Fréttatíminn - 27.01.2017, Page 47
7 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 ÁRSHÁTIÐIROGVEISLUR
Glæsilegir veislusalir
á Lækjarbrekku
Reynslan kemur að góðum notum
Unnið í samstarfi við Lækjarbrekku.
Um áramótin stóð veitingastaðurinn í Perlunni á tímamót-um þegar hann flutti í
nýtt húsnæði eftir aldarfjórðung
í Öskjuhlíðinni. Fólk flykktist í
Perluna síðustu vikur síðasta árs
til þess að kveðja staðinn í hinsta
sinn. Lokahnykkurinn var glæsi-
leg áramótaveisla þar sem allir
fastakúnnar og fleira gott fólk
skemmti sér saman fram á rauða
nótt.
Glæsilegir veislusalir
Nýi staðurinn á þó ekki síðri sögu;
allir þekkja Lækjarbrekku við
Bankastræti, þetta sögufræga
timburhús sem var friðað árið
1979 en veitingarekstur hefur
verið í húsinu frá 1981. Stefán Elí
Stefánsson er yfirmatreiðslumað-
ur nýja staðarins sem mun áfram
bera nafnið Lækjarbrekka. Verið
er að útbúa glæsilega veislusali
sem verða tilbúnir til notkunar í
mars en nú þegar hefur staður-
inn verið opnaður fyrir gesti og
gangandi. „Það fylgja okkur fullt
af fastakúnnum og þeir hafa verið
duglegir að koma það sem af er
ári. Það eru smærri hópar sem við
getum sinnt,“ segir Stefán.
Reynslan kemur
að góðum notum
Salirnir eru 60 manna og 80 til
90 manna þannig að þetta hentar
millistórum brúðkaupum eða árs-
hátíðum vel. Í minnsta lagi verður
hægt að taka á móti 15-20 manna
hópum. Stefán er ánægður með
flutninginn enda alltaf gott að
breyta til. „Það er fínt að fara úr
sveitinni og komast í bæinn. Að-
gengið er betra hérna og við erum
til dæmis að láta smíða lyftu upp
á aðra hæð sem hefur ekki verið
áður.“
Verið er að hanna glæsilega
hópmatseðla þar sem reynslan
mun koma að góðum notum.
Hægt er að senda póst á info@
laekjarbrekka.is, þar er öllum fyr-
irspurnum svarað fljótt og örugg-
lega. Eins og áður var tekið fram
er þess að vænta að salirnir verði
teknir í notkun í byrjun mars svo
sumarbrúðkaup eða annars konar
veisla á Lækjarbrekku gæti ver-
ið handan við hornið hjá þér eða
þínum.
Veitingarekstur hefur verið í húsinu frá árinu 1981 eða í rúmlega 35 ár. Mynd | Hari
Eitt fallegasta hús miðbæjarins er timburhúsið sem hýsir Lækjarbrekku. Það var friðað árið 1979. Mynd | Hari
Meðan þess er beðið að veislusalirnir komi
úr klössun er vel hægt að taka á móti smærri
hópum á Lækjarbrekku. Myndir | Hari