Fréttatíminn - 17.02.2017, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 17. febrúar 2017
Söstrene Grene
Biðin eftir
nýjustu
hillunni
eða
borðinu í
versluninni
Söstrene Grene hefur borið
suma ofurliði. En fólk er til-
búið að leggja á sig margra
klukkutíma bið og mynda
raðir út úr Kringlunni til að
verða sér út um slíka gripi.
Þetta er líklega ein áhuga-
verðasta biðröðin og í raun
ákveðið lotterí, því þú veist
ekki hvort borðið verður
uppselt þegar röðin kemur
að þér.
Hver er uppáhalds biðröðin þín?
Íslendingar eru
duglegir að flykkjast
í biðraðir til að
sækja sér ýmiskonar
þjónustu, skemmtun
eða vörur. Að
standa í biðröð
hljómar í fyrstu ekki
sem skemmtileg
iðja, þar getur þó
skapast skemmtileg
stemning.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Skemmtistaðurinn
Það getur verið ansi þreytandi að þurfa
að standa í biðröð fyrir utan skemmti-
stað. Ekki batnar það ef allir vinir þín-
ir eru inni á skemmtistaðnum og þú
ein/n í röðinni. Svo er auðvitað misjafnt
ástandið á fólki og alltaf hætt við rysk-
ingum og jafnvel slagsmálum. En stund-
um ríkir þar gleði og samkennd.
Ísbúðin
Á góðviðrisdögum og síðkvöld-
um myndast oft langar raðir í
ísbúðum bæjarins. En þessi röð
er ekki kvöð.Þú færð verðlaun-
in þín að lokum og getur notað
biðtímann til að velja hvað þú
ætlar að fá þér í bragðarefinn.
Læknirinn
Á læknabiðstofunni myndast ekki
eiginleg röð þótt biðitíminn geti
vissulega orðið langur. Þú munt
standa sjálfan þig að því að velta
fyrir fyrir þér hvað hinir og þessir
á biðstofunni eru að vilja til læknis,
og þeir hugsa eins um þig. Svo hitt-
irðu einhvern sem þú þekkir og þið
sneiðið algjörlega hjá því að ræða
ástæður læknisheimsókna ykkar.
Eins óþægilegt og það getur orðið.
Bakaríið
Röðin í hverfisbakaríinu getur
orðið nokkuð löng á laugardags-
og sunnudagsmorgnum. En líkt
og í ísbúðinni þá veistu að þú færð
verðlaun á endanum og biðtíminn
nýtist í að ákveða hvað á að kaupa.
Það eru þó auðvitað vonbrigði ef
snúðar með súkkulaði eru búnir
þegar röðin kemur að þér.
Melabúðin
Melabúðin er eins og félagsmiðstöð Vesturbæinga. Það tekur
oft langan tíma að komast í gegnum búðina því það eru svo
margir sem þarf að heilsa og spjalla við. Á kassanum má svo
taka upp þráðinn á nýjan leik, eða jafnvel kynnast fólki. Það
eru nefnilega allir vingjarnlegir í Melabúðinni, þó að raðirnar
séu langar og brjálað að gera.
„Ég er svo alsæl með þetta.
Það er alveg þvílíkur munur,“
segir María Líndal, sem breytti
algjörlega um stíl í svefnher-
berginu hjá sér fyrir lítinn
pening og án þess að skipta út
stórum húsgögnum. En með
því að mála gamlan leðurlíkis-
rúmgafl og filma fataskápinn
varð stórkostleg breyting á
herberginu.
„Ég keypti þennan gafl í Betra
bak um það leyti sem dóttir mín
fermdist, en hún er 25 ára í dag.
Ég sá svo um daginn að þeir voru
að selja alveg eins gafl, nema hvít-
an, á rúmlega 50 þúsund krónur
og mig langaði svo í hann,“ segir
María en henni fannst orðið full-
dimmt í herberginu með dökkan
gafl, dökkan fataskáp og svartan
hraunaðan vegg.
María ákvað hins vegar að
spara peninga og keypti frekar
sérstaka málningu fyrir leður og
leðurlíki og málaði þrjár umferð-
ir yfir gaflinn. Hún segir máln-
inguna hafa þornað mjög hratt og
hún smiti ekkert út frá sér. Gafl-
inn er því eins og nýr. „Ég þvoði
hann bara vel með sápu og ed-
iksblöndu áður en ég málaði. Svo
keypti ég reyndar alltof mikið af
málningu þannig ég er að hugsa
um að mála sófann minn líka,“
segir hún hlæjandi.
Fataskápinn filmaði hún svo
með háglans plastfilmu eins og
eru mjög vinsælar um þessar
mundir. „Ég mæli algjörlega með
þessu. Það er algjör óþarfi að
henda eða selja það sem maður
heldur að verði ekki notað meira.
Frekar að prófa að flikka upp á
það fyrst.“ | slr
María Líndal breytti
algjörlega um stíl
í svefnherberginu
með því að mála
gamlan leðurlík-
isrúmgafl og filma
fataskápinn.
Umturnaði herberginu fyrir lítinn pening
Hinn þekkti morgunklúbbur
eða Akademía í sundlauginni á
Þingeyri hefur samþykkt eftir-
farandi ályktun með eiginlega
öllum greiddum atkvæðum:
„Akademían á sundlaugarbakkan-
um á Þingeyri fordæmir Brenni-
vínsfrumvarpið sem nú liggur
fyrir Alþingi. Þeir þingmenn sem
að því standa, ættu að snúa sér
að þarfari málum fyrir kjósendur
sína. Það er grátlegt þegar dreif-
býlisþingmenn telja þetta forgangs-
mál fyrir landsbyggðina.
Allir vita að það er auðveldara
fyrir börn og unglinga að nálg-
ast eiturlyf en að panta pizzu. Á
það sama að gilda um áfengið?
Akademían tekur undir með Birgi
Jakobssyni landlækni, sem segir:
„Það er talað fyrir því að gera
mjög áhættusama og kostnaðar-
sama tilraun með sölu á áfengi í
matvöruverslunum. Þetta er stór-
hættulegt. Áhrif þessarar tilraun-
ar verður ekki hægt að draga til
baka.“
„Niður í skúffu með Brennivíns-
frumvarpið segjum við! Það getur
vel verið að sú skoðun okkar sé
afturhald. Það verður þá bara að
hafa það og hana nú!“ | gt
Akademían á Þingeyri fordæmir
Brennivínsfrumvarpið
FRÉTTABRÉF nR. 111
2. TBL.
24. ÁRGAnGUR
SEPTEMBER 2010
Er þetta eina sundlaugin á landinu þar sem sundgestir greiða í kaffisjóð, og njóta þeirra veitinga inni
á sundlaugarbakkanum?
Í morgunklúbbnum í sundlauginni á Þingeyri ber margt á góma, bæði í gamni og alvöru. Þar eru
samankomnir á morgnana margir spekingar af báðum kynjum. Þar eru vandamál þjóðarinnar leyst.
Og græskulausar sögur og sagnir eru hafðar með í bland. Þarna er oft kátt á hjalla.
FRÉTTABRÉF
LAGNAFÉLAGS ÍSLANDS
Sundlaugin á Þingeyri
er falleg bygging
A ademían á Þingeyri að störfum.
Mynd | Kristján Ottósson.