Fréttatíminn - 17.03.2017, Blaðsíða 21
| 21FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Virka daga
10:00 - 18:00
Laugardaga
11:00 - 16:00
OPNUNARTÍMAR
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
17. m
ars 2017 • Birt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabreng
Fislétt úr Ultra-Thin
All-Metal línu Acer
119.990ACER SWIFT 3Úr gegnheilu áli með
2.0 Dolby Audio
hljóðkerfi og öflugt
þráðlaust AC net
14” FHD LED
1920x1080 ComfyView skjár
Intel i3 7100U
2.4GHz Dual Core örgjörvi
8GB minni
DDR4 2133MHz
256GB SSD
NVMe diskur
BAKLÝSING
ÞESSA VERÐUR ÞÚ AÐ SKOÐA;)
NÝKYNSLÓÐ
24” AH IPS FHD
1920x1080 upplausn, 5ms GtG
14.990KOSS BT539iKÞráðlaus heyrnartól með hljóðnema á frábæru verði
BENQ GW2406Z
Rammalaus og nettur
24” EDGE-EDGE skjár 29.990
1TB SG EXPAN
2TB ÚTGÁFA
14.990
4TB ÚTGÁFA
24.990
N587-KU-BK-K-EP
39.990PS4 SLIMNý og endurhönnuð Play-station 4 Slim 500GB
PS4 PRO 1TB
57.990
MS517H XL2411 AZ MILANO
1TB FLAKKARI
2.5” Seagate Expansion flakkari
9.990
6” LESTÖLVA
Kobo Touch lestölva, snertiskjár og WIFI
19.990
SKJÁVARPI
Orkusparneytinn 3D skjávarpi frá BenQ
49.990
24” 144Hz SKJÁR
Sérhannaður FHD 144Hz 3D leikjaskjár!
49.990
MILANO
Hágæða leikjastólar frá Arozzi
29.990
www.tolvutek.is
GAMING 2
Kaby lake leikjaturn
með GTX 1060 ný-
justu kynslóð leikja-
skjákorta
Ofur leikjaturn fyrir
kröfuharða spilara
179.990
GTX1060 SKJÁKORT
3GB GDDR5 8.0GHz, 1280 cores
Intel i5 7400
3.5GHz Turbo Quad Core örgjörvi
8GB minni
DDR4 2400MHz
256GB SSD
M.2 diskur
Einstök hljómgæði
með “Pure Sound”
KURBIS 2.0
Með öflugri 5.25’’
Aramid Fiber bassa-
keilu í glæsilegu
hágæða viðarboxi
19.990
50W RMS
KÜRBIS BT
24.990
8BLS VEISLA
BROT AF ÞVÍ BESTA ÚR 8BLS FERMINGARBÆKLINGNUM
8
B
LS
BÆ
KL
ING
UR
um slysa, hjá tryggingarfélagi og
Tryggingastofnun. „En bæði kerfin
eru slæm, ég hef farið í bæði og
þetta eru pyntingar, þegar þú þarft
að sanna að þú sért slasaður. Þessu
er lýst svo vel í tilfelli Blake sem fær
alltaf: Nei.“
Tek afrit af öllum pappírum
Ágústa: „Það sem sat í mér eftir
myndina er hvað kerfið er ónýtt
og fasið á fólkinu, þetta kalda fas,
það nísti mig inn að beini. Fólkið
hjá Tryggingastofnun veit alveg,
held ég, hvað kerfið er lélegt.“ Og
öll samskipti við stofnunina eru
eftir flokkun eða röð, en þú færð
aldrei almennilegar upplýsingar og
Tryggingastofnun er alltaf að týna
vottorðum manns.“ Guðmundur
samsinnir Ágústu og segist hafa
lært að láta aldrei frá sér neina
pappíra nema að eiga afrit.
Hildur tekur undir með Guð-
mundi og Ágústu og telur myndina
sýna svo vel hvað fólk er í að ganga
í gegnum þegar það þarf að ganga
á náðir kerfisins þegar það getur
litla eða enga björg sér veitt. Það
veitti henni mikla ánægju að sjá
hversu vel myndin skilaði þeim
raunveruleika.
Ég er Katie
Eitt áhrifamesta atriði myndarinn-
ar er þegar Katie, einstæða móð-
irin, fer til samtaka sem gefa mat
og fær úthlutað sínum skammti.
Hún fer í röðina. Hún er svo að-
framkomin af bæði hungri og ör-
birgð að hún opnar eina niðursuðu
dós á staðnum og hámar í sig upp
úr dósinni.
Hildur: „Katie, stelpan í myndinni,
það er ég. Ég er einstæð móðir með
tvö börn. Maður þarf að forgangs-
raða, láta börnin ganga fyrir. Þekki
þetta að standa í röð.“ Hildur segir
líka frá því að hún hafi unnið hjá
stóru fyrirtæki þegar hún var að
veikjast og að hún hafi berskjaldað
sig og tjáð sig um sjúkdóm sinn við
yfirmanninn og missti í kjölfarið
vinnuna.
Guðrún: „Þetta ýfði upp þessar erf-
iðu tilfinningar. Þegar hún fer í röð-
ina og er með barnið sitt með sér í
röðinni. Þetta var bara ég. Það var
sárast fyrir mig að sjá í myndinni.“
En Guðrún hefur sömu sögu að
segja, hún sá sjálfa sig í Katie, móð-
urinni í myndinni.
Missir alla tengingu
Ásta: „Ég skildi Katie svo vel,
ég þekki fátæktina frá bernsku
minni. Það er svo erfitt að vera
alltaf þiggjandi í þeim aðstæðum
getur þú misst alla tengingu. Í at-
riðinu er Katie komin yfir öll mörk.
Hún borðar upp úr dósinni og gúff-
ar í sig án þess að vita hvar hún er
stödd. Ég tengdi við örvinglunina í
þessu sama atriði.“
Ásta þekkti líka stoltið þegar
Katie reyndi að fela hið raunveru-
lega ástand. Þegar Katie svelti sjálf
og gaf börnum matinn sinn til þess
að láta þetta ganga. Eða atriðið
þegar hún gaf Blake matinn sinn í
þakklæti fyrir hjálpina og laug því
til að hún væri búin að borða.
Kerfið er að drepa fólkið
María: „Bati tekur miklu lengri
tíma heldur en kerfið vill sjá. Og svo
er svo margt sem má gera áður en
barnið er dottið ofan í brunninn.
Maður passar sig að vera ekki of
fínn þegar maður fer í mat eða við-
tal. Það er óttinn við að missa eitt-
hvað. Þú þarft að brjóta niður þína
eigin sjálfsmynd.“
Silvain: „Kerfið er að drepa fólkið,
hjartaáföll, sjálfsvíg. Fólki er haldið
fötluðu af því það er verið að refsa
fólki í staðinn fyrir að hvetja.“ Bára
tekur undir þetta: „Mér er haldið
fatlaðri af því að ég fæ ekki sjúkra-
þjálfun.“
Og fleiri í hópnum vilja meina að
það sé stór kerfisvilla í kerfinu. Það
kemur gott fólk inn sem vill breyta
kerfinu en það gerist ekki neitt.
Fullt af góðu fólki sem hringlar í
kerfinu. Það sé hægt að sitja á fund-
um og nefndum með kerfisköllum
og draga upp marga liti, gulan,
rauðan, bláan, grænan en niður-
staðan er alltaf grá.
Starfgetumatið – og kerfið sjálft
„Ef þeir halda að kerfið er vont í
dag þá verður það margfalt verra
þegar starfsgetumatið verður tekið
upp. Maður áttar sig á því að þetta
Bára tengdi við Blake þegar hann fór og skrifaðu utan á húsið. „Ég fór sjálf niður
að Alþingishúsi að mótmæla eftir að það var svo illa brotið á mér og enginn
hlustaði á mig.“
„Kerfið er að drepa fólkið,
hjartaáföll, sjálfsvíg. Fólki
er haldið fötluðu af því
það er verið að refsa fólki í
staðinn fyrir að hvetja.“
er útspekúlerað kerfi,“ segir Berg-
þór.
Steindór: „Ég hafði tekið sjokk-
ið út áður en ég fór á myndina.
Ég hafði fylgst með þessu frum-
varpi um starfsgetumat. Ég var
svo undrandi á því hvað lítið var
vitað um reynslu annarra landa á
starfsgetumatinu. Umræðan um
starfsgetumat hefur verið svo yfir-
borðskennd. Allir þessir aðilar sem
koma að máli, Dagur og allir gáfu
sinn stimpil á starfsgetumatið. Ég
byrjaði að lesa um breska kerfið. Ég
fór á skrifstofu Öryrkjabandalags-
ins og þá kemur fram að ASÍ hefur
engan áhuga á því að standa með
okkur. Engin stuðningur frá verka-
lýðshreyfinginni. Ég tók út sjokkið
á Þorláksmessu.“