Fréttablaðið - 03.02.2018, Page 28
Sögusagnir um að ég sé í laumi að skipuleggja upp-vakningaragnarök til þess að auka eftirspurn eftir eldvörpum eru með öllu ósannar.“
Þessu tísti Elon Musk, tugmillj-
arðamæringur og tæknijöfur, í
vikunni. Þótt ótrúlegt megi virðast
koma þessi orð nefnilega hvorki úr
kvikmynd né tölvuleik. Eitt fyrir-
tækja Musks, The Boring Comp-
any, hefur nefnilega selt almenn-
ingi eldvörpur fyrir tíu milljónir
dala, andvirði um milljarðs króna,
á fjórum dögum. Geri aðrir betur.
Musk og milljarðarnir tuttugu
Maður þarf að vera ansi ríkur til
þess að geta selt almenningi eld-
vörpur fyrir milljarð í gríni. Og
það er Musk svo sannarlega. Eignir
hans eru metnar á tuttugu milljarða
Bandaríkjadala, andvirði tveggja
billjóna króna.
En hvernig hefur Musk auðgast
svona mikið og hvaðan kom þessi
maður?
Þegar hann flutti frá heimalandi
sínu, Suður-Afríku, árið 1988 settist
hann að í Kanada. Í þá daga hlúði
hann að grænmeti á búgarði frænda
síns í Waldeck auk þess að starfa við
ræstingar í timburverksmiðju. En
ævintýrið hófst ekki fyrir alvöru
fyrr en eftir að hann hætti námi við
Stanford.
Þá stofnaði hann með bróður
sínum sprotafyrirtækið Zip2 sem
sá vefmiðlum fyrir landakortum
og öðrum upplýsingum. Ágætlega
gekk hjá Zip2 og keypti tækniris-
inn Compaq fyrirtækið árið 1999.
Musk græddi 22 milljónir dala á
sölunni.
Tólf þeirra milljóna nýtti Musk
til að stofna nýtt fyrirtæki, X.com,
sem hann taldi framtíð fjármála-
þjónustu. Ári seinna, árið 2000,
rann X.com saman við höfuðand-
stæðing sinn, Confinity, og úr varð
greiðsluþjónustufyrirtækið PayPal
sem margir nota enn í dag. Þegar
eBay keypti PayPal árið 2002 runnu
nærri 200 milljónir dala í vasa
Musks eftir skatt.
Musk varð hins vegar ekki millj-
arðamæringur fyrr en árið 2012.
Einhvern veginn tókst honum að
mokgræða í geirum þar sem frekar
er búist við tapi, að því er kemur
fram í umfjöllun Forbes frá sama
ári. Hefur hann auðgast einna mest
á rafbílafyrirtæki sínu, Tesla, og
þá er ótalið geimferðafyrirtækið
SpaceX. Auk
þess á Musk hluta í sólarorku-
fyrirtækinu SolarCity og svo
hið fyrrnefnda Boring Comp-
any.
Göng, ekki leiðindi
Öfugt við það sem nafnið
gefur til kynna er viðfangs-
efni Boring Company ekki
leiðindi. Fyrirtækið starfar
nefnilega á sviði gangagerðar.
„Til að leysa vandamál sálar-
tortímandi umferðarteppa
verða vegir að vera í þrívídd.
Það krefst annaðhvort fljúg-
andi bíla eða jarðganga,“
segir á vefsíðu fyrirtækis-
ins.
Hugmyndin gengur út á
að þéttriðið net jarðganga
undir stórborgum geti
leyst umferðarvandann.
Segir í lýsingunni að
lykil atriði til að þetta
gangi upp sé að grafa
hraðar og ódýrar. Það
sé markmiðið með
stofnun fyrirtækisins.
Þá verði einnig
hægt að nýta göngin
til þess að koma upp
svokölluðu Hyperloop-
samgöngukerfi sem tækni-
áhugamenn hafa lengi rætt
um. Slíkt kerfi myndi bjóða
upp á almenningssamgöngur
á leifturhraða og segir á síðu
Boring Company að hægt
yrði að ferðast frá New York
til Washington DC á tæpum
hálftíma. Sambærileg vega-
lengd er á milli Reykjavíkur
og Akureyrar.
Til að auka hraðann í ganga-
gerð ætlar fyrirtækið að fram-
leiða aflmeiri borvélar, breyta
aðferðafræðinni og gera
vélarnar sjálfvirkar. Auk þess
er áformað að fjárfesta meira
í rannsóknum og þróun í
geiranum en á vefsíðu fyrir-
tækisins segir að engin alvöru
framþróun hafi orðið á þessu
sviði í hálfa öld.
Húfur, ekki göng
Hins vegar virðist ekki hafa
verið nóg fyrir þetta nýja
krúnudjásn Musks að
bora göng. Í nóvem-
ber á síðasta ári setti
Boring Company í
sölu á vefsíðu sinni
derhúfur með merki
fyrirtækisins á tutt-
Musk áformar engin
uppvakningaragnarök
ugu dali
stykkið,
e ð a u m
2.000 krónur.
Salan gekk vonum framar
og var upplagið einungis 50.000
húfur. Breytti Musk lýsingunni
á Twitter-síðu sinni í „hattasölu-
maður“ og lofaði því að tíu heppnir
kaupendur fengju að skoða starf-
semi fyrirtækisins í Los Angeles.
Musk stakk upp á því í byrjun
desember, þegar 30.000 húfur
höfðu selst, að ef húf-
urnar seldust
upp gæti
h a n n
byrjað að selja eld-
vörpur. Skiljanlega
héldu þó margir að
um grín væri að
ræða.
En maður sem
ætlar að byggja
upp samfélag á
Mars og fullyrðir
að mannkynið búi
í sýndarveruleika
grínast ekki með
eldvörpur. „Ég
veit að þetta er
ekki alveg í sam-
ræmi við vöru-
merkið okkar en
krakkarnir elska
þetta,“ tísti Musk
þann 11. desem-
ber.
Eldvörpur, ekki
húfur
Það var svo þann
28. janúar sem
eldvörpurnar fóru
í forsölu á vefsíðu
Boring Company.
„Eldvörpur Boring
Company eru vel til
þess fallnar að rista
jarðhnetur,“ tísti Musk
þá og birti mynd af
tveimur starfsmönnum
að munda eldvörpurnar.
Hann tísti jafnframt öðru
myndbandi sama dag þar sem
hann sást hlaupa í átt að mynda-
tökumanninum með eldspúandi
byssuna á lofti, áður en hann
stoppaði og sprakk úr hlátri. „Ekki
leika þetta eftir.“
Og Musk var ekki hættur. Síðar
um daginn tísti hann: „Þegar upp-
vakningarnir rísa upp munuð þið
verða fegin því að þið keyptuð eld-
vörpur. Ég ábyrgist að þær virka
vel á uppvakninga, annars fáið þið
endurgreiðslu.“
„Augljóslega eru eldvörpur ótrú-
lega slæm hugmynd. Ekki kaupa
ykkur eintak,“ tísti Musk enn frem-
ur áður en hann hélt áfram, andar-
taki síðar: „Ekki nema þið njótið
þess að skemmta ykkur.“
Nokkrum tístum og fjórum
dögum síðar voru allar 20.000 eld-
vörpurnar uppseldar. Samkvæmt
vefsíðunni verða þær komnar til
neytenda í vor en stykkið kostaði
litlar 50.000 krónur.
Eldvörpunum fylgja slökkvi-
tæki, merkt fyrirtækinu, og þurftu
kaupendur að samþykkja skilmála
fyrirtækisins áður en gengið var frá
greiðslu.
Það er þó ekki alltaf tekið út
með sældinni að selja eldvörpur
og heyrðust efasemdaraddir strax í
upphafi. Musk sagði hins vegar að
þar sem eldurinn skytist ekki lengra
en þrjá metra úr byssunni væri hún í
lagi samkvæmt reglum Skotvopna-
eftirlits Bandaríkjanna.
Í samtali við tæknifréttasíðuna
CNET sagði talsmaður fyrirtækis-
ins að eldvörpurnar væru „örugg-
ari en vörur sem þú getur keypt
úti í búð til þess að útrýma illgresi.
Eldvörpurnar eru eins og rússí-
banar sem hannaðir eru til þess að
vera skemmtilegir án þess að vera
hættulegir. Hættulegar eldvörpur
eru nú þegar undir ströngu reglu-
verki og er eignarhald á þeim þeirra
leyfisskylt í Kaliforníu.“
Miguel Santiago, þingmaður
Demókrata í fulltrúadeild Kali-
forníu þings, reyndi að koma í veg
fyrir sölu eldvörpunnar. Sagði hann
á Twitter að hann væri hneykslaður
á framferði Musks. „Ef þetta er grín
þá er þetta ákaflega ósmekklegt
í ljósi þess að verstu skógareldar
í sögu ríkisins eru nýslokknaðir.
ÞETTA ER EKKI FYNDIÐ OG ÞETTA
MUN EKKI GERAST.“
En hvers vegna í ósköpunum er
einn ríkasti maður heims að selja
eldvörpur og grínast með upp-
vakninga? Ef marka má umfjöllun
Reuters gæti einfaldlega verið um
fjáröflunarherferð að ræða. „Þessi
nýjasta fjáröflunarherferð fer í gang
þegar fjármálagreinendur og fjár-
festar í Tesla velta vöngum yfir því
hvort Musk þurfi að afla milljarða
í viðbót fyrir fyrirtækið sem nær
engan veginn að anna eftirspurn.“
Einn ríkasti maður heims lætur rafbílaveldi sitt og
áform um að byggja upp samfélag á Mars ekki duga
sér. Í vikunni seldi hann almenningi eld-
vörpur fyrir milljarð króna. Óvíst er
hvort um grín sé að ræða eða hvort
einhver ástæða liggi að baki þessu
nýjasta ævintýri Elons Musk.
AugljóslegA eru eld-
vörpur ótrúlegA slæm
hugmynd. ekki kAupA
ykkur eintAk. ekki
nemA þið njótið þess
Að skemmtA ykkur.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
3 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
4
-B
5
4
8
1
E
E
4
-B
4
0
C
1
E
E
4
-B
2
D
0
1
E
E
4
-B
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K