Ljósið - 15.05.1917, Page 57

Ljósið - 15.05.1917, Page 57
LJÓSIÐ 55 Menn geta skapað guðs ríki á jörð; það kendi spámað- urinn frá Nazaret, og það sama kenni ég. Bönnum guð- leysið og lögbrot valdhafanna! Vísixr. Sannleikur er sagna beztur, Sérar ekki feli hann. Vita það á vígður prestur, vont mál þroskar engan mann. Upplýst það má öldin vita. okkar klerkar villa börn. Þeir ósatt kenna, ósatt rita, enga sér því finna vörn. Jesús satt mál kenna kunni. Kaífas ei trúði þvi; heiðnu táli herrann unni; hann vel gríndi ritning í. 1. apríl. Á pálmasunnudag, þann fyrsta apríl, gerðist sá óvænti viðburður, að ég, sá einarðasti ádeilumaður á þann sví- virðilega ljóta kreddulærdóm, er lúterskir klerkar halda dauðahaldi í, gat náð samtali við æðsta guðfræðing kirkjunnar, herra biskup Jón Helgason. Þessi stórláti kennimaður kirkjunnar veitti mér viðtal, hrinti mér ekki út af húsi sínu, eins og hann áður hefir gert. Þetta tel ég góðs vita, en samt er þessi dýrkaði ali-

x

Ljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.