Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 12

Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 12
á tímabilinu 3. ágúst 2018 til 27. júlí 2019 Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð/vinnuaðstaða, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts sem rekur stofuna. Á árinu 2018 verða þau 1.104 evrur fyrir tveggja mánaða dvöl fyrir einstakling. Úthlutað er að lágmarki í tvo mánuði í senn, en vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði ekki verið lengri en 2 mánuðir. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varð­ andi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á.m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn. Stjórn Cité Internationale des Arts leggur áherslu á að dvalartíminn sé vel nýttur í vinnu umsækjanda að list sinni. Nánari upplýsingar um Kjarvalsstofu er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2018 kl. 16.00. Sækja skal um á Rafrænni Reykjavík, rafraen.reykjavik.is. Frekari upplýsingar veitir skrifstofa Menningar­ og ferðamálasviðs í s. 411­6020 eða á netfanginu menning@reykjavik.is. Stjórn Kjarvalsstofu í París AFNOT AF KJARVALSSTOFU Í PARÍS CMYKPantone 287 Tyrkland Yfirvöld í Tyrklandi fyrir- skipuðu í gær handtöku þrettán ein- staklinga sem lýstu yfir stuðningi við málstað samtaka tyrkneskra lækna (TTB) en samtökin birtu fyrr um daginn grein þar sem aðgerðir Tyrkjahers í Afrin-héraði Sýrlands voru harðlega gagnrýndar. Dagblaðið Hurriyet greindi frá handtökunum en þær koma í kjöl- far fyrirskipunar ríkissaksóknara um að handtaka skyldi ellefu hátt- setta meðlimi TTB, meðal annars formanninn. „Nei við stríði, friður strax!“ var heróp samtakanna sem birtist í greininni. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, var harðorður í garð þeirra sem stóðu að yfirlýsingunni og sakaði viðkom- andi um landráð. Þau þrettán sem handtekin voru í gær lýstu yfir stuðningi við TTB á samfélagsmiðlum. „Stríð er dauði, eyðilegging, blóð og tár. Nei við stríði,“ sagði í einu tístinu sem Reu- ters vísaði í. Fyrrnefnd 24 eru þó langt frá því að vera ein á báti. Alls hafa rúmlega 300 verið handtekin vegna færslna á samfélagsmiðlum sem „gagnrýndu, voru í andstöðu við eða rangtúlk- uðu“ aðgerðir hersins í Afrin, að því er ríkisstjórnin greindi frá. Aðgerðirnar í Afrin snúast um að reka YPG, hersveitir Kúrda, í burtu frá héraðinu sem á landamæri að Tyrklandi. Telja Tyrkir YPG vera hernaðararm Verkamannaflokks Kúrda (PKK) en flokkurinn er álit- inn hryðjuverkasamtök af Atlants- hafsbandalaginu og Evrópusam- bandinu. Þessu mati Tyrkja eru flestir aðilar hernaðarbandalagsins gegn Íslamska ríkinu, sem Bandaríkja- menn eru í forsvari fyrir og YPG og Tyrkir tilheyra, ósammála. Óháð félagasamtök hafa gagn- rýnt handtökur forsprakka TTB harðlega. Til að mynda hafa bæði Amnesty International og Alþjóða- læknasamtökin kallað eftir því að réttindi lækna séu virt og öll mál gegn þeim verði felld niður. „Þessar handtökur eru varhuga- verð þróun sem grefur undan lögum og reglu sem og sjálfstæði og hlut- leysi tyrkneskra dómstóla,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu Johann- esar Hahn, stækkunarstjóra ESB, og Federicu Mogherini, utanríkismála- stjóra ESB. Þá greinir Reuters frá því að bandamenn Tyrkja í vestri óttist nú mjög að Erdogan sé að nýta sér aðgerðir hersins til þess að kæfa raddir stjórnarandstæðinga. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Erdogan-stjórnin fyrirskipar fjöldahandtökur. Eftir misheppnaða valdaránstilraun árið 2016 voru um fimmtíu þúsund handtekin fyrir meintan stuðning við útlæga klerk- inn Fethullah Gulen og um 150.000 opinberir starfsmenn misstu vinnuna. thorgnyr@frettabladid.is Fleiri handtekin fyrir andstöðu við aðgerðir Tyrkjahers í Afrin MjanMar Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir því að Wa Lone og Kyaw Soe Oo, blaðamenn Reuters, yrðu leystir úr haldi. Þeir Lone og Oo hafa verið í fangelsi í Mjanmar frá því þeir voru handteknir þann 12. desember, grunaðir um að hafa brotið upp- lýsingalög ríkisins þegar þeir leituðu að upplýsingum um þjóð- ernishreinsanir ríkisstjórnarinnar á Róhingjum í Rakhine-héraði. „Við köllum eftir því að þeir verði tafarlaust leystir úr haldi og að ákærurnar á hendur þeim verði felldar niður. Alvarleg aðför ríkis- stjórnar Mjanmar að tjáningarfrels- inu er okkur mikið áhyggjuefni,“ sagði Rupert Colville, talsmaður stofnunarinnar, á blaðamannafundi í Genf í gær. Beiðni þeirra Oo og Lone um lausn gegn tryggingu var hafnað á fimmtudaginn. Ye Lwin dómari sagði að brotið sem um ræðir væri þess eðlis að lausn gegn tryggingu væri ekki í boði. Stephen J. Adler, ritstjóri Reu- ters, lýsti vonbrigðum sínum með ákvörðunina. „Þeir hafa nú verið í fangelsi í fimmtíu daga. Þeir ættu að fá að vera með fjölskyldum sínum á meðan réttarhöldin standa yfir.“ Than Zaw Aung, lögmaður blaða- mannanna, sagði eftir höfnun dóm- ara að upplýsingarnar sem málið snerist um hefðu nú þegar verið aðgengilegar almenningi. Lögreglu- maður hafi greint frá því er hann bar vitni að þær hefðu þá þegar birst í dagblöðum. Alls hefur meira en hálf milljón fólks af þjóðflokki Róhingja flúið heimkynni sín í Rakhine-héraði og haldið til Bangladess eftir að ofbeldi braust þar út í ágúst í fyrra. Þáverandi mannréttindastjóri Sam- einuðu þjóðanna lýsti því yfir að um þjóðernishreinsanir væri að ræða og síðar sagði hann möguleika á að framið væri þjóðarmorð á Róhingj- um. Sagðist hann hafa heyrt sögur af því að Róhingjar væru skotnir til bana án dóms og laga og að bæir þeirra væru brenndir. Nú stendur til að flytja flótta- mennina heim aftur og á þeim flutn- ingum að vera lokið árið 2019. Óháð félagasamtök hafa lýst áhyggjum af flutningunum og telja óvíst að Róh- ingjum verði vel tekið. – þea Sameinuðu þjóðirnar vilja blaðamenn Reuters í Mjanmar tafarlaust úr fangelsi Aðgerðum lögreglunnar í Mjanmar hefur verið mótmælt. Nordicphotos/AFp sýrlenskur uppreisnarmaður og tyrkneskur hermaður, samherjar gegn Kúrdum, veifa fánum sínum. Nordicphotos/AFp líbía Talið er að níutíu flóttamenn á leið frá Líbíu til Evrópu hafi drukkn- að þegar bát þeirra hvolfdi í gær. Frá þessu greindi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Þrír lifðu slysið af og sögðu þeir frá því að stærstur hluti þeirra sem er saknað hafi verið Pakistanar auk nokkurra Líbíumanna. Tíu líkum skolaði á land í Líbíu í gær. – þea Níutíu fórust á leið frá Líbíu bandaríkin Faðir tveggja af þol- endum Larrys Nassar, kynferðis- brotamannsins og fyrrverandi læknis fimleikaliðs Bandaríkjanna á Ólymp- íuleikunum, reyndi í gær að ráðast á Nassar í dómsal í Michigan þar sem kveða átti upp úrskurð um refsingu Nassars. Faðirinn, Randall Margraves, var stöðvaður af þremur öryggisvörðum en áður en hann stökk að borðinu sem Nassar sat við bað hann um „fimm mínútur í klefa með þessum djöfli“. Þeirri bón hafnaði Janice Cunningham dómari. Dætur Margraves, þær Madison og Lauren, höfðu skömmu áður greint frá ofbeldinu sem Nassar beitti þær. Þær eru í fjölmennum hópi 265 þol- enda Nassars sem var í síðustu viku dæmdur í fjörutíu til 175 ára fangelsi eftir að dómari heyrði vitnisburð 160 þolenda. – þea Faðir reyndi að ráðast á Nassar Larry Nassar Bannað er að tala gegn aðgerðum Tyrkja í Afrin- héraði Sýrlands. Forysta tyrknesku læknasamtak- anna handtekin sem og andstæðingar Erdogan- stjórnarinnar sem lýstu vanþóknun sinni á samfélagsmiðlum. Alls hafa rúmlega 300 verið handtekin frá því að að- gerðirnar í Afrin hófust. 13 voru handtekin í gær fyrir að lýsa andstöðu sinni á sam- félagsmiðlum.Í Fréttablaðinu í gær kom fram að pólska þingið hefði samþykkt frumvarp sem gerir refsivert að segja pólska einstaklinga gerendur í helförinni. Hið rétta er að enginn verður sóttur til saka fyrir að tala um glæpi einstaklinga, eingöngu fyrir að segja pólsku þjóðina meðseka. Beðist er velvirðingar á mistökunum. leiðréTTing 3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 l a U g a r d a g U r12 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð 0 3 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 4 -A B 6 8 1 E E 4 -A A 2 C 1 E E 4 -A 8 F 0 1 E E 4 -A 7 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 2 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.