Fréttatíminn - 27.01.2017, Page 45
Við erum að reyna að skapa ákveðna menn-ingu og það hefur geng-ið ágætlega. Íslendingar eru móttækilegir fyr-
ir því að prófa eitthvað nýtt og láta
tríta sig. Þetta er fjórða árið í röð sem
við höldum þennan viðburð og hann
stækkar með hverju árinu,“ seg-
ir Tómas Kristjánsson, forseti Bar-
þjónaklúbbs Íslands.
Reykavík Coctail Weekend verð-
ur haldin í næstu viku, frá miðviku-
degi til sunnudags. Fjöldi bara og
veitingastaða taka þátt og verða með
sérstakan kokteilseðil þar sem verð-
ur að finna kokteila á tilboðsverði.
Samhliða þessu fer fram Íslandsmót
barþjóna og keppni veitingastaða í
kokteilgerð. Undankeppni barþjóna
fer fram í Gamla bíói á fimmtudags-
kvöld og úrslitakeppnin á sunnu-
dagskvöld.
„Það verður allskonar húllum-
hæ og borgin eiginlega undirlögð
af hátíðinni. Við viljum hafa þetta á
sem flestum stöðum en ekki bara í
einum stórum sal, að lífið sé inni á
veitingastöðunum því þá geta þeir
skapað sitt eigið umhverfi eins og
þeir gera á hverjum degi. Ég held að
fólk kunni líka að meta það að labba
á milli staða og smakka spennandi
kokteila sem kosta að hámarki 1.700
krónur meðan á hátíðinni stendur,“
segir Tómas.
Samhliða fer fram Íslandsmeist-
aramót barþjóna. „Þar er keppt í
tveimur flokkum, annars vegar eft-
ir alþjóðlegum lögum og reglum,
og hins vegar er frístæl keppni. Þá
geta menn verið búnir að búa til
eigin síróp og fleira. Áhugafólk um
vínmenningu ætti líka að kíkja Hót-
el Plaza á laugardeginum. Þar verða
ýmsir fyrirlestrar og fróðleikur um
vín. Og smökkun, fólk getur drukkið
í sig fróðleik.“
Tómas segir að kokteilamenningin
sé í mikilli sókn hér á landi. „Þetta
byrjaði fyrir svona 5-6 árum þegar
Slippbarinn opnaði og hefur verið
Kokteilveisla
um alla borg
Á fjórða tug veitingastaða taka þátt í Reykjavík
Coctail Weekend í næstu viku og verða kokteilar
á sérstöku tilboðsverði á stöðunum. Samhliða
fer fram Íslandsmót barþjóna og sitthvað fleira.
Forseti Barþjónaklúbbs Íslands segir hátíðina
hluta af því að bæta vínmenningu landsins.
mikið trend síðan. Barþjónar hafa
drukkið í sig fróðleik og eru farnir
að gera heilmikið sjálfir, „infjúsa“
og sitthvað fleira. Menn búa til eig-
in hluti og vilja hafa sína sérstöðu.
Það gerir upplifunina meiri og nú er
meira að segja hægt að ramba á milli
staða og fá mismunandi útgáfur af
sama kokteilnum.“
Tómas segir að markmiðið með
Reykjavík Coctail Weekend sé að
bæta vínmenningu okkar. „Alveg
klárlega. Við höfum nálgast þetta
með faglegum hætti og menningin
er smám saman að breytast og
batna. Við erum að draga okkur út úr
þessari ómenningu þegar allir duttu í
það einu sinni í viku. Nú er fólk farið
að fara út á virkum kvöldum og fá sér
einn og einn drykk. Góður kokteill er
enda frábær með máltíðinni og getur
gert hana enn betri. Mér finnst al-
veg frábært að sjá hvað það er orðinn
mikill metnaður meðal barþjóna.
Það hefur orðið ótrúleg breyting á
síðustu fimm árum. Það hjálpar auð-
vitað að nú fáum við fleiri erlenda
gesti en áður var og hingað kemur
líka fólk að utan til að vinna. Þetta
hjálpast allt að og við erum alltaf að
læra eitthvað nýtt.“
Nánari upplýsingar um dagskrá og
staðina sem taka þátt má finna á www.
bar.is og á Facebook. Miðasala á við-
burðina fer fram á www.tix.is.
Þessir staðir taka
þátt í Reykjavík
Coctail Weekend
American bar
Apotek restaurant
BarAnanas
Bazaar
Bryggjan Brugghús
Dillon
Essensia
Forrettarbarinn
Frederiksen Ale House
Geiri Smart
Grillmarkaðurinn
Hard Rock Cafe Reykjavík
Hilton Reykjavik Nordica
Íslenski barinn
Jacobsen Loftið
Kitchen and Wine 101 hótel
Klaustur Downtown Bar
Kol Restaurant
Kopar
Marbar
Matarkjallarinn
MatWerk
Nauthóll
Nora magasin
Pablo Discobar
Petersen - Svítan
Public House Gastropub
Sæta Svínið
SKÝ Restuarant
Slippbarinn
Sushi Social
UNO
Vegamót
Tómas Kristjánsson, forseti Barþjóna-
klúbbs Íslands, segir að mikil stemning
verði á Reykjavík Coctail Weekend í
næstu viku. Mynd | Hari
Árshátíðir og veislur
5 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 ÁRSHÁTIÐIROGVEISLUR
Maturinn tengir
fólk saman
Einstök stemning á Kopar við höfnina.
Unnið í samstarfi við Kopar.
Tenging Kopars við sjóinn er mikil enda stendur staðurinn við höfnina, í húsi sem áður var ver-
búð. Efri hæðin á Kopar hefur
verið vel nýtt fyrir hópa enda frá-
bært útsýni yfir höfnina og sund-
in blá sem gerir upplifunina af því
að hitta fólk enn betri. Hægt er
að leigja efri hæðina fyrir hópinn
eða allt að 50-60 manns. „Sér-
staða okkar gerir það að verkum
að við leggjum áherslu á íslenskt
sjávarfang, til dæmis skelfisk og
fleira. Við erum ekki með þennan
hefðbundna árshátíðarseðil held-
ur reynum við að hrista aðeins
upp í hlutunum. Svo er gaman að
koma og vera hérna við höfnina
þar sem er mikið líf,“ segir Ylfa
Helgadóttir, einn eigandi Kopars.
Fólk tengist yfir matnum
Hóparnir hafa efri hæðina út af
fyrir sig og oft er boðið upp á
fordrykk til að byrja með áður
en sest er að snæðingi. Úrval-
ið af hópamatseðlum er gott og
allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi. „Það fer bara eftir því
hverju hópurinn er að leita að. Við
höfum tekið þá stefnu að bjóða
ekki upp á hlaðborð þar sem fólk
stendur í röð. Fólk fær annað
hvort bara disk fyrir framan sig
eða við berum matinn á borðið
„family style“. Þetta myndar mjög
góða stemningu, sér í lagi þegar
fólk þekkist lítið, það eru makar
með og þannig, þá tengist fólk
yfir matnum. Þetta hefur komið
rosalega vel út,“ segir Ylfa.
Ekkert mál er að fá skemmti-
kraft þó að ekkert sé sviðið;
skemmtikrafturinn gengur bara
milli borða og að sögn Ylfu mynd-
ast góð stemmning í kringum
slíkt fyrirkomulag.
Ylfa stendur við gluggann á efri hæðinni
þar sem er dásamlegt útsýni yfir höfnina
og sundin blá.
Kopar er sérlega vel heppnaður veitingastaður. Myndir | Hari