Fréttatíminn - 17.02.2017, Page 40
Gott að dansa
Hin árlega dansbylting
UN Women, Milljarð-
ur rís, verður haldin í
Hörpu klukkan 12 í dag.
Skelltu þér í dansskóna,
hristu skankana og svitn-
aðu aðeins fyrir góðan
málstað. Í ár verður minning Birnu
Brjánsdóttur heiðruð.
Gott að gefa
Nú þegar Valentínusar-
dagurinn er nýliðinn og
konudagurinn á næsta
leiti þá býst enginn við
gjöf í dag. Þess vegna er
um að gera að vera frum-
legur og kaupa fallega gjöf
eða blóm handa makanum. Bara af því
það er föstudagur.
Gott að prófa nýjan stað
Nýir veitingastaðir spretta
upp hér og þar um borgina
og það er fátt betra en að
borða góðan mat með góð-
um vinum. Skelltu þér á nýj-
an stað í kvöld, án þess að
skoða matseðilinn á netinu.
Láttu koma þér á óvart.
GOTT
Á
FÖSTUDEGI
Segðu frá … Drauma
konudagsgjöfinni
Þórhildur Ólafsdóttir
„Draumakonudagsgjöfin mín er að
konur fái laun og völd til jafns á við
karla. Svo væri ég til í að sofa út.“
Auður Húnfjörð
„Draumkonudagsgjöfin mín er nýr
kjóll og boð í nautasteik og rauð
vín!“
Tobba Marinós
„Draumakonudagsgjöfin er klass
ísk. Rauðvín, súkkulaði og blóm.
Maðurinn minn gaf mér spinning
skó á Valentínusardaginn og ég get
vel hugsað mér að drekka rauðvín
að lokinni góðri æfingu í skónum.
Allt er gott í jafnvægi er það ekki?“
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Mikil virkni
Bragðlaust duft í kalt vatn
5 mán. skammtur
Nýjar
umbúðir