Ljósið - 15.05.1917, Qupperneq 48
46
LJÓSIÐ
Kristinn riður bóndi’ á Bleik,
er blessað vorið kemur!
Einar Kvaran elskar tál,
Óðinstrúarprestur.
Hann á vekja sína sál,
sannleiksgögn því brestur.
Einars Kvarans Óðinstrú
er trú Pílatusar.
Græðir sárin gömlu nú
guðstrú Lassarusar.
Ilt ókristilegt ástand.
Heiðruðu góðtemplarar!
Kæru vinir! Er það ekki skoðun ykkar, góðtemplara,
að fremur beri að hlýða guði en mönnum? Guð er kær-
leikurinn, segja kristindómsvinir. Viljið þið ekki, að
bræðrum ykkar, sem brjóta hin oí ströngu vinbannslög,
sé sýndur kærleikur og mannúð? Eg veit og ótal fleiri,
að góðtemplarar hafa margir brotið bannlögin, síðan
þau voru staðfest af Danakonungi.
Hví eruð þið, kæru góðtemplarar! svo ókristilegir i
breytni að taka hart á þeim bræðrum ykkar, sem ekki
hafa gengið i ykkar ókristilega félagsskap?
Er það satt, að norskur maður hafi verið settur i járn
og látinn í tukthús fyrir þá sök, að blessaður náunginn
seldi upp i ykkar heiðraða ræningjabæli?
Sé þetta satt, þá hafið þið, vinir mínir! breytt mjög
ókristilega við útlendan náunga okkar Islendinga, og
megið þið blygðast ykkar fyrir mannvonzkuna.
Þið hafið fullkomlega brotið kærleikslögmál kristin-
dómsins. Þótt náunginn hefði selt upp mat og víni