Fréttablaðið - 03.02.2018, Blaðsíða 35
Ég tek tvær töflur
fyrir svefninn og
innan hálftíma er öll
fótaóeirð farin og ég fæ
góðan nætursvefn.
Soffía Káradóttir
Svefninn er okkur gríðarlega mikilvægur til þess að við getum tekist á við eril dagsins
og staðist þá streitu sem fylgir dag-
lega lífinu. Svefninn er að stærstum
hluta eins uppbyggður og á sama
formi hjá öllum sem sofa eðlilega
og ótruflað. Álitið er að REM-svefn
og djúpsvefn séu mikilvægustu
svefnstigin en þau ættu að ná yfir
u.þ.b. 45-50% af öllum nætursvefni.
Fullorðinn einstaklingur þarf að
meðaltali 7-8 klst. svefn og ef það
gengur ekki eftir getur það haft
neikvæð áhrif á almenna líðan,
fjölskyldu-, félags- og atvinnulíf.
Orsakir svefnleysis
Af hverju sofnum við ekki, erum
andvaka eða vöknum upp um
miðjar nætur og getum ekki
sofnað aftur? Það eru fjölmargar
ástæður fyrir því að við getum ekki
sofnað eða sofið þannig að við
hvílumst og vöknum endurnærð.
Vaktavinna, ferðalög, kvíði og
áhyggjur er algeng orsök svefn-
leysis en ýmsir sjúkdómar geta
einnig haft mikil áhrif á svefninn.
Streita er mjög algeng orsök en
það er allt of algengt að fólk vinni
of mikið, sé með fjárhagsáhyggjur,
vanti hreyfingu og/eða eigi í erf-
iðum samböndum, hvort sem er
við maka, vini eða aðra. Mataræði,
upptaka næringarefna og venjur
geta líka átt stóran þátt í svefnleysi.
Einbeitingarskortur og offita
Langvarandi röskun á svefni og
svefnmynstri getur haft mjög
alvarlegar heilsufarslegar afleið-
ingar. Einkenni svefnleysis eru m.a.
þreyta yfir daginn, skapsveiflur
og jafnvel þunglyndi og kvíði.
Einbeiting minnkar, slysahætta
eykst og ýmis andleg og líkamleg
vandamál, eins og t.d. offita, verða
algengari. Sum einkenni geta líka
dregið þann dilk á eftir sér að þau
ýti undir frekara svefnleysi sem
þýðir að við erum komin í víta-
hring sem þarf einhvern veginn að
rjúfa.
Loksins góður nætursvefn
Soffía Káradóttir þekkir Melissa
Dream og ber því vel söguna:
„Ég hef lengi verið með fótaóeirð
sem hefur aukist með árunum
og mér hefur reynst erfitt að sofa
nógu vel vegna þess. Eftir að ég
byrjaði að taka Melissa Dream
hefur þetta algjörlega breyst. Ég tek
tvær töflur fyrir svefninn og innan
hálftíma er öll óeirð farin og ég fæ
góðan nætursvefn. Að mínu mati
eru þetta töfratöflur sem ég gæti
ekki verið án og hef ég nú tekið
Melissa Dream reglulega í þrjú ár.“
Vilt þú sofa betur?
Það er ýmislegt sem hægt er að
gera til að vinna bug á svefnleysi
og gott að byrja á því að breyta
einföldum hlutum í nærumhverfi
okkar ef það á við. Við eigum ekki
að borða á kvöldin og passa okkur
á því að drekka ekki of mikið, bæði
til að gefa meltingarfærunum pásu
og að losna við klósettferðir. Ekki
taka tölvur eða síma með í rúmið
og lágmarka alla notkun rafmagns-
tækja í svefnherberginu sem á að
vera vel loftað, myrkvað og hljóð-
látt. Náttúruleg bætiefni reynast
mörgum vel og hefur Melissa
Dream alveg slegið í gegn. Þetta
bætiefni fékk um daginn viður-
kenningu frá National Nutrition í
Kanada í flokki bestu fæðubótar-
efna gegn streitu.
Amínósýra sem stuðlar að
slökun
Melissa Dream inniheldur
sítrónumelissu sem hefur verið
notuð í aldaraðir m.a. til að bæta
svefn og draga úr kvíða. Þar er
einnig að finna L-theanine, amínó-
sýru sem finnst í svörtu og grænu
tei og hafa rannsóknir sýnt að hún
hefur bein áhrif á heilann þar sem
hún stuðlar að slökun án þess að
hafa sljóvgandi áhrif. Að lokum
innheldur Melissa Dream B víta-
mín sem er gott fyrir taugakerfið
og nægilegt magn af magnesíum
sem er vöðvaslakandi og getur
dregið úr óþægindum í hand- og
fótleggjum.
HAM
Svefnleysi getur þó verið alvar-
legra vandamál en svo að einföld
ráð dugi. Þá er best að ráðfæra sig
við lækni. Þess ber þó einnig að
geta að rannsóknir hafa sýnt að
bestur árangur næst með hug-
rænni atferlismeðferð (HAM) sem
er nokkurra vikna námskeið sem
fólk getur sótt.
Fótaóeirð horfin og ég fæ
góðan nætursvefn
Melissa Dream er vísindalega samsett náttúrulyf, hannað til að stuðla að djúpri slökun
og værum svefni. Þessi blanda inniheldur ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif.
Soffía Káradóttir.
Góðgerlar sem styrkja meltinguna og vinna gegn
fjölgun Candida sveppsins í meltingarvegi.
Bio-Kult Candéa
Bio-Kult góðgerlar styrkja meltinguna!
Hágæða góðgerlar, heilbrigð bakteríuflóra.
Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Bio-Kult Original
Bio-Kult Pro-Cyan Bio-Kult Infantis
Öflug blanda góðgerla sem byggir upp
þarmaflóruna og styrkir varnir líkamans.
Styrkir þvagrásina og virkar sem öflug vörn
gegn þvagrásarvandræðum.
Góðgerlar fyrir börn á öllum aldri. Eflir
þarmaflóruna, án allra aukaefna og er bragðlaust.
Bio-Kult-Hamingjan 5x10 copy.pdf 1 10/11/2017 14:30
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 3 . f e b r úa r 2 0 1 8
0
3
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
4
-E
6
A
8
1
E
E
4
-E
5
6
C
1
E
E
4
-E
4
3
0
1
E
E
4
-E
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K