Fréttatíminn - 17.03.2017, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
FRAMTÍÐARHLJÓMUR Í FERMINGARGJÖF
lágmúla 8 · sími 530 2800
Verið velkomin í glæsilega verslun
Bang & Olufsen í Lágmúla 8 og heyrið
hljóminn. Það breytir öllu.
Bluetooth ferðahátalari.Öflugur bluetooth hátalari.
Active
KR. 53.000,-
H2
KR. 26.000,-
H6
KR. 43.000,-
A1
KR. 34.000,-
H5
KR. 37.000,-
A2
Glæsileg
fermingartilboð!
Allt að 30% afslætti
MATARTÍMINN
Þann 25. mars
MATARTÍMINN
auglysingar@frettatiminn.is
gt@frettatiminn.is | 531 3300
Frjáls fjölmiðlun mun verða sjálfs-
eignarstofnun og gengið verð-
ur frá stofnun hennar á næstu
dögum. Markmið félagsins er að
styrkja frjálsa og óháða fjölmiðl-
un á Íslandi og efla fjölmiðla sem
starfa í almannaþágu. Til að byrja
með verður lögð áhersla á að efla
ritstjórn Fréttatímans en ef vel
tekst til eru uppi ráðagerðir um að
styrkja aukna umfjöllun um eins-
taka málaflokka.
Á fundinum og í aðdraganda
hans söfnuðust um 10,5 milljónir
króna frá um 800 manns. „Þetta
er framar vonum enda eru aðeins
fáeinar vikur síðan við kynnt-
um þetta verkefni,“ segir Gunnar
Smári Egilsson, útgefandi Frétta-
tímans.
Að hans sögn getur fólk enn
skráð sig sem félaga og fyrir
framlögum. „Hugmyndin er að
safna fyrir um þremur stöðugild-
um blaðamanna fyrir almenna
ritstjórn Fréttatímans svo reka
megi öfluga og sjálfstæða ritstjórn.
Þegar því marki verður náð mun-
um við kynna næstu skref, meðal
annars aukna umfjöllun um til-
tekna málaflokka bæði í blaðinu
sjálfu en einnig á vefnum,“ segir
Gunnar Smári.
Á næstu vikum mun stjórn og
fulltrúaráð Frjálsrar fjölmiðlunar
móta starfsemina frekar og efla
umræðu um mikilvægi frjálsrar
fjölmiðlunar í samfélaginu.
Tónlistardagskrá stofnfundarfagnaðar Frjálsrar fjölmiðlunar
var fjölbreytt og rann ljúflega niður í fundargesti.
10,5 milljónir söfnuðust
til Frjálsar fjölmiðlunar
Á stofnfundi Frjálsrar fjölmiðlunar og aðdraganda hans skráðu um 800
manns sig sem stofnfélaga og fyrir um 10,5 milljón króna framlagi á
þessu ári til styrktar frjálsri og óháðri fjölmiðlun.