúxemborg. Við áttum þetta nokkrir félagarnir. Það var í einhverjum hlutabréfaviðskipt- um. Við ætluðum að sigra heim- inn en það gekki ekki eftir. Þetta fór lóðbeint á hausinn í hruninu. Það var maður í eignastýringunni í Lúxemborg sem sá um þetta fyrir okkur […] Ég var bara með venju- legan rekstur, saltfiskverkun, og við unnum hörðum höndum og gekk ágætlega. Svo var alltaf verið að bjóða manni þessa eignastýringu af því hún átti að mala gull en svo reyndist þetta bara tómt kjaftæði.“ Landsbanki Íslands, í gegnum útibúið í Lúxemborg, var því mik- ilvægur milliliður í viðskiptum í skattaskjólsviðskiptum Íslendinga í gegnum Mossack Fonseca, rétt eins og FPB-bankinn var millilið- ur í þeim viðskiptum sem yfirvöld nokkurra landa í Mið- og Suður- -Ameríku eru nú að rannsaka sem möguleg lögbrot. 108 mál til skoðunar Komið hefur fram í fjölmiðlum að embætti skattrannsóknarstjóra hafi athugað og rannsakað 108 mál sem tengjast Panamaskjölun- um. Stærstur hluti þessara mála, eða 57 talsins, tengjast sjómönnum sem störfuðu hjá útgerðum Sjóla- skipa og Samherja í Afríku og fengu greidd laun frá aflandsfélögum án þess að greiddir væru af þeim skatt- ar á Íslandi. Embættið hefur kært stóran hluta þessara meintu skatta- lagabrota til embættis héraðssak- sóknara, áður sérstaks saksóknara. Af þessum 108 tók skattrannsóknar- stjóri 34 til athugunar vegna upp- lýsinga úr gögnum um skattaskjóls- viðskipti Íslendinga sem keypt voru á 37 milljónir króna af óþekktum aðila. Af þessu er ljóst að mál tengd Mossack Fonseca hafa sannarlega verið til rannsóknar hjá eftirlitsaðil- um á Íslandi og hafa slík mál einnig verið send til ákæruvaldsins. Eftir stendur hins vegar sú spurn- ing hvort eftirlitsaðilar telji að rann- saka þurfi milliliðina í viðskiptum Íslendinga í skattaskjólum, til dæm- is Landsbanka Íslands í Lúxemborg, sem kom á sambandinu við Mossack Fonseca sem gerði skattaundanskot möguleg í einhverjum tilfellum. Skoða stök mál en ekki umgjörðina Aðspurður um hvort embætti hér- aðssaksóknara hafi farið í einhverja rannsókn á Landsbanka Íslands eða öðrum milliliðum sem skipulögðu skattaskjólsviðskipti Íslendinga seg- ir Ólafur Hauksson að embætti sitt hafi fyrst og fremst verið að rann- saka einstök mál en ekki umgjörð skattaskjólsviðskiptanna. „Við erum fyrst og fremst að skoða þá sem kunna að hafa komið sköttum undan. Skattrannsóknarstjóri hefur verið að vinna þá vinnu og við erum að styrkja þá línu hér. Í augnablik- inu er verið að horfa fyrst og fremst á þetta.“ Ólafur segir að hann telji að það væri líka yfirvalda í Lúxemborg að rannsaka dótturfélög íslensku bankanna þar í landi. „Það voru fyrst og fremst bankarnir í Lúxem- borg sem voru að stofna þessi félög þannig að það væri yfirvalda í Lúx- emborg að taka þann legg,“ segir Ólafur. „Auðvitað kemur þessi umgjörð við sögu í okkar rannsóknum en hún er ekki sjálfstætt rannsóknar- efni. […] Þetta félagaform var notað með sams konar hætti og kúbein í innbroti. En eftir því sem rykið sest þá er eðlilegt að menn velti því fyrir sér hversu eðlilegt það sé að þetta sé hægt til að byrja með: Eignastýr- ingardeildirnar byrjuðu að bjóða upp á aflandsþjónustu eins og það væri sjálfsagður hlutur. Aflands- félög mynda „platform“ fyrir alls konar vafasöm viðskipti. Þessi aflandsfélög koma svolítið inn á ská í uppgjöri okkar við hrunið og það er ekkert rosalega hugguleg mynd sem blasir við okkur.“ Stofnendur lögmannsstof- unnar í Panama, Jurgen Mossack og Ramon Fonseca Mora, voru hand- teknir í Panama í síðustu viku út af rannsókninni á Mossack Fonseca. Ólafur Hauksson segir að embættið einbeiti sér fyrst og fremst að því að rannsaka einstök skattalagabrot en ekki umgjörð skatta- skjólsviðskiptanna og aðkomu fjármála- fyrirtækja, eins og Landsbankans í Lúxemborg, að þeim. Kristján Gunnar Valdimarsson var helsti skattasér- fræðingur Lands- banka Íslands á árunum fyrir hrun en bankinn benti viðskiptavinum oft á möguleikann á því að nota aflandsfélög í viðskiptum sínum. „Þetta félagaform var not- að með sams konar hætti og kúbein í innbroti.“ Basel Mosel Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Verona Tungusófar • Sófasett • Stakir sófar • Hornsófar 900 útfærslur, engin stærðartakmörk og 3.000 tegundir af áklæðum SÓFAR Í MIKLU ÚRVALI Roma

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.