Fréttatíminn - 27.01.2017, Side 45

Fréttatíminn - 27.01.2017, Side 45
Við erum að reyna að skapa ákveðna menn-ingu og það hefur geng-ið ágætlega. Íslendingar eru móttækilegir fyr- ir því að prófa eitthvað nýtt og láta tríta sig. Þetta er fjórða árið í röð sem við höldum þennan viðburð og hann stækkar með hverju árinu,“ seg- ir Tómas Kristjánsson, forseti Bar- þjónaklúbbs Íslands. Reykavík Coctail Weekend verð- ur haldin í næstu viku, frá miðviku- degi til sunnudags. Fjöldi bara og veitingastaða taka þátt og verða með sérstakan kokteilseðil þar sem verð- ur að finna kokteila á tilboðsverði. Samhliða þessu fer fram Íslandsmót barþjóna og keppni veitingastaða í kokteilgerð. Undankeppni barþjóna fer fram í Gamla bíói á fimmtudags- kvöld og úrslitakeppnin á sunnu- dagskvöld. „Það verður allskonar húllum- hæ og borgin eiginlega undirlögð af hátíðinni. Við viljum hafa þetta á sem flestum stöðum en ekki bara í einum stórum sal, að lífið sé inni á veitingastöðunum því þá geta þeir skapað sitt eigið umhverfi eins og þeir gera á hverjum degi. Ég held að fólk kunni líka að meta það að labba á milli staða og smakka spennandi kokteila sem kosta að hámarki 1.700 krónur meðan á hátíðinni stendur,“ segir Tómas. Samhliða fer fram Íslandsmeist- aramót barþjóna. „Þar er keppt í tveimur flokkum, annars vegar eft- ir alþjóðlegum lögum og reglum, og hins vegar er frístæl keppni. Þá geta menn verið búnir að búa til eigin síróp og fleira. Áhugafólk um vínmenningu ætti líka að kíkja Hót- el Plaza á laugardeginum. Þar verða ýmsir fyrirlestrar og fróðleikur um vín. Og smökkun, fólk getur drukkið í sig fróðleik.“ Tómas segir að kokteilamenningin sé í mikilli sókn hér á landi. „Þetta byrjaði fyrir svona 5-6 árum þegar Slippbarinn opnaði og hefur verið Kokteilveisla um alla borg Á fjórða tug veitingastaða taka þátt í Reykjavík Coctail Weekend í næstu viku og verða kokteilar á sérstöku tilboðsverði á stöðunum. Samhliða fer fram Íslandsmót barþjóna og sitthvað fleira. Forseti Barþjónaklúbbs Íslands segir hátíðina hluta af því að bæta vínmenningu landsins. mikið trend síðan. Barþjónar hafa drukkið í sig fróðleik og eru farnir að gera heilmikið sjálfir, „infjúsa“ og sitthvað fleira. Menn búa til eig- in hluti og vilja hafa sína sérstöðu. Það gerir upplifunina meiri og nú er meira að segja hægt að ramba á milli staða og fá mismunandi útgáfur af sama kokteilnum.“ Tómas segir að markmiðið með Reykjavík Coctail Weekend sé að bæta vínmenningu okkar. „Alveg klárlega. Við höfum nálgast þetta með faglegum hætti og menningin er smám saman að breytast og batna. Við erum að draga okkur út úr þessari ómenningu þegar allir duttu í það einu sinni í viku. Nú er fólk farið að fara út á virkum kvöldum og fá sér einn og einn drykk. Góður kokteill er enda frábær með máltíðinni og getur gert hana enn betri. Mér finnst al- veg frábært að sjá hvað það er orðinn mikill metnaður meðal barþjóna. Það hefur orðið ótrúleg breyting á síðustu fimm árum. Það hjálpar auð- vitað að nú fáum við fleiri erlenda gesti en áður var og hingað kemur líka fólk að utan til að vinna. Þetta hjálpast allt að og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt.“ Nánari upplýsingar um dagskrá og staðina sem taka þátt má finna á www. bar.is og á Facebook. Miðasala á við- burðina fer fram á www.tix.is. Þessir staðir taka þátt í Reykjavík Coctail Weekend American bar Apotek restaurant BarAnanas Bazaar Bryggjan Brugghús Dillon Essensia Forrettarbarinn Frederiksen Ale House Geiri Smart Grillmarkaðurinn Hard Rock Cafe Reykjavík Hilton Reykjavik Nordica Íslenski barinn Jacobsen Loftið Kitchen and Wine 101 hótel Klaustur Downtown Bar Kol Restaurant Kopar Marbar Matarkjallarinn MatWerk Nauthóll Nora magasin Pablo Discobar Petersen - Svítan Public House Gastropub Sæta Svínið SKÝ Restuarant Slippbarinn Sushi Social UNO Vegamót Tómas Kristjánsson, forseti Barþjóna- klúbbs Íslands, segir að mikil stemning verði á Reykjavík Coctail Weekend í næstu viku. Mynd | Hari Árshátíðir og veislur 5 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 ÁRSHÁTIÐIROGVEISLUR Maturinn tengir fólk saman Einstök stemning á Kopar við höfnina. Unnið í samstarfi við Kopar. Tenging Kopars við sjóinn er mikil enda stendur staðurinn við höfnina, í húsi sem áður var ver- búð. Efri hæðin á Kopar hefur verið vel nýtt fyrir hópa enda frá- bært útsýni yfir höfnina og sund- in blá sem gerir upplifunina af því að hitta fólk enn betri. Hægt er að leigja efri hæðina fyrir hópinn eða allt að 50-60 manns. „Sér- staða okkar gerir það að verkum að við leggjum áherslu á íslenskt sjávarfang, til dæmis skelfisk og fleira. Við erum ekki með þennan hefðbundna árshátíðarseðil held- ur reynum við að hrista aðeins upp í hlutunum. Svo er gaman að koma og vera hérna við höfnina þar sem er mikið líf,“ segir Ylfa Helgadóttir, einn eigandi Kopars. Fólk tengist yfir matnum Hóparnir hafa efri hæðina út af fyrir sig og oft er boðið upp á fordrykk til að byrja með áður en sest er að snæðingi. Úrval- ið af hópamatseðlum er gott og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. „Það fer bara eftir því hverju hópurinn er að leita að. Við höfum tekið þá stefnu að bjóða ekki upp á hlaðborð þar sem fólk stendur í röð. Fólk fær annað hvort bara disk fyrir framan sig eða við berum matinn á borðið „family style“. Þetta myndar mjög góða stemningu, sér í lagi þegar fólk þekkist lítið, það eru makar með og þannig, þá tengist fólk yfir matnum. Þetta hefur komið rosalega vel út,“ segir Ylfa. Ekkert mál er að fá skemmti- kraft þó að ekkert sé sviðið; skemmtikrafturinn gengur bara milli borða og að sögn Ylfu mynd- ast góð stemmning í kringum slíkt fyrirkomulag. Ylfa stendur við gluggann á efri hæðinni þar sem er dásamlegt útsýni yfir höfnina og sundin blá. Kopar er sérlega vel heppnaður veitingastaður. Myndir | Hari

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.