Ljósið - 15.05.1917, Side 55
LJÓSIÐ
53
ast með nýjum og betri kynslóðum. Ríkisvald og kirkju-
vald dettur úr sögunni. Jafnaðarfrelsi smælingja vinnur
sigur á ranglæti valdháfanna.
Kristniboð Ólafs konungs Tryggvasonar komst að hér
á landi fyrir dómsorð heiðins manns, Þorgeirs Ljós-
vetningagoða. Ljósgeisli hjálpræðisins gaf honum þá hug-
sjón, að sama trú og sömu lög eiga að vera í þessu
landi. Nú er spilt aldarfar, kristin trú ekki virt; henni
er hrint af kreddu-kennimönnum, öll lög brolin aflög-
gjöfunum og almenningur lærir af þeim hneykslislifnað.
Það er ekki hægt að kristna menn og konur með gyð-
ingatrú og blóðfórnarstagli klerka. Jesú Kristur er guð-
dómlega perlan, er börn hans eiga að virða meira en
hégómaglys veraldarinnar.
Ég eldist. Hár mín grána. Samt lifir andans eldur
minn í veldi sannleikans. Læt ég hér almenning sjá, að
ég vaki á verði, þótt klerkar sofi við sinn fúna keip.
Trúarbrögð.
Trúarbrögð ríkis og kirkju eru lík kongulóarvef. —
Litið smádýrer kongulóin; hún vefur net af slími, sem
hún geymir í sér; i netið nær hún smáflugum til að
éta. Ríkis- og kirkjuvald veraldarinnar hefir líka aðferð.
Ræningjaklær ríkis og kirkju urðu almenningi til böls
og tjóns á miðöldunum, og enn er þeirri vítisplágu ekki
létt af mannkyninu. Svo er illa farið með sannleiksorð
drottins vors og herra.
Yfirleitt eru smælingjar drottins, yngri kynslóðin,
orðin svo frjáls, að hún ætti að geta brotið af sér and-
lega og líkamlega hlekki trúarbragðanna, ef trúarvillur
(hneylcsliskenningar) væru ekki valdboðnar.
Það eru konungar og mentaðir klerkar, sem gengið
hafa á breiðum vegurn og afvegaleitt þá fáfróðu. Öll
veraldarsagan sýnir þelta. Guðs lög og manna hafa ver-